Vikan - 07.09.1961, Page 43
\
Austur
1 spaði
pass
pass
Suður
pass
2 grönd
pass
Vestur
pass
pass
pass
Norður
2 hjörtu
3 Krönd
Útspil: Spaðafjarki.
í spilinu hér að ofan kemur fyrir
falleg varnarspilamennska, sem ])ví
miður er alltof sjaldan athuguð.
Austur og vestur voru lcunnir
bandariskir stórmeistarar, sem
sýndu eftirminnilega að þeir eru
engin lömb að leika sér við.
Vestur átti of veik spil til þess
að halda opnu og norður og suður
voru fljótir að komast í þrjú grönd.
Þau hefðu ifka unnizt, ef austur
liefði ekki verið á verði í fyrsta slag
og vestur öðrum.
„Þriðja hönd hátt“ er venjuleg-
asta reglan í varnarspili, en í þessu
tilfelli sá austur, að sú regla myndi
duga skammt. Ef hann léti drottn-
inguna í fyrsta slag, gæfi suður slag-
inn. Síðan dræpi hann á gosann í
næsta slag og þá gæti vestur ekki
spilað, jafnvel þó að hann kæmist
inn. Þetta myndi gefa sagnhafa tirna
til þess að sækja sér laufslag, se:n
myndi ásamt fimrn slögum á tígul,
tveimur á spaða og hjartaás nægja
til vinnings.
Austur lét því einfaldlega tíuna i
fyrsta slag. Sagnhafi varð að drepa
til þess að tapa ekki slag og hann
spilaði strax laufi á gosann til þess
að reyna að stela sér níunda slagn-
um. Nú var komið að vestri að syna
snilldina. Hann stakk upp laufakóng
og spilaði spaða. Austur lét droÞn-
inguna og fríaði þar með litinn sinn
og átti laufásinn sem innkomu. Og
nú var sama hvernig sagnhafi spil-
aði, þvi ómögulegt var að vinna
spiíið.
Hefði austur látið hátt 1 fyrsta
spaðaslaginn og haldið áfram með
litinn, þegar sagnhafi gaf, þá var
vestur orðinn spaðalaus og þvi þýð-
ingarfaust fyrir hann að reyna að
vernda laufainnkomu félaga sins
með þvi að drepa strax á kónginn.
Spilið er þá unnið, hvernig sem
vörnin er spiluð.
Það skiptir oft meira máli, hvenær
þú drepur slag, heldur en hvort þú
getur drepið hann. Vertu elcki
hræddur við að láta andstæðingana
fá ódýran slag, ef þú með því heid-
ur opnum samgangi við félaga þinn.
Herra draumaráðningamaður.
Mig iangar til að biðja þig að
ráða draum fyrir mig. Mér fannst,
sem kæmi inn til mín stúlka, sem
sýndi mér tvo gullhringa á baug-
fingri, var annar steinhringur en
hinn trúlofunarhringur. Mér fannst
hún segja að sonur minn hefði gefið
sér hringana og nú væru þau trú-
lofuð, síðan gengur hún til mín og
kyssir mig. Draumurinn var nú ekki
lengri, en það má bæta því við að
þau hafa verið saman í nokkra
mánuði, þessi stúlka og sonur minn.
Með fyrirfram þökk,
Fróðleiksfús móðir.
Svar til Fróðleiksfúsrar móður.
Ég mundi túlka þennan draum
nákvæmlega eins og hann birtist
þér. Tveir hringir á baugfingri
gefa til kynna trúlofun og síðar
giftingu, kossinn í draumnum gef-
ur til kynna mjög gott samkomu-
lag milli ykkar.
Kæri Draumaráðandi.
Mig dreymdi að þekkt skip hér á
landi væri í hættu komið. Það var
að fara af stað úr höfn á Breiðafirði
og var skipið mikið hlaðið og skol-
aði öllu útbirðis, sem á dekki var
og leki kom að því. Á þessu skipi
var piltur, sem mér fannst óg kann-
ast við og tókú foreldrar minir
þennan pilt. Síðar náðist gott sam-
band mifli mín og hans.
Hulda Sverrisdóttir.
Svar til Huldu Sverrisdóttur.
Að sjá skip farast eins og
draumur þessi bendir til merkir
vonbrigði og sorg. Hins vegar
spretta upp af þeim atvikum
hlutir, sem þú munt verða mjög
ánægð með. Það þarf ekki nauð-
synlega að vera á ástasviðinu.
-VsM-SSyY//////A
ysy/s/v/CwyX’
Imgluggar fyrir verzlan-
ir og skrifstofubyggingar í
ýmsum litum og formum.
Málmgluggar fyrir verk-
smiöiubyggingar, gróður-
hus, bílskúra o fl.
/ZZ7
MaLMGLUGGAR w
Lækjargötu, Hafnarfirði. — Sími 50022.
VIKAN.
43
11
Nýtt útlit
Nú tækni
& A-G-9
V G
$ D-G-10-8-5
D-10-6-2
Allir utan hættu. Austur gefur.
* 7-6-5
A-10-9-8-6
$ A-K-4
G-3
A
V
K-9-8-T-4
*
K-D-10-8-3
K-D-7
9-3-2
A-5