Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 31

Veðrið - 01.04.1963, Blaðsíða 31
Rauða tunglið vottar vind, vætan bleiku lilýðir, skíni ný með skærri mynd skírviðri það þýðir. En áður en ég lield áfram að lala um statistisku veðurspárnar ætla ég að fara nokkrum orðum um, hvað liggur til grundvallar venjulegum veðurspám. Á vissum tímum, oft á þriggja til sex tíma fresti, eru gerðar hundruð veður- athugana um allan heim. Þessar athuganir eiga að gefa sem beztar upplýsingar um hreyfingar loftsins, þrýsting þess, liita og raka, allt frá yfirborði jarðar og eins hátt og athugunartækni leyfir á hverjum tírna. Þegar þessi vitneskja er fengin, eru ýmis lögmál aflfræði og hitafræði notuð til að reikna út eða meta veðurskilyrði nokkur dægur fram í tímann. Fljótt á litið virðist þessi aðferð ágæt, og hún er það líka, cn samt er takmörkum bundið, hve nákvæmlega er hægt að segja fyrir um veðrið með hjálp hennar. Ástæðurnar eru ýmsar, og er þar fyrst að geta, að veðurathuganir verða líklega seint nógu margar til að hægt sé að vita nákvæmlega, hvaða veðurskilyrði á að leggja til grundvallar útreikn- ingunum. Önnur ástæða er sú, að cf nota á eðlisfræðilögmál þau til hlítar, er að framan var getið, leiða þau til svo flókinna stærðfræðilíkinga, að þær verða ómeðfærilegar, jafnvel rafeindareiknivélum nútímans. Það verður því að gera þær einfaldari, til að liægt sé að nota þær, en urn leið verða þær ónákvæmari. Síðast en ekki sízt verður að geta þess, að ýmis atriði varðandi notkun fyrr- nefndra cðlisfræðilögmála eru ekki nægilega vel þekkt, eða lítt könnuð. Allt þetta leiðir til ónákvæmni í veðurhorfunum. En þá má spyrja, hvort nauðsynfegt sé að leysa allar þessar flóknu líkingar og þekkja öll náttúrulögmál út í æsar. Daglega leysir náttúran sjálf þær líkingar, er hún sctur frarn í rnargs konar vcðurskilyrðum, og lausnirnar getuin við athugað, þær eru veðrið, sem á eftir fer. Nákvæmlega sama dæmi kernur reyndar ekki fyrir nema einu sinni, en sé citt dæmið mjög líkt öðru, má búast við, að lausnirnar verði líka svipaðar. Ef fyrir hendi eru gamlar veðurathuganir, hclzt í þúsundatali, ætti að vera unnt að fá reglur fyrir, að vissum veðurskilyrðum fylgi önnur ákveðin nokkrum tíma seinna. Með öðrum orðum, gert er ráð fyrir að notfæra sér reynslu liðins tíma á mjög kerfisbundinn hátt. Ég mun nú reyna að lýsa í stuttu máli, hvernig störfum er hagað, þegar statistisk veðurspá er gerð. Hver spá er gerð um aðeins eitt atriði, til dæmis skyggni á ákveðnum flugvelli klukkan níu að kvöldi. Atriði þetta er nefnt prediktand, kalla mætti það veðurþátt á íslenzku. Síðan eru valin nokkur önnur veðuratriði (venjulega eitt til sex), er ætla má, að hafi nokkur áhrif á veður- þáttinn. Þessi síðarnefndu atriði eru nefnd prediktorar, við getum nefnt þau spástuðla.1) Sé veðurþátturinn sá, cr nefndur var hér að ofan, geta spástuðlarnir 1) Orðin veðurþáttur og spástuðull eru notuð liér samkvæmt tillögu Borgþórs H. Jónssonar. Mér hafa dottið í hug orðin vcrðandi og valdandi um þessi atriði, cn ég er ckki ánægður með þau. Hið síðara gcfur til kynna nánara orsakasamband cn rétt er, en hið fyrra bcndir til, að spáin sé alltaf rétt, — cn á því cru að sjálfsögðu liciðarlcgar undantekningar! VEÐRIÐ 29

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.