Vikan


Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 3

Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 3
' ';. -0' '■'. .. ; 'K?í ■' ■•■'■': . Ritstjúrn, 08 auK^Kor^SkipJioUl ..■**' . **«*’ *’ ' ' ’áVs: '' N, Útgcfandi: VIKAN ií.F. RitBtjóri: Gíali 8igurBsnon (ábm.) Anglýslnguítjóri: JóhBnnes Jörundssoh. FramkTtcmdastjóri: Hilmar A. Kristjénsson. / næsta blaði verður m. a.: * Spurning Vikunnar: Teljið þér rétt að stuðla að þvi, að út- lendir menn gerist íslenzkir ríkisborgar og öllum þjóðflokkum yrði gefin jöfn aðstaða til að setjast hér að? Átta menn svara. * Konur eru rómantízkar. Smásaga eftir Simon Alvar. * íslenzkur forstjóri á Langasandi. Raett vi(S Sverri Runólfsson, sem fluttist til Langasands fyrir sextán árum og á þar blómlegt fyrirtæki. * Friðill í strompinum. Furðuleg saga, sem byggð er á skýrslu frá lögreglunni í Stokkhólmi. * í fullri alvöru: Að minnast einnig þess, sem vel er gert. * Perlufesti glerbrúðunnar. Smásaga eftir Valborgu Bentsdóttur. * Síðasti þáttur verðlaunakeppninnar. Keppt um þriðja transistor-útvarpstækið. * Maðurinn, höfuðvandamál sjálfs sín. Grein eftir dr. Matthías Jónsson. * Vikan og tæknin, hjónakornin, æskan og lífið, fólk á förnum vegi, pósturinn, draumráðningaþátturinn, krossgáta, ungfrú Yndisfrlð, bridgaþáttur, skákjþáttur, myndasögur og aðrir fastir þættir eins og venjulega. gilt ráð væri unnt að gefa við þessu. Þetta stafaði oft af hor- mónaskorti, — en auk þess gæti þetta stafað af skyndilegum vexti og gæti því smátt og smátt breytzt til batnaðar. Það sakar sem sagt síður en svo fyrir þessar ungfrúr að leita ráða læknis, og getur pósturinn því miður ekki gert annað en samhryggjast þessum döpru dömum. Þið hefðuð átt að vera upp á ykkar bezta um 1930, þegar flatt brjóst var einungis fegurðarauki. Kannski kemst þetta aftur í tízku, áður en varir. Og enn eitt: Það þarf engin að skammast sín fyrir að nota gervi- brjóst, Síástfangin ... Kæra Vika. Ég ætla að byrja að þakka þér fyrir allt gamalt og gott og sérstak- lega fyrir framlialdssöguna Ungl- ingar á glapstigum. Og nú langar mig til að spyrja þig nm dálitið. Ég er sextán ára og þokkalega útlitandi, held ég. Ég fer mikið út að skemmta mér og er oft með strákum. En það er einhvern veginn svoleiðis með mig, að ég er alltaf að verða ástfangin, en ég er það bara svo stutt í einu. Ég verð kannski bálskotin í strák i svona viku, og svo er allt búið, og ég vil ekki sjá hann. Mér finnst þetta voða leiðinlegt, því að ég var nú að gera mér vonir um að geta elskað eiginmanninn minn( hvenær sem ég eignast hann) meira en i viku. Getur þetta verið normalt? Hvernig er skriftin? B. B. Verða borgarbúar veskú að sofa á næturnar? Kæri póstur. Ég hef oft séð, að þú birtir nöld- urbréf frá lesendum þinum, og er það vel, því að ég veit, að þú, Vika góð, nærð til svo margra. Og nú langar mig til að bæta einu sliku bréfi við allan fjöldann. — Það er oft fundið að þvi, að „Ríkið“ sé ekki opið á kvöldin, hvað þá næturnar, — síðast i pósti Vikunnar, og ætla ég því ekki að minnast á það að sinni. Hitt er svo Reykjavíkurbúum til mun meiri skammar, og það er hin algera deyfð yfir borginni á næturnar. Ég á ekki við, að borgar- búar séu með uppivöðslusemi og læti alla nóttina, — en minna má nú gagn gera. Það skortir gjörsam- lega alla þjónustu við bæjarbúa á næturnar. Verða borgarbúar veskú að sofa á næturnar? — Bagalegast finnst mér tvennt: Ef ferðamaður kemur til borgarinnar að nóttu til, glorhungraður, getur hann hvergi í gervöllum bænum fengið sér mat- arbita. Er þetta nú nokkur liæfa? Og númer tvö: Það er hvergi, — hvergi, — hægt að fá benzin á bílinn sinn alla nóttina! Það væri a.m.k. liægt að hafa eina benzinstöð opna alla nóttina, og gætu stöðvarnar skipzt á, t.d. vikulega. Hvaða aftur- haldsseggir standa fyrir þessum ó- sköpum? Setjum dæmið upp þannig: Ég þarf að fara frá kaupstað á Norður. landi suður til Keflavikur að kvöldi dags. Ég fylli bílinn, áður en ég legg af stað, en í Reykjavik er ég orðinn svo til benzinlaus. Það sprakk á leiðinni, og ég tafðist um nokkra tíma og er því orðinn ban- hungraður. Nú kemst ég ekki á ben- zíninu til Keflavíkur, og matarbit- inn er búinn. Klukkan er hálftvö um nótt. Hvað á ég að gera? Jú, ég verð að leggjast fyrir í bilnum, solt- inn og vonsvikinn, og biða til morg- uns. Þetta er vafalaust aðeins eitt af því fáa, sem bæta mætti úr varð- andi næturlíf Reykjavíkur. Ég á alls ekki við skemmtanalifið. Mér finnst alltaf Reykjavík vera eitthvað sein- þroska, — þótt hún státi af 175 ára þroskaferli um þessar mundir. Með kærri þökk fyrir birtinguna. Ásmundur. Póstinum hafa borizt nokkur bréf frá flatbrjósta frökenum, og virð. ist þetta há þeim talsvert, meira að segja titlar ein sig „örvita“, og er þá nokkuð langt gengið. Engin þeirra vill láta birta bréf sitt.. Auðvitað. getur. pósturinn ekki bætt úr þessari neyð þeirra með einu svari. Ég sneri mér til læknis. varðandi. þetta. mikla vandamál, og sagði hann, að ef þessar yngismeyjar væru orðnar það gamlar, að eðlilegt væri, að farið væri að votta fyrir útvexti á brjóstkassanura, yrðu þær að leita tn læknis, því að ekkert al- Kæra B. B. Ekki held ég, að þú þurfir að kvíða neinu að svo komnu máli. Og af bréfi þínu að dæma virðist þú fyllilega „nor- mal.“ Sannleikurinn er líklega sá, að þú hefur enn ekki orðið ást- fangin, — eða þá hef ég ekki skilið orðið ást. Telpur á þínum aldri eru sífellt að verða „skotn- ar“ í hinum og þessum, og það er alveg eins og það á að vera. Einhvern tíma verður þú alvar- lega „skotin“ og það í meira en viku, og þá geturðu fyrst farið að hugsa um hjónabandið. Skriftin er lítt mótuð og hálf- barnaleg, og er það von, því að skriftin mótast yfirleitt ekki að fullu fyrr en eftir tvítugt. En stafsetningin þín er skelfilega bágindaleg. Hörundsflúruð yngismær... Kæra Vika minl Gefðu mér nú gott ráð. Svo er mál með vexti, að ég er búin að vera með strák í allt suinar og er gasa- lega hrifin af honum. Svo datt sú della i mig um daginn að rispa með nál nafnið hans á handlegginn á mér, þó nokkuð djúpt. Og nú stend- ur það skýrum stöfum á handleggn- um á mér, þótt það sé um mánuður siðan ég rispaði það. Nú finnst mér það svo leiðinlegt að hafa gert það, en ég hugsaði ekkert út í það, að þetta yrði lengi, því miður. Ég verð að „meika“ yfir það, þegar ég fer á böll eða eitthvað annað. Elsku Vika mín, hjálpaðu mér nú um ráð til þess að minnsta kosti að deyfa stafina. — Svo fæ ég svo mikil för eftir stigvél, sem ég er á í vinn- unni, að ég næ þeim varia af. Veiztu um eitthvað, sem nær þeim af? Ástarþakklæti fyrir fram.. M. P.S. Hvernig er skriftin? „Gottáðig!“ segja krakkarnir, o£ mér liggur næstum við að segja það sama. Ég er alveg hissa á stálpaðri stúlku eins og þér að gera sig seka um svona kjána- skap. En þetta er búið og gert, og þvj miður er hreint ekkert við þessu að gera. — Tíminn verður að græða þetta sár — eins og önnur. Þótt enn beri talsvert á örunum eftir þetta krass þitt, er samt líklegt, að þetta máist smátt og smátt út. En ofan í sólbrennda húð hverfur yfirleitt með vetrin- um. En ef þetta ætlar ekki að hverfa, ræð ég þér eindregið að leita læknis og fá hann til a& fjarlægja þetta. Hugsaðu þér, þegar þú ert orðin virðuleg, gift kona, — að þurfa að sitja uppí með mannsnafn (sem þu verður kannski búin að gleyma) flúrað á handlegginn á þér eins og sjóaril Þessi för eftir stígvélin stafa að öllum líkindum af því, að þú gengur ekki í mátulega stórum stígvélum. Skriftin er til fyrirmyndar, mjög þokkaleg og samræmir sér vel. Smásjár . . . Kæra Vika. Mig langar til að biðja þig að gera mér smágreiSa og senda mér upp- lýsingar i Póstinum um það, hvort fáist i Reykjavík eSa annars staSar smásjár og verS á þeim. Svo þakka ég þér fyrir hiS frjálsa og fjölbreytta efni, sem er jafnt fyrir börn sem gamalmenni, — og þaS má frekar aukast. MeS fyrir fram þökk, Áskrifandi. Smásjár má fá með aðstoð flestra gleraugnaverzlana í Reykjavík, og getur þú valið þér einhverja þeirra í símaskránni. Verðið er eðlilega mjög misjafnt. Heyrðu, klukkan er orðin hálfþrjú. CCu-Á)' Hann týndi heimilisfanginu. VIKAKÍ 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.