Vikan - 15.06.1961, Side 2
NToni
auðveldar hárlagninguna
Hárið verður glæsilegt
HÁRIÐ HELDUR SÉR MJÖG VEL MILLI ÞVOITA
^LLAR VILJUM við að hárið
verði eins og það er lagt og
haldist þannig milli þvotta. Ef við
breytum hárgreiðslu, þá þarf
nýja greiðslan að endast vel.
Þess vegna er nauosynlegt að fá
sér perm og það er TONI sem
leysir galdurinn. EVEN-FLO hár-
liðunarvökvinn er það eina, sem
gerir lagninguna auðvelda. Setur
glæsibrag á hárið.
Svo auðvelt. Fylgið aðeins hin-
um einföldustu leiðbeiningum, sem
eru á íslenzku, og hárlagningin
verður fullkomin, og endingargóð.
Gentle fyrir auðliðað hár.
Super fyrir erfitt hár.
Regular fyrir venjulegt hár.
Veljið TONI við yðar hæfi.
Sænsk skýrsla um áfengisvanda-
máliS og konur áfengissjúklinga hef-
ur séð dagsins ljós. Þar segir, að
jafnhliða meðvitaðri og ákveðinni
ósk eiginkonunnar, að lijálpa manni
sínum til að haetta að drekka, sé
h'ka ómeðvituð ósk um að fá hann
til að halda drykkjunni áfram. Höf-
undur þessarar skýrslu heitir Börje
Lövgren og er hann læknir. Hann
bendir á, að konur þessar eru oft
mjög móðurlegar og ráðríkar, auk
þess að hafa tilhneigingar til að
leika pislarvætti. Hann segir það
ekki vera sjaldgæft að konur of-
drykkjumanna skilja við þá, þegar
þeir hætta að drekka. Ennfremur
væri hægt að benda á fjölda dæma,
þar sem slíkar konur giftist aftur
ofdrykkjumönnum, jafnvel oftar en
— I viknbyrjun —
einu sinni. Auk þess segir læknir-
inn, að árásarkenndur kvalalosti í
mörgum sértrúarflokkum og bind-
indishreyfingum stafi af þessari
löngun til að sjá hrasgjarnan með-
borgara sinn í mikilli kvöl og glöt-
un. Þessir aðilar yrðu lítið glaðir,
ef allir hættu að drekka, gengu í
lireyfingu þeirra og væru frelsaðir.
Nokkrir útsjónarsamir náungar
í Japan hafa fengið ókeypis gist-
ingu hjá ríkinu fyrir framtakssemi
sína á sviði frimerkjasöfnunar. Þeir
seldu einföldum sálum fyrstu frí-
merkin frá Mars og græddu nokkr-
ar mihjónir á þvi. Frímerkin þeirra
kváðu hafa verið mjög vel gerð og
ekta í útliti, svo segir að minnsta
kosti í áliti frímerkjahöndlara þar
í landi. Nú sitja þeir sem sagt inni
og er þeim sjálfsagt akkur i því,
þar sem fórnarlömb þeirra ná
ekki til þeirra.
★
Á litlum bar í Englandi hefur
verið komið fyrir mjög árangurs-
ríku eftirliti með sjússunum. Aldrei
hverfur dropi, þó bareigandinn
bregði sér frá augnablik og gest-
irnir geta tekið eins mikið af víni
og þeir vilja. Hann hefur nefnilega
tvær kyrkis'slöngur á barnum hjá
sér. Þær eru ósköp gæfar, segir
eigandinn, en það er ótrúlegt hvað *
þær eru snöggar að þrýsta allt loft
úr mönnum.
★
i
Það eru ekki eingöngu karlmenn,
sem' l»jóða sig fram tii geimferða.
Þar sem Geimferðanefnd Banda-
ríkjanna hafði ákveðið að hafa líka
kvenfólk með, þá barst þeim eftir-
farandi umsókn: Ég hef venjulegt
flugpróf, er fimmtíu kiló á þyngd og
leik þess utan ágætlega á hörpu.
★
Frá Sperior í Wisconsin í Banda-
ríkjunum berast eftirfarandi fréttir:
Sóknarpresturinn Lawrence Dud-
ink, 47 ára gamall er nú kærður
fyrir barnsrán. Málavextir eru þeir,
að hann hvarf á brott með sautján
ára gamalli stúlku, Rosalie 0‘Conn-
el. Hafði hann heimsótt hana á
spítala þar sem hún lá og fékk leyfi
yfiriæknis til að fara með stúlkuna
í bílferð í góða veðrinu. Síðan hefur
ekkert tii þeirra spurst. Það mætti
kannski nefna það, að Rosalie var
stúlka vinsæl sakir glæsilegs útlits.