Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 12

Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 12
Descmber. Fram að jólum var umhleypingasamt á sunnan- og vestanverðu landinu, tíðum hvasst af vestri og suðri með miklu úrfelli. Á norðaustanverðu landinu var hins vegar góð tíð og úrkomulítið. Þann 22. var sunnan stormur og víða mikil rigning. Sums staðar urðu þá skemmdir af skriðuföllum og vatnagangi; hitinn á Dalatanga fór yfir 14 stig. Á jóladag skipti um, og hófst þá þriggja vikna kafii með frosti og stillu uni allt land. Janúar. Framan af var sífellt bjart og kyrrt veður með talsverðu frosti. Sjötti var kaldasti dagur vetrarins og komst frostið j)á yfir 29 stig í Möðrudal. Eftir þann 12. voru suðlægir vindar algengir fram undir mánaðamót. Nokkur úrkoma, ýmist snjór eða rigning, var þá á Vesturlandi, en samfelld blíðviðri norðan lands og austan. Má segja, að varla hafi komið dropi úr lofti allan mánuðinn á Norðaustur- landi. Þannig var mánaðarúrkoma við Grimsárvirkjunina aðeins 1,3 mm og 0,2 mm að Brú á Jökuldal. Meðalloftvægi mánaðarins var óvenjumikið. í Reykjavík var það 1026,9 mb, og til samanburðar má geta þess, að á árunum 1931—1960 var meðalloftvægi mánaðar aðeins einu sinni hærra í Reykjavík, eða 1034,6 mb. í febrúar 1932. Febrúar töldu veðurathugunarmenn almennt sérstaklega hagstæðan. Vindátt var oftast norðaustan- og austanstæð fyrri hlutann, en suðlæg átt frekar ríkjandi seinni partinn. Snjókoma var mjög lítil alls staðar og vindur oftast hægur. Hafís barst upp að norðanverðum Vestfjörðum snemma í mánuðinum, en varð ekki landfastur. Marz var framúrskarandi mildur. Hæg austanátt var yíirgnæfandi með úr- konni í meira lagi sunnan lands og austan, en nálægt meðallagi annars staðar. Ef litið er á meðalhitann, kemur það í ljós, að síðan 1929 hefur marz ekki orðið jafn hlýr, en þá var líka meðalhitinn í Reykjavík 6,1 stig. Hiti, °C (í svigum fyrir neðan meðallagið 1931—1960) Scpt. Okt. Nóv. Des. Jan. Febr. Marz Reykjavík 7.9 5.2 1.0 0.8 -0.2 2.0 4.7 (8.6) (4.9) (2.6) (0.9) (- -0.4) (-0.1) (1.5) Akureyri 7.0 4.3 —0.4 -5-1.3 -3.2 -1.5 2.5 (7.8) (3.6) (1.3) (-5-0.5) (- -1.5) (-1.6) (—0.3) Hólar 7.7 4.9 1.7 0.6 -0.2 1.0 4.9 (8.2) (4.9) (2.7) (1.2) (0.3) (0.0) (1.5) 10 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.