Fréttablaðið - 26.11.2009, Side 12
12 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Startarar og
alternatorar
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
SÖLUSTAÐIR Davidsson: Rammagerðin ehf Hafnarstræti 19, Reykjavík Keflavíkurflugvelli Akureyri Egilsstöðum www.rammagerdin.is
REYKJAVÍK Breyttar aðstæður efna-
hagslífs gera að verkum að „menn
eru ekki að fara að setja milljarða
í að byggja eða flytja flugvöll á
næstunni“. Reykjavíkurflugvöll-
ur verður því ekki færður eða
lagður niður í bráð.
Svo segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi og for-
seti borgarstjórnar.
„Við skulum ekki gleyma því
að við erum með mörg hundruð
manns í vinnu og að það eru ekki
til fjármunir fyrir þessa dýru
samgöngumiðstöð.“ Fyrir utan
annað sé völlurinn á aðalskipu-
lagi til ársins 2024. Því sé sjálf-
sagt að skoða það að byggja nýja
flugstöð, berist um það erindi frá
ráðherra.
Spurður um kostnaðinn við völl-
inn, sem Gísli Marteinn Baldurs-
son borgarfulltrúi telur að nemi
fjórum milljörðum króna á ári,
segir Vilhjálmur:
„Þú verður að spyrja hann að
því, hvernig hann fær það út.“
Viljhálmur lítur á flugstöðvar-
hugmyndina sem endurnýjun á
byggingu, en ekki þannig að verið
sé að bæta við starfsemi. Hann
svarar ekki, um hvort til greina
komi að breyta aðalskipu-
lagi og festa flugvöll-
inn í sessi umfram
það sem nú er.
Spurður hvort
samstaða sé um
nýju flugstöðina
í Sjálfstæðis-
flokknum
segir Vil-
hjálm-
ur
að það hafi ekkert verið rætt.
Hins vegar hafi verið samkomu-
lag um minnisblað um stærri
samgöngumiðstöð í vor.
Dagur B. Eggertsson borgar-
fulltrúi hefur gagnrýnt meint
stefnuleysi meirihlutans. Lagt
hafi verið í mikinn kostnað til að
breyta Hlíðarfótarlóð og rýma
fyrir samgöngumiðstöð. Þetta
kostar borgarsjóð 450 milljónir í
ár, að sögn Dags.
Júlíus Vífill Ingvarsson, for-
maður skipulagsráðs, segir það
vekja furðu að Dagur sé „að gagn-
rýna viðræður okkar við ráð-
herra Samfylkingar. Þessi vinna
er unnin að beiðni ráðuneytisins.
Sé hann að gagnrýna breyttar
áherslur ætti hann að gagnrýna
ráðherrann, ekki borgina“.
Hlíðarfótarlóðin sé fyrst og
fremst til uppbyggingar á Vals-
svæðinu: „Háskólinn í Reykjavík
hefur starfsemi um áramót og
verði ekki hugað að samgöngu-
bótum verður þar umferðaröng-
þveiti.“ klemens@frettabladid.is
Flugvöllurinn fer
ekki á næstunni
Forseti borgarstjórnar segir að Reykjavíkurflugvöllur verði ekki lagður niður á
næstu árum og svarar ekki hvort til greina komi að breyta aðalskipulagi, til að
festa hann í sessi. Formaður skipulagsráðs undrast gagnrýni Samfylkingarinnar.
VILHJÁLMUR ÞÓRMUNDUR VILHJÁLMSSON Forseti
borgarstjórnar segir Gísla Martein Baldursson
bestan til að svara fyrir útreikninga sína á kostnaði
við Reykjavíkurflugvöll. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON Segir að kostnaður
borgarinnar vegna samgöngumiðstöðvar liggi
helst í unnum stundum starfsfólks.
MYND/ÚR SAFNI
SLÁTURHÁTÍÐ Hindúar í Nepal komu
saman í vikunni til fórnarhátíðar þar
sem dýrum var slátrað í hundraða
þúsunda tali handa valdagyðjunni
Gadhimai. Hátíð þessi er haldin á
fimm ára fresti og sætir harðri gagn-
rýni víða um heim. NORDICPHOTOS/AFP
NEYTENDUR Síminn hóf í gær að
bjóða upp á farsímaþjónustuna
Ring, sem sérstaklega er gerð með
þarfir ungs fólks í huga. „Við lítum
ekki á Ring sem hefðbundna far-
símaþjónustu heldur stuðning við
vinahóp. Notendurnir eru hópur
sem talar saman, fer út að borða
og í bíó,“ segir Sigurður Hjaltalín
Þórisson, vörustjóri Ring hjá Sím-
anum. „Allt er gert svo vinahópur-
inn geti verið saman.“
Með þjónustunni fylgja kaupauk-
ar, afsláttur í kvikmyndahús á til-
teknum dögum og af mat og fötum,
svo sem hjá verslunum NTC. Sig-
urður bendir á að vinahópurinn
hjá Símanum sé geysistór enda
viðskiptavinir alls 160 þúsund tals-
ins.
Viðskiptavinir Ring kaupa áfyll-
ingu fyrir 1.990 krónur og dugar
hún í 31 dag. Fyrir upphæðina má
tala í 1.500 klukkustundir, eða heil-
an sólarhring og klukkustund betur.
Fjöldi smáskilaboða er innifalinn í
verðinu. Ekkert kostar að hringja
innan kerfis fyrr en 1.500 mínút-
urnar eru uppurnar. Þá kostar hver
mínúta 15,5 krónur. Þá nýtast 990
krónur af inneigninni til símtala á
milli kerfa. Þegar inneigninni slepp-
ir gildir mínútugjald á milli kerfa.
Sé farið yfir inneignina þurfa við-
skiptavinir ekki að eiga von á bak-
reikningi vegna ofnotkunar. - jab
VÖRUMERKIÐ KYNNT Ný þjónusta Sím-
ann horfir á viðskiptavini sem vinahóp.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Síminn ýtti nýju vörumerki úr vör í gær sem leggur áherslu á ungt fólk:
Sjá viðskipavini sem vinahóp
FÉLAGSMÁL Alls eru 26 manns á
biðlista á Akureyri eftir búsetu
með þjónustu fyrir fatlaða. Þetta
kom fram í máli Önnu Marit-
ar Níelsdóttur félagsráðgjafa á
fundi félagsmálaráðs Akureyrar.
Níu manns eru á biðlista eftir
húsnæði sem sérstaklega er
ætlað geðfötluðum, þar af eru
fjórir sem bíða eftir úrræði fyrir
einstaklinga með geðfötlun og
viðvarandi vímuefnavanda. Alls
bíða sautján einstaklingar með
þroskahömlun eftir búsetu.
Í bókun félagsmálaráðs kemur
fram að áfram þurfi að leita allra
leiða til að mæta þörfum umsækj-
enda. - th
Búseta fyrir fatlaða:
Fjöldi á biðlista
á Akureyri