Fréttablaðið - 26.11.2009, Side 26
26 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Jóhanna Traustadóttir
skrifar um geðhjúkrun
Evrópudagur sjúkra-liða 26. nóvember er
haldinn innan EPN (Eur-
opean Counsil of Practi-
cal Nurses.)
Að þessu sinni er dag-
urinn á Íslandi helgaður
geðhjúkrun m.a. vegna
þess að hefja á eins árs sérnám í
geðhjúkrun fyrir sjúkraliða á vor-
önn 2010. Námið samanstendur af
65ECTS einingum á háskólastigi
og yrði vistað við Fagháskólann
við Ármúla.
Geðhjúkrun hefur verið hluti af
námi sjúkraliða frá því farið var
að kenna til sjúkraliðastarfa árið
1966 eða í rúm 40 ár. Sjúkraliðar
hafa starfað á geðdeildum Land-
spítalans allar götur síðan.
Árið 1989 fór fram einnar
annar nám í hjúkrun geðsjúkra
við Sjúkraliðaskóla Íslands.
Námið var metnaðarfullt og voru
margir sjúkraliðar sem sóttu sér
viðbótarmenntunar á því sviði.
Ekki voru nein viðbótarréttindi
þessu námi samfara m.a. vegna
mikillar tregðu hjúkrunarfræð-
inga við að menntun sjúkraliða
væri nýtt sem skyldi. Þrátt fyrir
það var fjöldinn allur af sjúkra-
liðum sem fóru í námið líkt og
annað nám og námskeið sem
sjúkraliðum hefur staðið til boða
í fjóra áratugi.
Segja má að furðu sæti hve
duglegir sjúkraliðar hafa verið að
afla sér viðbótarmenntunar þrátt
fyrir að hafa þurft að þola óvið-
unandi tregðu yfirmanna til þess
að nýta námið heilbrigðisþjónust-
unni til framfara.
Í bók Óttars Guðmundsson-
ar, geðlæknis „Kleppur í 100 ár“
kemur fram að upphaf formlegr-
ar geðhjúkrunar á Íslandi hafi
byggst á þekkingu sem nefnd er
hjúkrunarfræði, eða geðhjúkrun-
arfræði. Elsta heimildin
er frá árinu 1881.
Það er ljóst af lestri
bókarinnar að hjúkrun-
arkonurnar þurftu að
berjast fyrir því að fá
viðurkenningu á sjálf-
stæði starfsgreinarinnar
við lækningasvið sjúkra-
hússins.
Sjúkraliðar eru við-
urkenndir til starfs við
geðhjúkrun á Norður-
löndunum og hafa þar mun meiri
starfsréttindi en hér á landi.
Í samningi frá 14. júní 1993 um
sameiginlegan norrænan vinnu-
markað fyrir tilteknar heilbrigð-
is- og hjúkrunarstéttir segir í 9.
gr.
„Sá á rétt á að fá viðurkenningu
sem mentalvärdare eða närvärd-
are í Finnlandi, sjúkraliði á sviði
geðhjúkrunar á Íslandi, og hjelpe-
pleier á geðhjúkrunarsviði í Nor-
egi a) sem hefur aflað sér skil-
ríkja í Danmörku sem social- og
sundhedsassistent (SOSU-assis-
tent) eða sem plejer í samræmi
við reglur settar af heilbrigð-
isyfirvöldum á árinu 1977 eða
síðar b) sem hefur í Svíþjóð upp-
fyllt gildandi kröfur um mennt-
un og starfsreynslu skötare í geð-
hjúkrun eða hlotið eldri menntun,
viðurkennda af til þess bærum
yfirvöldum, fyrir skötare í geð-
hjúkrun.“
Þörfin fyrir sjúkraliða á stofn-
unum fyrir geðsjúka er mikil.
Sorglegt er til þess að vita að
þar sem geðsjúkir þurfa hjúkr-
un er ekki gerður greinarmunur
á hvort sjúkraliði eða starfsmað-
ur með litla eða enga menntun á
sviði hjúkrunar sinni störfunum.
Það hlýtur að vera krafa samfé-
lagsins að þetta verði endurskoð-
að með þarfir einstaklinganna
er þjónustunnar eiga að njóta í
huga.
Höfundur er sjúkraliði
á geðsviði Landspítala.
Þörfin fyrir sjúkraliða
Með almannahags-
muni að leiðarljósi
UMRÆÐAN
Lilja Mósesdóttir
skrifar um endurreisn
bankanna
Fullyrðingar um að búið sé að slá skjald-
borg um hrunbankana
og hrunfyrirtæki heyr-
ast nú æ oftar. Bankarn-
ir eru gagnrýndir fyrir að starfa
á sömu forsendum og fyrir hrun
og fyrir að afskrifa skuldir fjár-
glæframanna og fákeppnisfyr-
irtækja.
Við höfum nú þegar mörg
dæmi um að viðskiptalegar, skyn-
samlegar ákvarðanir bankanna –
eins og það heitir hjá Samkeppn-
iseftirlitinu – séu ekki alltaf í
samræmi við hagsmuni markað-
arins/samfélagsins. Hagfræðing-
ar kalla þetta vandamál markaðs-
brest. Banki sem leitast aðeins
við að hámarka endurheimtur
skulda nær því markmiði með
því að viðhalda fákeppnisfyrir-
tækjum en það þýðir hins vegar
minni samkeppni (samkeppn-
isaðilum sem ekki hafa fengið
afskrifaðar skuldir er ýtt út af
markaði) og hærra verð til neyt-
enda. Löggjafinn þarf að setja
almenn viðmið sem hafa á til
hliðsjónar þegar ákvarðanir eru
teknar um fjárhagslega endur-
skipulagningu fyrirtækja og sjá
til þess að þeim verði framfylgt.
Viðmið eins og sanngirni, gegn-
sæi, virk samkeppni, dreift eign-
arhald og byggðafesta.
Innri starfsemi bankanna
hefur enn ekki verið endurskoð-
uð, þar sem eigendahópurinn er
ekki kominn á hreint. Hætta er
á að ákvarðanir um afskriftir
á skuldum fyrirtækja
mótist af hagsmunum
einstakra starfsmanna
bankanna sem vilja fela
mistök í útlánum fyrir
hrun. Þetta vandamál
kallast umboðsvandinn
en hann getur birst sem
mikil tregða bankanna
til að skipta út eigend-
um og stjórnendum fyr-
irtækja. Nauðsynlegt er
að setja almennar reglur eins og
að víkja eigi eigendum og stjórn-
endum sem bera ábyrgð á meira
en þrefaldri skuldsetningu fyr-
irtækisins miðað við virði eign-
anna. Auk þess þarf að tryggja
aðkomu erlendra sérfræðinga
að ákvarðanatökunni sem veita
eignaumsýslufélögum bankanna
ráðgjöf.
Þessi vandamál (markaðs-
brestur og umboðsvandi) rétt-
læta afskipti löggjafar- og
framkvæmdavaldsins. Í dag
er takmarkað eftirlit með fjár-
hagslegri skipulagningu fyrir-
tækja, þar sem enn vantar laga-
heimildir fyrir eftirlitsaðila
eins og FME, Samkeppniseft-
irlitið og Eftirlitsnefndina (sér-
tæk skuldaaðlögun) til að hafa
afskipti af ákvörðunum bank-
anna. Auk þess þarf að skýra
verkaskiptingu milli þessara
aðila. Fljótlega verður gripið
til aðgerða til að tryggja virkt
eftirlit með starfsemi bank-
anna. Auk þess er brýnt að setja
bönkunum almenn viðmið sem
móta eiga ákvarðanatökuna og
þrýsta á um skýrari verkferla
og aðkomu erlendra sérfræð-
inga.
Höfundur er þingkona
Vinstri grænna.
LILJA
MÓSESDÓTTIR
JÓHANNA
TRAUSTADÓTTIR
Hvað er gjaldþrot?
UMRÆÐAN
Jón Trausti Sigurðarson skrifar um
skuldir Haga og 1998
Hvenær setur maður fyrirtæki á haus-inn, og hvenær setur maður fyrir-
tæki ekki á hausinn. Hingað til hefur
þetta atriði verið nokkuð skýrt. Fyrirtæki
sem ekki getur greitt skuldir sínar, það er
gjaldþrota fyrirtæki.
Jóhannes Jónsson er spurður út í þetta
atriði í Kastljósi mánudaginn 16. nóvem-
ber. Hann útskýrir: „Það hefur gengið mjög vel
þetta fyrirtæki, það er vel upp byggt á 20 árum
og … og hérna við erum með starfsfólk sem er
afburðafólk á sínu sviði.“
Fyrirtækið er vel rekið. En fyrirtækið skuldar
einhverstaðar á bilinu 50-70 milljarða. Eða hvað?
Höldum áfram í téðu Kastljósviðtali:
Sigmar: „Jóhannes, vertu velkominn í Kastljós.
Það er búið að tala náttúrulega mikið um skulda-
stöðu, ja bæði Haga og svo þessa fyrirtækis sem
er í eigu þinnar fjölskyldu, 1998. Jafnvel talað um
það að þetta sé allt í allt 70 milljarða króna skuld.
22 milljarðar hjá Högum og hvað, 48 milljarðar
hjá 1998. Er ekki … maður má að minnsta kosti
draga þá ályktun að það þurfi að afskrifa svolítið
af þessum skuldum, ef að þið eigið að geta haldið
þessu.“
Jóhannes: „Þessar tölur eru náttúrulega engan
veginn í takt við það sem er raunveruleikinn.
Þannig að … að við skulum draga ansi mikið frá
þessu.“
Sigmar: „Já, en þú hafnar því, af því að þetta
eru tölur sem menn hafa verið að leika sér með í
opinberri umræðu.“
Jóhannes: „Já já. Menn hafa leikið sér með
ýmsar tölur, og skuldastöðu Baugs og allt í sama
pakkanum og hérna, það er ekkert af þessu í
raunveruleikanum.“
Sigmar: „Umm …“
Jóhannes: „Og þessar tölur sem þú ert að tala
um þarna, það er fjarri raunveruleikanum.“
Sigmar: „Hmm. En geturðu þá sagt okkur hvað
þetta eru miklar skuldir sem á ykkur hvíla?“
Jóhannes: „Nei ég get því miður ekki sagt þér
það núna, og ætla mér ekki að segja þér það, þó
að ég viti það nokkurnveginn.“
Viðtalið heldur áfram og fer út í aðra
sálma.
Á þessu augnabliki, vissi öll þjóðin,
nema að virtist þessir tveir menn í Kast-
ljósinu, hver skuldastaða 1998 ehf./ Haga
ehf. var. Eða hvað?
Jóhannes segir Sigmari Guðmundssyni
að tölurnar séu „fjarri raunveruleikan-
um“. Sigmar ætti að muna og vita að ein
stærsta frétt sumarsins var sú að lánabók
Kaupþings frá því í september 2008 lak á
netið. Þar er lánabókin enn, í heild sinni,
hafi Sigmar áhuga á því að staðfesta töl-
urnar.
Í því skjali, sem blaðamannastéttin öll (og þjóð-
in hálf) velti sér uppúr vikum saman fyrir ekki
svo löngu, er að finna nákvæmar upplýsingar um
hvað 1998 ehf. og Hagar ehf. skulda Kaupþingi. Á
gengi dagsins í dag skuldar 1998 ehf . Kaupþingi
um 48,5 milljarða.
Þetta eru ekki bara aðgengilegar upplýsingar
sem hægt er að nota til að hrekja ranga fullyrð-
ingu Jóhannesar, þetta eru upplýsingar sem allir
fréttelskir Íslendingar kannast við. Þetta eru
upplýsingar sem er hægt að finna á öðru hvoru
íslensku bloggi. Þetta eru tölur úr lánabók Kaup-
þings, sem fyrrverandi stjórnarmenn bankans
staðfesta að sé raunveruleg og hvers innihald
Sigmar spurði einmitt Hreiðar Má, fyrrverandi
stjórnarmann þess banka, um í Kastljósi, fyrir
alls ekki löngu síðan.
Það er ekki ekki endilega hægt að ætlast til
þess, að þáttur eins og Kastljós, sem titlar sig
dægurmálaþátt, og er undirorpið þröngum fjár-
veitingastakki hins íslenska ríkis, geti unnið
mikla heimildarvinnu fyrir þann fjölda við-
tala sem þátturinn tekur vikulega. En engu að
síður, þá hlýtur að vera hægt að ætlast til þess
af þessum sama þætti að starfsmenn hans búi að
almennri vitneskju.
Nema þá að skuldir 1998 ehf. hafi verið afskrif-
aðar nú þegar. En „ekkert hefur verið afskrifað“
fullyrðir Jóhannes. Og þarna stendur hnífurinn
í kúnni. Hvort sem væri, þá getur hvort tveggja
ekki staðist. Þar fór kaupmaðurinn í sannleiks-
þrot. En fékk það strax afskrifað hjá Kastljósi.
Höfundur er laganemi við HÍ og hefur gefið út
tímaritið Reykjavík Grapevine síðan 2003.
JÓN TRAUSTI
SIGURÐARSON