Vikan - 14.09.1961, Síða 20
BÖRNUNUM LÍÐUR ÞVÍ
AÐEINS VEL í SKÓLANUM
• AÐ ÞAU KUNNI LEXÍURNAR
• AÐ ÞAU SÉU HREIN
• AÐ ÞAU SÉU SNYRTILEG
TIL FARA
VÉR GETUM SÉÐ
BÖRNUM YÐAR
FYRIR VÖNDUÐUM,
HLÝJUM OG
SNYRTILEGUM
SKÓLAFATNAÐI.
LEITIÐ TIL OKKAR.
II
i
’bilPftap
HrútsmerJciÖ (21. marz—20. apr.): Þú hefur ótal
ástæður til Þess að líta björtum augum á tilver-
una í þessari viku. 1 vikunni rætist einn draum-
ur þinn, svo að þssi vika og næstu vikur verða
nánast dásarhlegar. Einn vinur þinn veldur þér
einhverjupm vonbrigðum í vikunni, en þetta stafar allt af
einhverjum misskilningi.
Nœutsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þú skalt hugsa
þig um tvisvar, áður en þú tekur nokkra veiga-
mikla ákvörðun í vikunni, því að dómgreind þín
virðist ekki sem bezt þessa dagana. Þú skalt
ekki skammast þín fyrir að leita ráða annarra.
Þér verður komið á óvart um helgina, en ekki er ljóst,
hvort það verður þægilega eður ei.
TvíburavierkiÖ (22. maí—21. júní): Þér gefast
mörg tækifærin til þess að breyta til og hrista
af þér þetta slen hversdagsleikans — þótt ekki
sé enn Ijóst, hvort þú kannt að nota þér þessi
tækifæri. Amor verður mikið á ferðinni — lík-
lega i sambandi við eitthvert samkvæmi. Maður, sem er
eldri en þú kemur talsvert við sögu bína í vikunni.
KrabbamerkiÖ (22. júni—23. júlí): Þig skortir
einhvern veginn hugmyndaflug í vikunni, og
verður það til þess að þú missir af mörgum góð-
um tækifærum. Verið getur að gleymska þín
komi þér í koll í vikunni, og láttu Þetta þér nú
að kenningu verða! Fólk, sem komið er yfir þritugt fær
miklar gleðifréttir, líklegast um helgina.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú verður hrók-
ur alls fagnaðar í vikunni — líklega muntu
skemmta þér óvenjumikið. — Þó skaltu varast
að smakka áfengi, nema Þá í miklu hófi. Eitt-
hvað, sem gerist í siðustu viku, endurtekur sig
nú en á nokkuð skemmtilegri hátt. Um helgina gerist eitt-
hvað, sem veldur þér smávægilegum áhyggjum
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þú munt eiga
mjög annríkt í vikunni, en þó muntu finna tima
til þess að sinna Því, sem á hug þinn þessa dag-
ana. Þú ferð að líkindum í stutta ferð, einhvern
tíma i vikunni. Vinur þinn veldur þér einhverj-
um vonbrigðum, en hann bætir ráð sitt, fyrr en varir.
Glappaskot, sem einhverjum varð á í fjölskyldunni, bitnar
einhvern veginn á þér.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Það er eitt-
hvert eirðarleysi yfir vikunni, og það er eins og
þú vitir ekki, hvað þú átt að þér að gera. Þó
verður eitthvað til þess í vikulokin, að úr þessu
rætist. Líklega muntu fá skemmtilegt verkefni
til að glíma við. Takist þér að leysa þetta verkefni, mun
næsta vika verða einkar ánægjuleg fyrir þig og vini þína.
DrékamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þetta verður
mikil hamingjuvika fyrir þig og einhvern annan,
sem þú hefur umgengizt mjög mikið áður fyrr.
Þú skalt aðeins varast alla fljótfærni, þvi að hún
gæti komið ykkur báðum illilega í koll. Þú skalt
ekki hætta þér út i nein stórfyrirtæki i vikunni, heldur lifa
lífinu, eins og þú hefur gert undanfarið.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Þú hefur ekki
verið í sem beztu skapi undanfarið, en nú verð-
ur eitthvað til þess að þú kemst i fyrirtaks skap
alla vikuna. Líklega muntu skemmta þér óvenju-
mikið i vikunni, en varast skaltu samt allt óhóf.
Þú hézt einhverju fyrir skömmu, en það verður líklega að
hryggja þig með þvi, að þú stendur ekki við það.
GeitarmerkiÖ (22. des-—20. jan.): Liklega græð-
ist þér fé á óvæntan hátt í þessari viku. Mundu
að votta réttum aðilum þakklæti þitt. Eitthvað,
sem þú gerir i vikunni, verður tekið illa upp hjá
tveimur kunningjum þinum. Reyndu að sýna
þe.im fram á, að þetta hafi allt verið vel meint. Þú færð
furðulega hugmynd í vikunni, sem þú skalt alls ekki hrinda
í framkvæmd — að sinni.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Það gerist
svo sem ekki ýkjamikið í þessari viku, en þú
getur verið viss um, að hún verður þrátt fyrir
allt ánægjuleg fyrir þig og þína. Liklega muntu
bezt á heimili þinu. Þú ættir að reyna að um-
gangast fleiri en þessa „föstu“ félaga þína, til þess að
víkka sjóndeildarhring Þinn.
^Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Það gerist
SHNH margt markvert í þessari viku, og yfirleitt verð-
ur það þér í hag. Eitthvað undarlegt gerist i
sambandi við húsnæði það, sem þú býrð í. Þú
færð skemmtilegan gest í heimsókn, og mundu
nú að koma fram við hann, eins og þér var bent á í siðustu
viku. Bréfaskriftir skipta þig afar miklu í vikunni.