Vikan


Vikan - 31.08.1961, Blaðsíða 39

Vikan - 31.08.1961, Blaðsíða 39
tryggi sér aðstöðu og áhrif með xukinni hlutdeild, í þjóðarbú- skapnum og ihlutunarrétti um rekstur atvinnuvega og fyrir- tækja en að fela misvitrum og duttlungafullum stjórnmála- leiðtogum forsjá mála sinna. Viðhorfin eru allt önnur nú en á árunum milli heimsstyrj- dldanna, en verkalýðshreyfingin hefur ekki fylgzt með þróuninni eins og skyldí. Raunar er sökin fleiri aðila, en samt sér í lagi hennar. Hlutverk sérsambanda. Verkálýðshreyfingin íslenzka átti drjúgan þátt í síðustu kjör- dœmábreytingu, en hins vegar láist henni að fœra út verksvið sjálfrar sín. Sú þróun á enn langt i land hér, að sambærileg verka- lýðsfélög stofni sérsambönd og færi þannig til heildar dreifða starfskrafta og sundurleitt skipulag. Váldhafarnir í Alþýðu- sambandi Islands virðast þessari breytingu andvígir, en sú afstaða hlýtur að vera af annarlegum hvötum syrottin. Óumdeilanlegt er, að sérsamböndin komi til með að hafa mikilvægu hlutverki að gegna. Þeim verður sýnu auð- veldara að samræma kaup og kjör og skipuleggja állt innra starf en mörgum smáfélögum. Rökin fyrir stærri kjördæmum eiga hér við í rikum mæli. For- ingjar verkálýðshreyfingarinnar beittu þeim mœtavel á landsvísu, en hafna þeim heima fyrir. Sú tregða er naumast einleikin. Fjórðungssamböndin eru að sönnu spor í rétta átt, en betur má, ef duga skál. Skipulagi vei'kalýðshreyfingarinnar þarf að koma í það horf, að vinnu- deilur og verkföll hafi hér ekki svipuð áhrif og blóðtappi í mannslíkama. En sá árangur fæst ekki fyrirhafnarlaust. Og þetta er alls ekki einkamál verkalýðsfélaganna eða forystu- rnanna þeirra — heldur þjóðmál. Úrelt regla. Leiðtogar verkálýðshreyfing- arinnar hafa átt mikinn og góð- an þátt i því að tryggja rétt minnihlutans í stjórnmálábarátt- ■unni, enda hefur hann iðulega komið þeim að góðu gagni. Ýrnsir þeirra sitja á álþingi og í sveitastjórnum kjörnir hlutfálls- kosningum. Eigi að síður ríg- heldur verkálýðshreyfingin í kosningafyrirkomúlag, sem hef- ur dæmzt óhæft á öðrum sviðum þjóölífsins. Og sannteöcurinn er ^OZIEWOW < hnakkaspennan Fyrr á öldum vaíði austurlenzka konan hár sitt upp á frumlegan og listrænan hátt. Nútíma konan hefur næmt auga fyrir kvenlegri hárnsyrtingu, og hefur þvi tileinkað sér fegurstu hárgreiðslur eldri kynslóða -— jjgmeð Suzie Wong hnakkaspennunni. Spennurnar fást l mörgum geröum og litum í snyrtivöruverslunum og víöar. EINKAUMBOÐ: H. A. Tuliiiius

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.