Vikan


Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 33

Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 33
með höndum hlutverk forsöngvara og fór það af mikilli snilli. Bættust æ fleiri utan inn bálið, unz tiltölu- lega fáir voru eftir á stjái á flötun- um. Það var lika varðeldur hjá skát- um yfir í Langadal, og Mogginn minntist aðeins á hann og sagði, að munurinn á lifinu i Langadal og ólátunum i Húsadal hefði verið áhrifameiri en heil bindindisræða. Hefði þeim ágæta manni, er það skrifaði, verið nær að lita vestur yfir háisinn og sjá ólætin og þetta, sem hann kaliaði Nýhafnarbrag, með eigin augum. Það var hætt að syngja við bálið hjá Úlfari um tvöleytið, og gerðist ekkert markvert á almannafæri eftir það, — ekki einu sinni þetta óskapiega, sem fanatiskir bindindis- frömuðir mundu geta veit sér upp úr. Það var svolítið eigrað um til þess að nota timann til hlitar, þvi að næsta kvöld yrðu ílatirnar mannlausar og alit þetta fólk komið til sins heima. Um morguninn var enn sólskin og iogn. _______ SgSSrf / Mannskapurinn var framlágur þennan morgun, og margir reistu ekki eyrun fyrr en undir hádegi. Þá var háreystin að mestu úr sög- unni og raddir náttúrunnar þagnað- ar. Fólk pakkaði saman pjönkum sínum, og kvenfólkinu gekk miklu betur að ná niður tjöldunum en koma þeim upp, eða var það bara vegna þess, að gæjarnir voru eitt- hvað eftir sig og miklu áhugaminni að hjálpa kvenþjóðinni, þegar tæp- lega væri von um neinn eftirleik? Það var útfall, og eftirvæntingin og spennan, sem hafði legið í loftinu yfir Mörkinni á laugardagskvöldið, var fyrir bí. Fyrsti bíllinn frá Úif- ari fór á miðjum degi, og ég tók mér far með honum. Það voru gerð- ar nokkrar heiðarlegar tilraunir til að upphefja söng, en flestir voru þegjandi hásir, og samkoman var þögul og þreytt á svipinn. Mér komu i hug orð skáldsins úr kvæðinu Messan á Mosfelli: Það voru hljóðir og hógværir menn, sem héldu til Reykjavíkur. Husqvarna STRAUJÁRN með THERMOSTAT eykur ánægjuna við frá- gang á þvottinum. ★ Husqvarna framleiðsla er viðurkennd fyrir gæði. ★ Fæst víða í verzlunum. ★ !'■ í '! Gunnar Ásgeirsson h.í. Suðurlandsbraut 16. - Sími 35200 CLOZONE er grófkornað þvottaefni sem náð hefur miklum vinsældum hér sem erlendis. CLOZONE hefur hlotið við- urkenningu sem úrvals framleiðsla. CLOZONE er drjúgt og kraftmikið — sléttfull mat- skeið nægir i 4,5 litra vatns. CLOZONE er þvottaefnið sem leysir vandann með ull- arföt og viðkvæm efni. CLOZONE fer vql með hendur yðar. CLOZONE gerir þvott yðar hvítan sem mjöll. CLOZONE ER HVÍTAST. Heildsölubirgðir: EGGERT KRISTJÁNSSON & CO H.F. Sími 11400 Mig grunar, að þau hafi átt vel við flesta, sem lögðu upp úr Mörk- inni að endaðri þessari verzlunar- mannahelgi. Gísli Sigurðsson. SPHÍH) ER BEST. Framhald af bls. 17. — Jú, henni gengur betur nú en í byrjun, og ef ekki er talað hratt við hana, þá skilur hún það. — Hvernig líkar strákunum ykk- ar að v£ra hér? — Þéim liður vel. Sá stærri er 9 ára. Siðastliðinn vetur var liann í Austurbæjarskóiianum, og ég held ég megi segja, að honum hafi bara gengið yel. Sá minni er 6 ára. Hann hefur ekki verið i skóla, en hann er alltaf með íslenzkum strákum, og þeim kemur vei saman. Hann er eklti alveg eins góður i málinu og sá eldri, en gengur ágætlega samt. — Hvernig finnst ykkur að lifa hér, — efnalega séð? — Það er margt ódýrara hér en í Færeyjum. Föt eru kannski dýrari hér og ýmislegt annað. Færeysk kona, sem býr hér, en fór i suinar- friinu sinu til Færeyja, sagði, að þar væri flest dýrara. Fyrir gengis- fellingu var sagt, að allt væri dýr- ara hér. — Hafið þið ferðazt mikið um landið? — Já, dálitið. Færeysk kona, sem er ekkja, bauð okkur til Þingvalla, Ljósafoss og Hveragerðis. — Hvernig leizt ykkur á landið? — Mér likaði mjög vel á Þingvöll- um, en þó kunni ég betur við mig, þegar við komum svolítið lengra; þar var kjarr og mjög fallegt. Þar í'annst mér mjög fallegt. Við stönz- uðum þarna, á meðan við borðuð- um, og nutum veðurbliðunnar. — Fannst ykkur ekki hverasvæð- ið í Hveragerði sérkennilegt? — Fyrir okkur var þetta mjög einkennilegt, því að við höfðum aldrei séð hveri fyrr, og var þetta því mjög óvanalegt fyrirbæri. Og fyrir ykkur liljóta hverirnir að vera mj ög gagnlegir, — að minnsta kosti finnst okkur injög þægilegt að hafa liitaveituna. — Hafið þið ekki skroppið neitt norður á bóginn? — Jú, í sumar fór öll fjölskyldan í Vatnaskóg og líkaði prýðilega. Við fengum lánað tjald og vorum þarna 1 smátima með IÍ.F.U.M. — Hafið þið getað vanizt matnum hérna? — Mér finnst íslendingar hafa góðan mat. Aunars er matur hérna svipaður og i Færeyjum. Við höfum mat, sem þið hafið ekki, og öfugt. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.