Vikan


Vikan - 31.08.1961, Blaðsíða 9

Vikan - 31.08.1961, Blaðsíða 9
Stunduin er boðað til verkfalla af ærnum ástæðum eins og til dæmis s.l. vor. En stundum virðast verkföll framin af annarlegum hvötum og þá verður baksvipur blessaðra verkamannanna von- leysislegur. að þeim er bágt ráð að kenna. En væri það valdníðsla, að dlþingi setti lög um heildarsamninga til þess að tryggja, að sá liáttur komist hér á og sæti svip- aðri reynslu og fengizt hefur í þeim ríkjum Vesturlanda, þar sem tekizt hafa skást samskipti atvinnurekenda og vinnuþiggjenda? Ríkisvaldið á hér svo míláð í húfi, að það getur varla látið fyrirkomúlag þessara mfila af- skiptalaust. Fjölmenn og auðug þjöðfélög gera sérstákar ráðstafanir tíl þess að verjast áföllum af hæpnum vinnudeilum og verkföllum. Einræðisriki banna slíkan háskaleik skilyrðislaust. Væri þá að ástæðulausu, að Islendingar reyndu minnsta kosti það úrrœði, sem hér er á bent? Höfum við efni á þvi að kasta milljónatugum í hit vinnudeilna og verkfalla á nokkurra ára fresti? Spurn- ingarnar krefjast vissulega svars, því að ástandið fer síversnandi. Þjóðin hlýt- ur að ætlast tíl þess af alþingi og ríkis- valdi, að þeim verði svarað. Þrotlaust kapphlaup. Meginkostur heildarsamninga er sá, að þannig er unnt að tryggja eitthvert launasamræmi milli þjóðfélagsstétt- anna. Engu sliku verður við komið eins og nú er högum háttað á Islandi, og afleiðingin er þrotlaust kapphlaup, þar sem einn vill ryðjast fram úr öðrum og ekkert endamark kemur í leitirnar. Lægst launuðu starfsgreinar þjóðfé- lagsins fá naumast svo kjarabót, að ekki sé gert betur við þá, sem borið hafa miklu meira úr býtum. Dagsbrún- armenn i Reykjavík háðu í sumar minn- isstætt verkfall. Allir luku upp einum munni um að bæta þyrfti kjör þeirra, en samkomulagið kostaði hins vegar langa og tvisýna baráttu. Þá fóru iðn- aðarmenn á stúfana. Flestir bjuggust við, að þeir hlytu að una sömu kjarabót og Dagsbrúnarmenn höfðu fengið með stórsögulegum eftirgangsmunum. Hver varð svo raunin? Iðnaðarmenn hrepptu baráttulaust að kalla launáhækkun, sem er hlutfallslega drjúgum meiri en striðsgróði Dagsbrúnar. Þannig héldur svikamyllan áfram að mála þangað til samræmi kemur í stað handáhófs og skipulag leysir öngþveiti af hólmi. Vinnufriður er óþekkt hugtak í landi, þar sem rikir ófremdarástand á borð við þessi ósköp, nauðsynlegum efnáhagsráðstöfunum verður ekki við komið og verðbólga og dýrtíð leika lausum hála. Samt draga Islendingar þrjá fiska úr sjó, þegar þegnar annarra þjóða þykjast góðir að veiða einn, og svip- uð hlutföll gilda um önnur vinnuafköst. Hér tíðkast að sönnu óhófleg eyðsla á mælikvarða smárikis, skrifstofubáknið er skelfilegt og þeir aJlt of margir, sem gera sér einhvers konar þjónustu að atvinnu, svo að ekki sé minnzt á iðjuleysingjana, sem hafa þó gíruga matarlyst. Eigi að síð- ur munu vinnudeilurnar og verkföllin ann- ars vegar og ósamræmi launa og verð- lags hins vegar ráða mestu um þau vand- ræði, sem steðja að íslenzkum þjóðarbú- skap. En við káfum á bólgunni og strjúk- um eymslin i stað þess að skera í meinið. Hlutur stjórnarandstöðunnar. Upptálningunni er síður en svo lokið: Megingálli stjórnarfars okkar nú er háttarlag minnihlutans, sem kállast stjórn- arandstaða. Hún man ekkert af þvi, sem var afstaða hennar á váldastólum, en ger- breytir um stefnu, segir hvitt svart og svart hvitt og virðist ekki finna til neinn- ar ábyrgðariilfinningar. Úrræði hennar i fjandskapnum við meirihlutann og ríkis- váldið er löngum eitt og sama: Hún efnir til verkfáUa, gerir með skömmu millibili eitt smáfélagið af öðru út til skæruhern- aðar og reynir þannig að stofna afkomu og atvinnuvegum þjóðarinnar i tvisýnu. Og þetta er þvi aðeins hægt, að hér gilda ekki heildarsamningar um kaup og kjör eins og í öðrum siðmenningarlöndum. Óneitanlega er illa farið, að islenzkir stjórnmálaflokkar skuli ekki þola að lenda í stjórnarandstöðu án þess að verða að viðundri. En þetta myndi sennilega skána af sjálfu sér, ef heildarsamningar réðu bót á vandræðaástandi vinnudeilnanna og verkfállanna. Það væri mikils virði, því að stjórnarandstaðan fer með ærið hlut- verk í lýðræðisþjóðfélagi nútímans. Þess vegna er ábyrgðarleysi að freista hennar til yfirsjóna og glappaskota. Fíknin í sérréttindi. Skipúlagsleysi kjarasamninganna leiðir enn fremur til þess, að nokkrir menn í smá- félögum láta sér til hugar koma, að þeir geti leyft sér að heimta sérréttindi, sem áldrei gœtu orðið sjónarmið heildar. Hér Framhald á bls. 38. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.