Vikan - 31.08.1961, Qupperneq 35
Grænmetis-skeri 'meö
3 hnífum.
Ávaxta-þeytari.
Rjóma-ís-þeytari.
Ávaxtapressa.
L s
WrtiMMXX»XX!0é
■
■■: ■
'
Wi
Iw
ýýifíííw
STARMIX er ný tegund og ein fullkomnasta hræri-
vélin sem er á markaðnum. — STARMIX er
Vestur-Þýzk framleiðsla.
Valafell
Garðastræti 2. — Sími 16976.
sannfærast um það, að liinn ó-
sýnilegi veggur, sem hafði aðskilið
þær i sex mánuði, var horfinn og
hún hafði öðlazt einlæga vináttu
unga leigjandans sins. Og það, sem
var enn mikilvægara: Leiðir hennar
og Dons mundu aftur liggja saman.
Strax að skrúðgöngunni lokinni
ætlaði hún að leita hann uppi og
sættast við hann, skemmta sér upp
á kraft og sýna honum, að hún
væri enn þá sama stúlkan sem
hann varð ástfanginn af.
— Komdu, Tony, sagði hún
hlæjandi. Við skulum gera þetta
kvöíd ógleymanlegt. Hún gat ekki
frestað því lengur að fara yfir
brúna. ★
HÚS OG HÚSBÚNAÐIJR
Framh. af bls. 15.
vegna getum við varla byggt eins
og þeir i Kaliforniu, þar sem
snjór, úrkoma og kuldi eru þættir,
sem tæpast þarf að taka með í
reikninginn. Mér hefur virzt, að
ameriskir arkítektar kappkosti að
hafa einbýlishús sem allra lægst,
séu þau á annað borð byggð í
nútimastíl. Þeir hafa oft langar
álmur út úr sjálfu aðalhúsinu, til
þess að víðátta eða öllu heldur
breidd hússins verði sem mest.
Það mundi kosta of fjár að ein-
angra slíkar byggingar hér á landi,
og við verðum að kappkosta að
hafa húsið sem mest i einum
kjarna af hagkvæmum ástæðum.
Það þýðir samt ekki, að við þurf-
um að gefa þennan skemmtilega
stíl upp á bátinn, en við verðum
aðeins að hafa tilfinningu fyrir
honum og forðast að blanda saman
við hann hlutum, sem koma honum
ekki við og eru einungis til lýta
og kostnaðarauka. G.
HÚÐSN YRTIN G
Framh. af bls. 16
Þegar þið berið krem á andlitið,
ættuð þið að muna eftir, að um leið
getið þið gefið húðinni létt nudd.
Nudd er mjög hressandi fyrir húð-
ina. Það eykiur blóðrásina, gerir
húðina sléttari og mýkri og kemur
í veg fyrir hrukkur.
Með fingurgómunum berið þið
kremið á frá axlarbeinum að höku.
Klappið á hökuna með vísifingri og
löngutöng, það hjálpar til að halda
unglegu formi hennar.
Klappið létt og varlega hring í
kringum augun, inn eftir augnalok-
unum, að nefi og undir augun. Tak-
ið dálitið fastar á frá munnvikum
upp að augnkrókum. Ef þið getið séð
af tíu mlnútum i þessa „nuddklöpp-
un,“ jiá hjálpar það mikið. Þetta er
einnig góð aðferð til að koma i veg
fyrir hrukkurnar, en þið verðið að
gæta þess að nota nógu mikið af
kremi, svo að fingurnir renni létti-
lega. Það má fyrir alla muni ekki
teygja á húðinni.
Til að sigrast á ennishrukkunum
er gott að byrja efst á nefinu og
hreyfa fingurna upp að hársverðin-
um. Munið, að allar hreyfingarnar
verða að vera upp á við til að vinna
á móti tilhneigingum slappra and-
litsvöðva.
Auðvelt er að sjá af myndunum,
hvernig bezt er að nudda andlitið.
En það væri fróðlegt að tala dálítið
um orsakir fyrir óhreinindum og
hrukkum í húðinni.
Hrukkurnar myndast vegna þess,
að fitulagið undir húðinni hverfur.
Það getur vtírið sjúkdómi að kenna,
en margir hjáipa til með þvi að
jiurrka andlit og háls of harkalega,
þegar þeir þvb sér. Margir nudda
og nudda og við það teygist húðin.
Það gr erfitt að fjarlægja hrukkur,
sem einu sinni hafa myndazt. En
það má gera jiær minni og mýkri
með reglulegu „nuddklappi.“
Margir eiga einnig í vandræðum
með óhreinindi i húðinni. Þessir
litlu, svörtu dílar i húðinni eru i
raun og veru stíflaðir fitukirtlar.
Ofan á þá leggjast svo óhreinindi,
þannig að efsti hluti fitukirtilsins
verður svartur.
Gott ráð við þessum húðormum
er gufubað, því að hitinii fær holuna
til að vikka, og með sápu og bursta
er unnt að losna við marga af jiess-
um svörtu dílum. En annars eru
margar aðrar aðferðir, t.d. að þvo
andlitið upp úr kamfóruvatni eða
brennisteinsvatni. Venjuleg andlits-
gríma fyrir feita húð hjálpar líka
búnar grímur í snyrtivöruverzlun-
um, og þær fást fyrir allar húðteg-
undir. Ef þið t.d. notið andlitsgrímu
einu sinni í viku, eftir að þið hafið
hreinsað og nuddað húðina vel,
munuð þið áreiðanlega geta glaðzt
af hreinni og fallegri húð. Þegar
slíkar grlmur eru notaðar, verður
að muna að bera þær ekki alveg
upp undir augu, því að þar er húðin
fingerðari en annars staðar í and-
litinu, þannig að hrukkurnar munu
bara koma enn greinilegar í ijós,
jiegar griman er tekin af; en það
á bara við þessar fíngerðu hrukkur
í kringum augun.
Þá eru margar konur, sem þjást af
hárvexti í andlitinu. í snyrtivöru-
verzlunum má fá sérstök krem, sem
fjariægja hárið. Þessi krem fjar-
lægja ekki hársrótina, og ef hár-
vöxturinn er mjög mikill, er raf-
magnsmeðhandlun aUra bezt.
Hvað sem þið gerið við húðina
og hvað sem þið hugsið vel um hana
og hvað sem þið fylgið vel öllum
ráðum, sem jnð fáið, þá verður hún
aldrei svo falleg, að þið þurfið ekki
einhverja málningu. Svo til engin
kona hefur svo fallega húð, að hún
geti ekki gert hana enn fallegri með
dálítilli málningu. En engin málning
verður vel heppnuð, ef grundvöllur-
inn er ekki i lagi, og þess vegna er
æskilegt að eyða nokkrum mínútum
daglega í húðsnyrtingu. Og munið,
að þessi ráð gilda ekki einungis um
húðina í andlitinu, heldur einnig
★
mikið til.
Andlitsgrimur hafa allar hress-u.
andi áhrif á húðjna, Kaupa má til-*ú handleggjum og öxlum.
VI<AN 35