Vikan - 15.06.1961, Page 33
þeirra hafi sparkaO I þá, dóttir þeirra
hafi rekiO þeim löörung o. s. frv. Enn
aörir eru sifellt hræddir um, að sá,
sem ber þeim mat, hafi sett eitur I
matinn. Auðvitað eru allar þessar á-
sakanir gripnar úr lausu lofti, en
þær geta lika orðið þeim óbærilegar,
sem fyrir þeim verða.
Blekkingin getur einnig lýst sér
þannig, að sjúklingurinn sjái hluti,
sem eru alls ekki til í rauninni. Til
dæmis getur skuggi orðið að holdi
klæddri veru i vitund sjúklingsins.
Sjúklingurinn heldur Því ef til vill
statt og stöðugt fram, að einhver
standi við rúmgaflinn, sem er auð-
vitað mesta fjarstæða. Eða þá að
sjúklingurinn situr á gólfinu og safn-
ar smákvikindum í lítinn kassa, —
og auðvitaö eru Þessi smákvikindi
ekki annað en hugarfóstur hans sjálfs.
Þetta er óþægilegt og jafnvel óhugn-
anlegt fyrir þá, sem umgangast sjúkl-
inginn að staðaldri, því að oftlega
gera þeir sér alls ekki greln fyrir
því, að hann er sjúklingur, sem þarfn-
ast lækningar.
Það er ekki aðeins sjónin, sem
blekkir kölkunarsjúklinga. Þeir eiga
það einnig til að heyra raddir, sem
tala um þá, rægja þá á allan hátt
og brugga þeim jafnvel ægilegustu
launráð.
Sumir sjúklingar fá riðu, — hendur
þeirra skjálfa og stundum höfuðið.
Aðrir eru eirðarlausir og verða alltaf
að hafa eitthvað fyrir stafni. Stund-
um er iðni þeirra beinlínis hjákátleg,
því að hún getur verið í þvi fólgin
að reima skó allan liðlangan daginn
eða annað álíka smávægilegt og til-
gangslaust.
Margir sjúklingar stæra sig af
hreystiverkum sinum, —• einkum á
þetta við um karlmenn. Þeir gera
sjálfa sig að hetju, sem hefur unnið
ótrúlegustu hreystiverk, segja frá
Framhald á bls. 35.
Htnluql.....
og smckklcgh
Hvftir sloppar fyrir’verrl-
unarfólk og starfslið
sjúkrahúsa.
Bómullarskyrtur fyrir
íþrótta- og ferðafólk,
mansjettskyrtur.
Vasaklútar kvenna og
karla úr maco- og bóm-
ullarefnum, auk þess
tyrknesk handklæði.
Mislit’ kjólaefni.!!^]
Framboð vefnaðarvara frá verksmiðjum þýzka Al-
þýðulýðveldisins er furðu fjölskrúðugt.
Þér ættuð aðisjá með eigin augum hve úrval okkar
er mikið."
Útflytjendur:
ITtCMBR INNIM - UNI AUSSINHANDEL TEX ltL
•••14« W • • •■NRSNSTRASSE 4«
DEUTSCHE DEMOCRATISCHE REPU.BLIK
1
Fföl iýtustu myiidavélar heims.
Exakta og Exa myndavélar eru svo meðfærilegar að hver sem
er getur strax tekið á þær ágætar myndir. Exakta myndavélin
hefur m. a. eftirfarandi eiginleika: 29 mismunandi hraða frá
12 sek. til 1/1000 sek., T. og B. Innbyggðan fjarlægðarmæli með
skýrri eða skiptri mynd. Sjálftakara frá 6 sek. til 1/1000 sek.
Sjálfvirkan teljara. Innbyggðan hníf. Horft er í gegnum sömu
linsu og myndin er tekin með. Ilægt er að ráða dýpt myndar-
innar og taka myndir úr augnhæð, eða mittishæð. Hægt er að
nota mismunandi langar linsur og eru þær fáanlegar allt upp
í meters langar. Skipt er um þær með einu handtaki. Mikið úr-
val allskonar aukatækja er einnig fáanlegt.
Einkaumboðsmenn:
G. HELGASON & MELSTED H.F.
Hafnarstræti 19 — Sími 11G44.
Söluumboð:
GLERAUGNAVERZLUNIN OPTIK
Hafnarstræti 18.
VMCAM 33