Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 46
26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Málstaður er nafn á nýrri íslenskri bókaútgáfu. Fyrir þessi
jól kemur út barnabókin Úlfur, Uggi og Skuggi í ævintýra-
ferð sem birtist samtímis á Íslandi og í Svíþjóð.
„Það var nú þannig að þessi bók kom undir óvart ef við
getum orðað það þannig,“ segir Skúli Bjarnason, hæsta-
réttarlögmaður og höfundur bókarinnar, en bæði útgáfan
og fyrsta bókin sem þar kemur út eru sprottin af sögustund-
um Skúla með afabarni sínu. „Þar sem strákurinn var í Sví-
þjóð en ég hérna á Íslandi ákvað ég að skrá eina söguna og
senda út af því að strákurinn var farinn að lesa. Nú er hún
komin á þrykk en það stóð alls ekki til í byrjun,“ segir Skúli.
Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar
og kona Skúla, myndskreytir bókina en Skúli getur þess að
börn þeirra hjóna hafi hvatt þau til að halda á þessar brautir.
Dóttir þeirra, Erla Skúladóttir, mun þýða yfir á sænsku.
Nafn bókaútgáfunnar, Málstaður, er engin tilviljun því
útgáfan mun hverju sinni styðja verðugan málstað. Um og
eftir næstu jól munu hundrað krónur af hverri seldri bók
Málstaðar renna til íslensku hjálparsamtakanna Enza, sem
starfa í Mbkweni í Suður-Afríku og hjálpa þar barnshafandi
konum sem þurfa að gefa barn sitt frá sér vegna fátæktar
eða útskúfunar.
Úlfur, Uggi og Skuggi í ævintýraferð fjallar um þrjá úlfa-
stráka í Svíþjóð þar sem þeir hafa komið sér notalega fyrir
í yfirgefnum holum kletti. Þeir bregða sér í bæjarferð á
lengsta degi ársins, lenda í æsilegum eltingaleik og enda
óvænt í kaffiboði hjá lögreglunni. „Hugmyndin er að gefa út
meira af þessum karakterum og láta þessa ágætu úlfadrengi
þvælast svolítið um Norðurlönd. Við erum áhugafólk um að
efla samnorræna vitund hjá krökkum. Aftast í bókinni verða
svo upplýsingasíður með fróðleik sem tengist því sem fjall-
að er um í bókinni. En það þarf í raun að snúa bókinni við
til að skoða þær,“ segir Skúli. „En til að íþyngja ekki krökk-
um með allt of miklum fróðleik fórum við þessa leið. Það vill
oft brenna við að bækur verði leiðinlegar, fróðleikurinn má
ekki skaða frásögnina.“ segir Skúli að lokum.
MÁLSTAÐUR: GEFUR ÚT FYRSTU BÓKINA
Fjölskylduútgáfa
RITHÖFUNDUR OG LÖGFRÆÐINGUR Barnabókaskrifin hófust með
sögustund Skúla og barnabarns hans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
TINA TURNER
ER SJÖTUG Í DAG.
„Ég þekki muninn á
svartagaldri og hvíta-
galdri.“
Tina Turner hefur í nærri
fimmtíu ár verið ein
skærasta stjarna
poppheimsins.
Elskulegur tengdafaðir minn, afi okkar
og langafi,
Guðmundur Ragnar
Árnason
lést á heimili sínu að Hrafnistu í Reykjavík mánu-
daginn 23. nóvember.
Dagný Björk Þorgeirsdóttir
Sólrún Guðjónsdóttir
Svava Hrund Guðjónsdóttir Sigurður Halldór Sævarsson
Mjöll Guðjónsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson Anna María Þórðardóttir
og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
Hilmar Júlíusson
lögreglumaður í Ólafsvík,
lést þann 19. nóvember á Sjúkrahúsi Akraness. Hann
verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn
27. nóvember kl. 13.00. Blessuð sé minning hans.
Egill Hilmar Jensson
Sigríður Ragna Hilmarsdóttir Viktor Már Melsen
Steinunn Brynja Hilmarsdóttir Björgvin Sigursteinsson
Jón Júlíusson
barnabörn og systkini.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elín Guðjónsdóttir
áður Tjarnarbraut 25, Hafnarfirði,
lést að Hrafnistu, Reykjavík mánudaginn 23. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sveinn Magnússon Kristín Bragadóttir
Margrét Sesselja Magnúsdóttir Ólafur Emilsson
Ingibjörg Magnúsdóttir Einar Ólafsson
Elín Magnúsdóttir Garðar Briem
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir,
tengdafaðir og afi,
Ástvaldur Hólm Arason
frá Borg á Mýrum, A-Skaftafellssýslu,
til heimilis Brekkubyggð 18, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, föstu-
daginn 20. nóvember. Útförin fer fram frá Garðakirkju
föstudaginn 27. nóvember kl. 11.00.
Sigríður Hera Ottósdóttir
Bergdís Lilja Kristinsdóttir Paul Graham John Paul
Halla Kristín Guðlaugsdóttir Gísli Örn Arnarson
og barnabörn.
Móðir okkar,
Sigríður Gísladóttir
frá Skógargerði, til heimilis að
Árskógum 6,
lést þriðjudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 27. nóvember klukkan
15.00.
Smári Hermannsson Ásdís Elfa Jónsdóttir
Dagný Hermannsdóttir
Hermann Hermannsson Sigríður Guðmundsdóttir
Gísli Hermannsson Margrét Kristjánsdóttir
Ragnheiður Hermannsdóttir Hugo Þórisson
Stefán Hermannsson Arnfríður Einarsdóttir
Ívar Ásgeirsson Þórunn Árnadóttir
og fjölskyldur.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát
ástkærrar móður minnar, tengdamóður
og ömmu,
Rannveigar
Þórarinsdóttur
frá Þernuvík.
Starfsfólk Vífilsstaða fær sérstakar þakkir fyrir einstak-
lega góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Dóra Halldórsdóttir Haraldur Arngrímsson
Rannveig Alda Haraldsdóttir
Auðna Margrét Haraldsdóttir
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
Antons V. Jónssonar
Blessuð sé minning hans.
Guðrún, Davíð, Fjóla og systkinabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar og tengdafaðir,
Halldór Einarsson
ljósmyndari og hljóðfæraleikari,
lést á Grund laugardaginn 21. nóvember 2009.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
þann 27. nóvember nk. kl. 15.
Steinþóra Þórisdóttir
Halldóra Halldórsdóttir Adler Jeremy Adler
Anna Birna Halldórsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Guðleif Helgadóttir
áður til heimilis að Byggðarholti 29,
Mosfellsbæ,
lést á Hrafnistu Víðinesi hinn 18. nóvember.
Hún verður jarðsungin frá Lágafellskirkju klukkan
13.00, fimmtudaginn 26. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hallgrímur Greipsson Eli Paulsen
Kristján Greipsson Borghildur Ragnarsdóttir
Guðbjörg Greipsdóttir
Pálína Lórenz
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Arnmundur Jónasson
Mávabergi, Bakkafirði,
lést föstudaginn 20. nóvember. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 1. desember
kl. 13.00.
Guðmundur Konráð Arnmundsson Erna Sigurjónsdóttir
Ólöf Kristín Arnmundsdóttir
Ingveldur Rut Arnmundsdóttir Þröstur Júlíusson
Jónas Arnmundsson Sólrún Unnur
Harðardóttir
Ása Karítas Arnmundsdóttir Birgir Þór Búason
Svanhildur Arnmundsdóttir Guðmundur Heimir
Sveinbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Halldórs Guðnasonar
Guðný I. Hjartardóttir
Guðrún Halldórsdóttir Pétur Haraldsson
Kristín Halldórsdóttir Haukur Sigurðsson
Guðni Halldórsson Hildur Mikkaelsdóttir
Sæmundur Halldórsson Henný Bára Gestsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.