Vikan - 07.09.1961, Síða 29
TRITON blöndunarlæki
JVý gerð blönd-
unartækja inn-
byggð í vegg,
fyrir baðkör
sturtur og
handlaug-
ar.
Fyrir handlaugar.
Triton-Belco blönd-
unartækin eru vestur-
þýzk úrvalsframleiðsla
sem hefur tryggt sér
öruggan sess á heims-
markaðnum, enda upp-
fyllir Triton ströng-
ustu kröfur, sem skap-
ast vegna hinna öru
breytinga á húsakosti
og hýbílaprýði.
*
Einnig ýmsar aðrar
gerðir krana og blönd-
unartækja fyrir böð og
eldhús.
Fyrir baðkör og sturtur.
EINKAUMBOÐ:
Sighvatur Einarsson & Co.
SKIPHOLTI 16. — SÍMAR: 24163 — 24127.
k
II
T 'i
’HUPna p
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Svo virSist
sem vel muni ganga í öllu, sem snertir peninga
í vikunni, og líklega berst þér óvænt gjöf. En
þú munt enn fremur eyða talsvert miklu, og oft
muntu fara fullósparlega með peningana. En þú
mátt svo sem viS því þessa dagana Þú hefur átt í deilu við
'félaga þinn undanfarið, en nú leysist þessi deila mjög óvænt.
_____ NautsmerkiÖ (21. apr.—21 maí): Þú skalt ekki
flýta þér um of í vikunni, því að fljótfærni þín
gæti komið þér illilega i koll. Það verða gerðar
talsverðar kröfur til þín í vikunni, og líklega
muntu standast flestar. Einhvern veginn atvik-
’ast það, að áform þín varðandi þessa og næstu vikur hreyt-
ast, og er það vel.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Það verður
létt af þér þungu fargi í vikunni fyrir tilstilli fé-
laga þinna, og mundu nú að sýna þeim, að
kunnir að meta greiðvikni þeirra. Þú skalt
fara að öllu með gát i umferðinni, — þar
biða þín margar hættur, þótt ekki séu þær háalvarlegar.
Þúferð i samkvæmi i vikunni.
Krabbamerkið (22. júní—23 júlí): Vandamál, sem
valdið hefur þér einhverjum áhyggjum, mun nú
leysast næstum af sjálfu sér. Yfirleitt verður
þetta skemmtileg vika. Listrænir hæfileikar þínir
fá mjög að njóta sin i vikunni. Maður, sem þú
þekkir litið sem ekki neitt, mun koma talsvert við sögu
þina í þessari viku og hinni næstu.
LjónsmerkiÖ (24. júlí—23 ág.): Það verður treg-
lega lesið margt úr stjörnunum i þessari viku
vegna annarlegrar afstöðu þeirra, hvað Ljóns-
merkið snertir. Þó virðist illt umtal geta snert
þig talsvert. Gættu því tungu þinnar, — enda
þótt ekkert bendi sérlega til þess, að þetta illa umtal stafi
•frá þér.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept): Það ríkir ein-
hver óvissa yfir allri þessari viku, og Þú munt
eiga erfitt með að taka fastar ákvarðanir. Þú
hefur komið illa fram gagnvart einhverjum í
fjölskyldunni, og nú verður þú að stiga fyrsta
skrefið í samningsátt, ef ekki á að fara illa. Mundu, hverju
þú lofaðir í vikunni sem leið! Heillatala kvenna 5, karla 3.
Vogarmerkiö (24 sept.—23. okt): Þú virðist
ekki nógu einlægur i framkomu Þinni gagnvart
félögum þínum þessa dagana. einkum þó gagn-
vart ástvini þinum. Þú ert orðinn háðskur og
kaldhæðinn, og veiztu víst bezt. af hverju það
stafar. Þetta er alröng framkoma, því að þú skaðar mest
sjálfan þig með slíkri framkomu.
DrekamerkiÖ (24. okt.'—22. nóv.): Með smá-
kænsku getur þú hagnazt vel á viðskiptum við
mann, sem þér er ekkert sérlega vel við. Hann
hefur áður leikið þig grátt, svo að saklaus hefni-
girni ætti ekki að skaða neinn. Vertu helzt
heima við á miðvikudagskvöldið Þú gætir ellegar misst af
gullvægu tækifæri, sem þér býðst aldrei oftar. Helgin verð-
ur dálítið óvenjuleg.
Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Þú hefur allt
á hornum þér undanfarið og haft það á tilfinn-
ingunni, að allir væru upp á móti Þér, — sem
er auðvitað mesta fjarstæða. E’itthvað verður
samt til þess að bæta skapið í þessari viku. Bréfa-
skriftir og símtöl geta skipt þig afar miklu, ekki sízt bréfa-
skriftir til útlanda.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Þú munt eiga
mjög annrikt i vikunni, og Þú skalt engan veg-
inn treysta þvi, að einhver komi þér að liði.
Eftir unnið verk munt þú fyllast aukinni trú á
sjálfan þig. Þú ferð talsvert mikið út að skemmta
þér í vikunni. Varastu samt að neyta áfengra drykkja nema
5 hófi. Miðvikudagurinn er mikilvægur dagur.
Vatnsberamerkiö (21. jan,—19. feb.): Þú verður
fyrir miklum utanaðkomandi áhrifum í vikunni,
og þarftu ekki neinu að kvíða, því að yfirleitt
verða þau áhrif jákvæð. Þó skaltu ekki láta
segja þér fyrir verkum, hvað öll peningamál
snertir. Þér mun verða kómið þægilega á óvart á fimmtu-
dag eða föstudag.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þér berst
freistandi tilboð í vikunni, en stjörnurnar vilja
benda þér á, að tilboðið er ekki eins girnilegt og
virðist í fljótu bragði. Hugsaðu þig þvi rækilega
um, áður en þú aðhefst nokkuð. Einhver deila
rís upp í fjölskyldunni, en úr því rætist, áður en varir.
Sunnudagurinn er sá dagur, sem skiptir framtíð þína mestu
%