Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 99
vín&veisla 23
5 FÍNIR KAFFIDRYKKIR
Hin franska Fanny Cloé fell í stafi yfir Íslandi fyrir nokkru og sett-ist í kjölfarið að í Reykjavík. Mats-
eld er ein helsta ástríða Fannyar í lífinu
og á hún ógrynni af spennandi uppskrift-
um í farteskinu til vitnis um það. Þar á
meðal að franskri súkkulaðiköku sem
Fanny segir sannkallaða himnasendingu,
en henni áskotnaðist uppskriftin eftir að
hún tók til starfa sem matselja á kaffihús-
inu Tíu dropum. „Þetta er ótrúlega ljúf-
feng kaka sem er vinsæl í Frakkland enda
kunna allar fjölskyldur þar að búa hana
til,“ segir Fanny og bætir við að kökuna sé
tiltölulega einfalt að gera. „Svo lengi sem
farið er eftir uppskriftinni, sérstaklega
hveitimagninu,“ tekur hún fram og bendir
á að kökuna sé síðan tilvalið að bera fram
með jarðarberjahlaupi og þeyttum rjóma.
Lostæti að hætti Fanny Chloé:
Franskt sælgæti
ÁSTRÍÐA Matseld er ein helsta ástríða hinnar frönsku
Fannyar, sem hefur safnað alls kyns spennandi
uppskriftum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Forhitið ofn í 160° C.
Setjið í pott á lágum
hita:
160 g smjör
120 g sykur
250 g suðusúkku-
laði
Skvetta af vanillu-
dropum
Látið blönduna
bráðna og hrærið
saman. Athugið að
slökkt er á hellunni á
meðan.
Á meðan þetta
bráðnar í róleg-
heitum: Skiljið
fjórar eggjarauður
frá hvítunni, hand
hrærið saman
eggjarhvítunum og
pínulittlum sykri
þar til það þykknar
svolítið. Hrærið svo
rauðurnar í súkkul-
aðið, þegar það er
bráðnað.
Blandið svo varlega
saman súkkulaði
samkrullinu og
eggjahvítunum.
Þegar það hefur
blandast er gott að
setja eins og tvær
matskeiðar eða um
36 g af hveiti saman
við og blanda saman
í höndunum.
Setjið svo blönduna
í um fimm til sex
littlar skálar sem þola
hita. Fyllið þær til
3/4. Passið að bera
fyrst smá formfeiti í
skálarnar.
Kakan mun lyfta sér
í ofni og svo falla
aftur. Bakist við 160°
C í um 25 mínútur.
Hafið hugfast að
kökuna getur verið
gott að hita í 20 til
30 sekúndur áður en
hún borin fram.
Frönsk súkkulaðikaka
Gómsætt
Afríkuskot
Hressandi skot með afrískættuðu
espresso og Amarula til upplífg-
unar.
50 ml espresso
5 ml Amarula
Hellið espresso í staupglas. Hrist-
ið 5 ml af Amarula og hellið ofan
á. Skreytið með rifnum kaffibaun-
um.
Afrískt mokka
Einstök upplifun úr hreinu
súkkulaði og ristuðum
afrískum kaffibaunum með
Amarula-undirtóni.
50 ml bráðið súkkulaði
25 ml Amarula
50 ml espresso
Bræðið súkkulaði ásamt 5 ml af
Amarula og hellið í glas. Bætið
espresso við.
Hristið restina af víninu og bætið
við.
Villt Afro
Afrískar hefðir kallast á við nútímalegt
bragð.
100 ml espresso
50 ml heit vatn
10 ml Amarula og rjómi
(Hlutföll eftir smekk)
Hellið kaffi í botninn á fallegu glasi.
Bætið heitu vatni út í. Setjið síðan létt-
þeyttan Amarula-rjóma efst. Skreytið
með rifnum kaffibaunum.
Beautiful People
Drykkur sem bráðnar í munni.
275 ml ískaffi
50 ml Amarula
5 ml Amarula á toppin
Hellið kaffi í glas. Hristið Amarula
og bætið ofan á. Borið fram frosið og
toppað með 5 ml af Amarula. Skreytt með
kaffibaunum.
Eftirlæti fílsins
Ljúffeng kaffiblanda með fló-
aðri mjólk fyrir sannkallaða
nautnaseggi.
50 ml espresso
25 ml amarula
150 ml mjólk
Flóið saman mjólk og
Amarula og hellið yfir
nýlagað kaffið.
Það er ákveðin athöfn að gæða sér á ljúffengum kaffidrykk og fá bæði yl og orku í kroppinn.
Margir gera sér sérstaka ferð á kaffihús til að fá sér
uppáhaldsbollann með uppáhaldsblaðinu en svip-
aða stemningu er hægt að skapa við eldhúsborðið
eða í stofunni heima. Við sérstök tilefni er svo hægt
að skerpa á drykknum með Amarula-rjómalíkjör,
sem er einn sá vinsælasti í heimi.