Vikan


Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 38

Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 38
Ekki er allt ... Frh. vinur, — sagði hún, — ég átti ekki við, að mig langaði til að fara að skoða þinghússbygginguna. Ég hef löngun til.að fara í fína næturklúbba og veitingahús. Já, — ég vildi svo gjarnan fara á staði, þar sem sjá má fræga menn, filmstjörnur, prinsa og listamenn. — Eitt andartak var hann agndofa af undrun. Svo sagði hann biturt: — Þú átt við staði, sem ég hef ekki efni á að sækja. Hún forÁaðist augnaráð hans. — Já, á vissan hátt, svaraði hún. Hann stóð upp og bjóst til að þjóta út úr stofunni. En hún sló handleggjunum utan um hann og hélt honum föstum. — Ekki að fara, Bill. Ég er miklu hrifnari af þér en hokkrum hinna. Vertu nú góður, og farðu ekki frá mér, sagði hún biðjandi. En eftir þvi serm mánuðirnir liðu og andlit Jennýjar kom oftar fram i vikublöðum og dagblöðum, urðu kvöldin færri og færri, sem hún gat verið með Bill. Nú var hún alltaf með ungurn, manni, — Derek Jones að nafni. — Hann virtist ekki hafa neitt sérstakt starf, en tómstunda- gaman hans var kappakstur bíla. Bill fannst, að hann væri eins og á útjaðri kvikmyndar, þar sem mað- urinn verður ae minni og minni, unz hann hverfur í fjarlægðina. — Mér geðjast vel að Derek, en ég er ekki ástfangin af honum, sagði Jenný eitt sinn við Bill ... Hann hefði ef til vill getað skilið það, ef hún hefði orðið ástfangin af ein- hverjum öðrum, en breytingin, sem nú var orðin á henni, var honum ráðgáta. Og af því að hann var gramur og særður og hálfruglaður í þessu öllu saman, voru þau alltaf að kíta, þegar þau voru saman. Síðasta kvöldið, sem Bill var með Jennýju, var frá upphafi dæmt til að misheppnast. Derek átti italskan sportbíl, en Bill varð að sækja hana fótgangandi, — hann hafði ekki nægar tekjur til þess að eiga bíl. — Hann fór með hana á veitingahús, þar sem þau voru í raun og veru einu gestirnir. Hann pantaði mat með undarlegu nafni, en svo kom í ljós, að þetta voru bara venjuleg þorskhrogn. — Þér lika víst ekki þorskhrogn? spurði liann. — O, jú reyndar, svaraði hún kurteislega, á meðan hún reyndi að smakka á matnum. — En ég er nú ekki verulega svöng rétt núna. Hann fann á sér, að hún var með uppgerð, þegar hún sagði, að henni geðjaðist að matnum og að hún skemmti sér. — Um eitt skeið þekkt- ust þau betur en svo, að slíkt væri hugsanlegt, hugsaði Bill. Og þá datt honum í hug, að sjálfsagt þekkti Derek alla staðina með dýru mál- tíðunum og tilhaldinu, — og hann varð þögull, dapur og bitur. Máltíðin varð dýrari en Bill hafði gert ráð fyrir, og þvi hafði hann enga peninga fyrir bíl heim. Þau urðu að bíða kortér eftir strætis- vagni. — Jenný hefði ekki sett það fyrir sig í gamla daga heima í Blessingham, hugsaði Bill. En nú fann hann, að hún bæri hann sam- an við Derek. — Hvernig gengur það með Der- ek? spurði hann, þegar þau sátu hlið við hlið i vagninum. Hvort sem hún heyrði hinn bitra tón í rödd hans eða ekki, þá lét hún sem ekkert væri. Hann hefur boðið mér i sam- kvæmi á laugardag, sagði hún. — Hann þekkir einhvern, sem á skemmtisnekkju. Þar er haldin há- tíð um borð einu sinni á ári. Enginn hafði nokkru sinni boðið Bill í samkvæmi um borð í skemmti- snekkju. Hann þekkti ekki fólkið, sem hafði efni á að halda veizlu um borð í skemmtiskipi. Hann hataði þetta fóik, — já, alla þá, sem tóku Jennýju frá honum, — tóku frá hon- um indælu stúlkuna, sem hann þekkti í Blessingham. — Er það Derek, sem þú ert hrif- in af, eða peningarnir hans? hrökk af Törum hans. — Ekki að taka það á þennan hátt, Bill, sagði hún. Hún leit und- an. — Ég sagði, að ég þyrfti að upp- götva, hvers konar manneskja ég væri. — Ég hélt nú, að ég vissi það, svaraði hann beizklega. — Ég hélt, að þú elskaðir mig. En ég veit ekk- ert lengur um þig. Hún starði út um gluggann. — Ást, ást, sagði hún. — Þú hyggur, að þetta sé svo einfalt. Stundum er ástin ekki nóg. — Jenný, sagði hann, — eftir kvöldið í kvöld ætla ég ekki að vera lengur með þér. Hún sneri sér að honum og hróp- aði skelfd: — Ó, Bill, þú mátt ekki tala svona. — Jenný, sagði hann og fann, að hann elskaði hana, en að hann varð að særa hana til þess að ná til henn- ar. — Þú vilt gjarnan vera með mér einu sinni í hálfum mánuði. Þú vilt hafa mig sem varaskeifu. En það er mér ekki nóg. Annaðhvort lætur ]>ú Derek og hina sigla sinn sjó eða við látum ævintýri lokið, indælu ævintýri að visu. — Hann hélt áfram og særði hana djúpt af ásettu ráði: — Auk þess ert þú ekki sú slúlka, sem ég varð' ástfanginn af. Hún var ekki af þeirri gerð, sem er á hnotskóg eftir peningum. Hún varð bálreið. — Og maður- inn, sem ég þekkti i Blessingham, var ekki svo hræðilega viðbjóðs- legur sem þú hefur verið i allt kvöld, sagði hún, stóð upp og bjóst til að fara. Hann lét hana fara. Hann sá hana fara út úr vagninum og ganga niður götuna. — Jæja, svona fór það, — sagði hann við sjátfan sig. Þetta gerðist í apríl. í marz árið eftir sendi firmað hann til Bless- ingham að nýju. í fyrstu hafði Bill verið mjög beizkur eftir skilnaðinn við Jennýju. En tíminn læknar öll sár, og það var með angurblíðri til- finningu, sem Bill ákvað að heim- sækja forcldra Jennýjar. Þau áttu heima í rauðri múrsteinsvillu i bezta liverfi Blessingham. Á leiðinni til hótels síns varð Bill að aka fram hjá villunni. Það var yndislegt vor- kvöld með blómstrandi vafnings- viðum á garðinum kringum húsið. Bill hafði enga sérstaka löngun til að koma svo snemma til hótelsins, og auk þess höfðu foreldrar Jenn- ýjar verið honum vinsamleg, þegar hann var vanur að koma til Bless- ingham um hverja helgi. Móðir Jennýjar var klædd lit- skrúðugum klæðnaði, sem hann mundi svo vel eftir, og hún virtist glöð að sjá hann aftur. Maður lienn- ar, sem var læknir, var ekki kom- inn heim frá sjúkrahúsinu, — en vildi ekki Bill koma inn og fá sér tebolla? Það var eins og í fyrri daga, hann lét sigrast af yndisþokka hennar. Á meðan þau sátu þarna 1 stofunni með frönsku gluggana opna mót fögrum garðinum og hann spurði hana um Blessingham og hún spurði hann um London, þá var eins og liann sæi hana I fyrsta sinn, — ekki aðeins sem móður Jennýjar, heldur sem konu. Snotur stofan, búin skrautlegum húsgögnum, var ágætur rammi um hana. Bláu litirnir urðu til þess að undirstrika blá augu hennar, og dauft Ijós leslampans máði brott öll merki um aldur. Hann minntist þess, að Jenný hafði sagt, að þau hefðu eiginlega ekki efni á að búa 1 þessu stóra 3Q VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.