Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 122

Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 122
66 12. desember 2009 LAUGARDAGUR „Við fjölskyldan í Knarrarholti höfum alltaf ferðast mikið á fjöll og höfðum alls ekki í hyggju að hætta því þó að fleiri bættust í hópinn,“ segir Atli Eggertsson til útskýringar á því af hverju hann lagðist í það stóra verkefni að breyta fimm dyra 4Runner-jeppa í sjö dyra ofurjeppa á 44 tommu dekkjum. Fimm barna faðir Atli á von á sínu fimmta barni á allra næstu dögum en á fyrir fjóra drengi: tíu ára, sjö ára og tveggja og hálfs árs tvíbura. Þegar hann frétti af viðbótinni sá hann enn meiri ástæðu til að leggjast í meiriháttar breytingar á bílnum sínum enda eru fáir jeppar á mark- aðnum sem rúma bæði sjö manna fjölskyldu og farangur með góðu móti. „Reyndar var gamli bíllinn okkar með sjö sætum en tvö þeirra voru aftast í skotti. Það var orðið þannig að þegar ferðahópurinn stoppaði einhvers staðar til að fá sér kaffisopa vorum við passlega búin að tína börnin út úr bíln- um þegar hinir voru að leggja af stað aftur,“ segir hann og hlær. „Draumur okkar var því að eiga bíl með dyr fyrir hvern og einn þannig að hægt væri að stoppa, ryðja öllum út og svo inn aftur.“ Engin geimvísindi Verklegar framkvæmdir við smíði LongRunner hófust í lok febrúar á þessu ári. „Þá var ég hins vegar búinn að teikna þetta allt saman upp í Autocat og gera mér grein fyrir öllum þeim vandamálum sem gætu komið upp. Ég var líka búinn að smíða frumgerð af hurðum þannig að þegar ég fór loks í verkið var öll hönnunarvinna búin og ekk- ert kom á óvart,“ segir Atli, sem er búfræðingur og vélfræðingur að mennt. „Ég hef verið að grautast í bílum frá því ég var unglingur. Þetta eru nú engin geimvísindi,“ segir hann og bætir við að fyrir sig að smíða bíl sé svipað og fyrir smið að smíða sér hús. Bíllinn er samsettur úr nokkr- um líffæragjöfum eins og Atli kallar það. Grindin er úr gamla 4Runnerbíl fjölskyldunnar, dísil- vélin úr LandCruiser og boddíið er samansett úr tveimur 4Runn- er-bifreiðum. Atli byrjaði á því að smíða boddíið en endaði á því að taka grindina undan bílnum sínum og lengja hana. „Við tímd- um ekki að vera jeppalaus í lengri tíma þannig að við ákváðum að gera þetta svona,“ segir hann en síðasta ferðin á 4Runner var farin um hvítasunnuhelgina. „Á þriðju- deginum var farið í að taka boddí- ið af grindinni, lengja grindina og setja nýja boddíið á grindina.“ Myndaður á ljósum Atli hafði dundað sér við þetta stóra verkefni um helgar fram í miðjan maí, þegar hann tók sér frí út júní og einbeitti sér alfar- ið að bílasmíðinni. „Strax 4. júlí fórum við svo í sumarfrí á bílnum og síðan höfum við ekið fimmtán þúsund kílómetra, bæði í sumar og svo nokkrar ferðir í haust,“ segir Atli og telur bílinn hafa reynst feikivel. „Hann er mjúkur og þægilegur og Linda konan mín notar hann í vinnuna dags dag- lega. Svo er algjör munur að vera með svona margar dyr,“ segir Atli og bætir við að þrátt fyrir mikla notkun hafi engir sjúkdómar komið upp í bílnum. Hinn óvenjulangi jeppi á risa- dekkjum fær mikla athygli að sögn Atla. „Þá sjaldan að maður kemur á bílnum til Reykjavíkur er alltaf einhver sem tekur mynd af honum á ljósum,“ segir hann og hlær. LongRunner-jeppinn varð til úr nokkrum líffæragjöfum Atli Eggertsson, búfræðingur og vélfræðingur, fékk þá stórsnjöllu hugmynd að lengja jeppann sinn þegar ljóst varð að fimmta barnið væri á leiðinni. Sólveig Gísladóttir fékk að heyra hvernig 4Runner-jeppi breyttist í LongRunner á fjórum mánuðum. FJÖLSKYLDAN Á GÓÐRI STUNDU Tvíburarnir Högni Jökull og Ásgeir Jaki, tveggja og hálfs árs, og bróðir þeirra Hrannar Örn sem er sjö ára, leika sér í sandinum á ferðalagi fjölskyldunnar að Hlöðufelli. Linda Ósk Högna- dóttir, kona Atla, hallar sér upp að hinum trygga ferðafélaga LongRunner. Á myndina vantar son Atla, Arnþór Ósmann, en bílasmiðurinn sjálfur er á bak við myndavélina. MYND/ÚR EINKASAFNI NÓG PLÁSS Vel fer um öll börnin í nýja bílnum. Í JÖKULSÁRLÓNI LongRunner hefur reynst einstaklega vel í fjallaferðum. GRINDIN SKORIN Atli notaði grindina úr gamla 4Runner-jeppanum sínum. SAMSETNING Nýja boddíið sett á lengdu grindina. Vélin kom svo úr LandCruiser. KOMIN MYND Búið að sjóða saman boddíið úr tveimur bílum. EINS OG NÝR Búið að sprauta boddíið og komið heim í hlað. Á LEIÐ Í SPRAUTUN Gamli 4Runner teymir þann nýja í sprautun. SPRAUTAÐ Atli sprautar hurðirnar sex.TVEIR AÐ EINUM Atli byrjaði á að finna framenda og afturenda af tveimur bílum. FYRIR BREYTINGAR 4Runner-bifreiðin nýttist vel í fjölmörgum fjallaferðum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.