Fréttablaðið - 26.11.2009, Side 35
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2009 3kjólar ● fréttablaðið ●
Það sem einkennir kjólatísku
vetrarins er að efnum er
blandað saman til að auka á
fjölbreytnina að sögn Láru
Jónu Ingadóttur, rekstrarstjóra
hjá versluninni Companys í
Kringlunni.
„Kjólar eru eiginlega allsráðandi
í kventísku vetrarins og við erum
að taka inn stóra sendingu þannig
að búðin verður full af fallegum
kjólum fyrir jólin,“ segir Lára
Jóna en tekur líka fram að Comp-
anys sé með mikið úrval af kjólum
allt árið um kring.
„Leggingsbuxurnar eru enn
mjög sterkar inni og alls kyns kjól-
ar henta vel með þeim. Sami kjóll-
inn getur verið notaður spari með
háhælaskóm og sokkabuxum og
sem vinnuklæðnaður með leggings
eða stígvélum. Þannig er hægt að
auka notagildi einfaldra kjóla,“
bendir hún á og heldur áfram: „Við
erum með kjóla með ermum og
án og hnésídd er áberandi í vetur
enda passar hún við hvaða tilefni
sem er og bæði við sokkabuxur og
leggings.“ Svarti liturinn er mest
áberandi í rekkum Companys en
það sem einkennir tísku vetrar-
ins er að efnum er blandað saman
að sögn Láru Jónu. „Í mörgum til-
fellum er notuð blúnda eða siffon
með til dæmis svörtu efni. Það
skapar tilbreytingu og gerir fatn-
aðinn fjölbreytilegri. Svartir, ein-
faldir kjólar eru alltaf vinsælir en
svo erum við líka með liti svo sem
fjólublátt, silfurgrátt og vínrautt
sem er nauðsynlegt til að lífga upp
á samkvæmin.“
Fatanúmerin í Companys eru
allt frá 32 upp í 46 og Lára Jóna
segir sniðin þannig að margir kjól-
anna henti hvaða týpum sem er.
„Hér er svo mikil breidd bæði í stíl
og stærðum,“ tekur hún fram.
Það eru einkum dönsk merki
sem Companys er með, In Wear,
Part Two, Saint Tropez, Soaked
in Luxury og Design Remix, svo
dæmi séu tekin. Lára Jóna segir
kjólana til í ýmsum verðflokkum.
„Við erum með mjög gott verð sem
flestir eru að leita að núna,“ segir
hún.
Lára Jóna nefnir líka að með
einföldum kjólum sé fallegt að
bera hálsmen af einhverju tagi og
segir mikið um gróf hálsmen og
flott armbönd um þessar mundir.
„Þau eru flott við kjólana og poppa
þá aðeins upp.“
Ólík efni eiga samleið
„Það er auðvelt að auka notagildi einfaldra kjóla,“ segir Lára Jóna, sem hér sést
ásamt Höllu Rut Sveinbjörnsdóttur, verslunarstjóra Companys. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við vorum að læra um hernámið á
Íslandi og hvernig íslenskar konur
hrifust af hermönnunum. Hermenn-
irnir voru herramenn, voru mjög
kurteisir og komu vel fram við þær.
Þær höfðu ekki kynnst þessu hjá ís-
lenskum karlmönnum, sem flest-
ir voru sjómenn og verkamenn. Í
kennslubókinni Úr sveit í borg var
ein ákveðin mynd af íslenskri konu
í rosaflottum kjól og stígvélum og
breskum hermanni þar sem hann
er að kyssa hana. Þessi mynd heill-
aði okkur svo að hún var eiginlega
ástæðan fyrir því að við ákváðum
að taka þetta efni,“ segir hópur
unglinga úr 9. bekk Austurbæjar-
skóla. Hann skipa Anna-Havi-Vu,
Hjalti Þór Davíðsson, Karen Andr-
eassen Þráinsdóttir, Lísbet Sigurð-
ardóttir og Þórdís Hulda Árnadótt-
ir. Unglingarnir voru allir mjög
hrifnir af hernámstískunni.
„Ég myndi nú samt ekki ganga
í hermannsfötum,“ segir Hjalti en
ákveðið var að hafa hann í búningi
hermanns. Stelpurnar gátu hins
vegar allar hugsað sér að upplifa
hernámstískuna og jafnvel að taka
sumt af henni inn í eigin fatastíl í
dag. „Kjólarnir voru svo æðisleg-
ir og tískan í dag er svolítið gam-
aldags.“
Hópurinn hafði allur tekið kvik-
myndagerð sem valfag og lang-
aði í framhaldinu að búa til gam-
aldags bíómynd um ástandið.
„Allir höfðu sitt hlutverk, Lísbet
leikstýrði, Havi var kvikmynda-
tökukona og hinir leikarar. Þetta
var mjög skemmtilegt. Okkur var
síðan sagt frá myndbandakeppni
66 N, sem er fyrir grunnskólana, og
ákváðum að senda myndina okkar
inn. Við unnum svo í flokknum 8.-
10. bekkur, sem kom okkur algjör-
lega á óvart.“
En mynduð þið vilja upplifa her-
námsárin? „Já, hvort við vildum,“
segja stelpurnar. Það væri frábært
að fá hingað svona marga stráka.
Hjalti hins vegar óttast ekkert sam-
keppnina og telur þá íslensu ekkert
síðri. - uhj
Heitt á hernámsárunum
Tvær ástands-
meyjar skarta
sínu fegursta.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Bresku og
bandarísku
hermennirnir
voru eftirsóttir.
Stelpurnar á
bak við vélina.