Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 19
Bobby hefur ánægju af sport-
bílum, að skrifa lög, kaupa föt,
borða steik og grapefruit, syngja
inn á plötur og slappa af í sólinni.
Honum er illa við vekjaraklukkur,
kalt veður, járnbrautir og of mál-
aðar stúlkur. I tómstundum veiðir
hann og málar, safnar plötum og
spilar á gítar. Vilji hann eiga
skemmtilegt kvöld býður hann
nokkrum vinum sinum heim til
að hlusta á plötur, eða hann safn-
ar saman hljómlistarmönnum og
heldur jam-session.
Hans æðstu óskir eru að fá að
leika í kvikmynd og geta keypt
hús handa foreldrum sínum í
Kaliforniu.
Shd hNttur
Skemmtilegt endatafl.
Hvítur vinnur.
Erich Richter — Dörnte.
(Berlín 1939).
Hvitur á leikinn og
hvernig fcr liann að því að
stoppa hæði frípeðin?
Það er mjög einfalt!
1. Ke5 — d6! d3 — d2.
2. Kd6 — c7 d2 — dl D.
3. HeC — a6t!! bl x a6.
4. b5 — b6t Ka7 — a8. 5.
b6 — h7t Ka8 — a7. 6. b7
— h8D mát.
Aválon og Fabian voru samferOa
inn í upptökulierbergiö og Fábian
sagöi:
— Heyröu, ég heyröi nýjan brand-
ara um daginn, ég veit ekki, hvort
ég hef sagt þér hann.
— Er hann skemmtilegur, spuröi
Avalon.
— Já, svo sannarlega, svaraöi
Fábian, og hló.
— Þá hefuröu ábyggilega ekki sagt
mér hann, sagöi Aválon ákveöinn, —
þaö er áreiöanlegt.
J
Tuttugu mínútur er allt sem Þarf til að breyta þér í nýjan pqrsónu-
lega. Já, þú getur einnig breytt lífi þinu. Allt sem þú þarft að leggja
á þig er að trúa því, að þetta sé hægt. Líttu á myndirnar. Myndirnar
af þessum fjórum stúlkum eru teknar, þegar þær voru enn í skóla. Enga
af þeim dreymdi um að geta orðið dáð kvikmyndastjarna. Samt urðu
þær það allar. Þær voru fullar minnimáttarkenndar og fannst litið
í sjálfa sig varið, þegar þær voru í skóla. Líttu á breytinguna. Hvað
var það, sem skeði? Leyndardómurinn var einfaldlega sá, að þær lærðu
að þroska persónuleika sinn. Það getur þú einnig gert, hvort sem þú
ætlar að fara til Hollywood eða láta þér nægja þínar eigin kringum-
stæður, vinnustaðinn og félagana, alls staðar mun vel til höfð og
sjálfsörugg stúlka vera velkomin.
Hvernig skeöur þaö?
Hér á eftir fer viðtal við einn af helztu kvikmyndaframleiðendunum
i Hollywood, Jerry Wald, og þar svarar hann þeirri spurningu, hvað
hann mundi gera, ef falleg ung stúlka kæmi til hans og vildi verða
stjarna. Hann er sérfræðingur og hvað er svo það fyrsta sem hann
athugar?
— Við höfum ekki áhuga á neinum, sem líkjast öðrum stjörnum,
segir hann, við erum að leita að sérkennilegum ,,typum“. Það er til
nóg af stælingum. Ég leita heldur ekki sérstaklega að fallegum andlit-
um, því útlitið hefur nákvæmlega ekkert að segja. Það vonlausa við
ungt fólk nú á dögum er, að það velur sér stjörnufyrirmynd og reynir
að vera alveg eins i útliti og fyrirmyndin. En það eina sem unglingar
þurfa að gera, er að reyna að vera þeir sjálfir.
Þegar Kim Novak kom til mln var hún klædd eins og Marilyn
Monroe og reyndi að tala með eins rödd. Ég byrjaði á því að spyrja
hana hvort hún reyndi að eyðileggja sjálfa sig.
Leikarar eru sjaidan fallegir, en þeir hafa dálítið annað. Drauminn
um að verða eitthvað, drauminn um frægð. Og það er hlutur sem
allir ættu að hafa.
Allt ungt fólk ætti að hafa kraft í sér til þess að langa til að verða
eitthvað — í vinnunni, skólanum eða hjónabandinu. Því það er þessi
kraftur sem gerir viðkomandi fólk að persónuleika.
Hugsaðu nú dálítið um sjálfa þig í einrúmi og vertu heiðarleg. Að
skilja sjálfan sig og aðra er grundvailarreglan. Mikil vinna er einnig
mikið atriði. Og síðast en ekki sízt, Þú verður að taka sjálfa þig alvar-
lega. Hugmyndaflug er mjög mikilvægt. Lestu eins og þú getur og
notaðu heilann. Farðu á næsta bókasafn og fáðu lánaðar bækur og
ekki eintómt léttmeti. Það er alveg nauðsynlegt. Alltof margir leita
að stytzta veginum, en hann er ekki til.
Vertu vakandi gagnvart öllu, sem einhvers virði er í lífinu.
Þegar um ytra útlit er að ræða, er erfiðast fyrir stúlku að ganga
fallega. Að sitja fallega er einnig nokkuð erfitt. Það er strax hægt að
sjá hvað stúlka er æfð á því, hvernig hún krossleggur fæturnar. Pilsið
á að sitja smekklega á sínum stað og gætið að höndunum. Munið eftir
röddinn og passið hálsinn. Æfið ykkur eins og þið mögulega getið í
öllu viðkomandi fallegri framkomu. Hugsið ekki um persónuleikann
allan tímann. Það er nefnilega hlutur, sem kemur innan frá. Þroskist
maður og menntist, Þá kemur persónuleikinn smátt og smátt í ljós.
Það er jafnvel hægt að ná stórkostlegum persónuleika, ef mikil vinna
er lögð í það.
Hvar á að byrja, spyrjið þið kannski. Á þeim hlutum, sem ykkur
standa næst. Það gerðu ungu stúlkurnar á myndunum.
Líttu í spegilinn. Reyndu að fá fram þá hluti, sem þú finnur,
Framhald á bls. 42.
VIKAN 1 9