Vikan - 14.09.1961, Síða 42
ROYAL CROWN
sófasettið
ÖiDVGGIr
LAUGAVEG 13 3. — SÍMAR: 147 07 — 2 42 77
Ekki er allt ... Frh.
gengur vinnan?
— O, það er nú ekki skemmtilegt
íengur. — Hún hló og sléttaði hárið
jneð hendinni. Hún stóð upp í
skyndi og skipli um umtalsefni, —
eins og hún óttaSist það, sem hann
nú kynni að segja. — Nú ætla ég
að laga kaffi handa okkur.
Hann braut heilann um, hvort
hún vseri að slá á frest því augna-
bliki, er hún yrði að segja honum,
að hún kærði sig ekki framar um
hann.
Þegar hún kom úr eldhúsinu, tal-
aði hún um gamla vini. Hafði bann
heyrt, að Sallý var gift og búin að
eignast barn? Og hafði hann séð
Pétur í sjónvarpinu? Hafði hann
heyrt um Mollýju? Það var eins og
hún reyndi eftir megni að slá
persónulegum spurningum á frest.
Þau voru búin að drekka kaffið.
Lengur gat hann ekki beðið. Það
var ef til vill um seinan að segja
það, sem hann var kominn til að
segja, en hann varð að reyna. —
Ertu alltaf með Derek? spurði hann.
Það varð dálítil þögn, áður en
hún svaraði. Svo mælti hún með
gætni: — Derck? Nei, hann hef ég
ekki séð í langan tíma, í marga
mánuði. Við hættum að vera sam-
an, stuttu eftir að við skildum síð-
ast.
Bað hann þín ekki?
— Jú, það gerði hann. — Hún hló
og virtist taugaóstyrk. — En hvern-
ig er það annars með þig, — þú
ert sjálfsagt farinn að vera með
einhverri?
— Ekki sem stendur, svaraði
hann. — Tókstu nú þátt í öllu því,
sem þú hafðir löngun til? Ég sá
mynd af þér frá Monte Carlo.
— Já, ég hef reynt margt. — Hún
vafði hárlokki um fingur sér. —
Það eru margir hlutir, sem minna
á hina myrku hlið mánans, — róm-
antiskir í fjarska, en þegar maður
kynnist þeim og reynir þá, eru þeir
drepleiðinlegir. — Hún brosti dap-
urlega.
— Þér leiddist aldrei í Blessing-
ham, Jenný? sagði hann blíðlega.
— Það var allt öðruvisi, sagði
hún og hreyfði sig órólega, — Viltu
ekki fá meira kaffi?
En í þetta sinn lét hann hana ekki
sleppa svo auðveldlega. — Jenný,
sagði hann, — þú ert alltaf eina
stúlkan 1 heiminum fyrir mig. Ef
þú kærir þig ekkert um mig, skaltu
segja það vafningalaust, og ég skal
ekki vera að pína þig framar. En
ef þú aftur á móti ert eitthvað hrif-
in af mér, en ert ekki viss um, að
við getum orðið hamingjusöm sam-
an, þá skal ég bíða. Ég skyldi bíða
allt mitt líf, ef það væri nauðsyn-
legt.
Hún leit á hann stórum augum.
Klukkan tifaði á arinhillunni, og
gluggatjöldin blöktu fyrir andvar-
anum, sem að utan barst.
— Ég er viss, sagði hún loks lágt.
Ég hef verið viss síðan kvöldið sið-
asta. Ég vonaði, að þú hringdir, en
þú gerðir það ekki. Og ég gat ekki
hringt til þín, því að ég hélt, að þú
vildir ekkert með mig hafa eftir
það, sem þú sást í vagninum.
Fljótabátur blés í yndislegri
kvöldkyrrðinni. Og hann var nógu
sterkur og öruggur fyrir þau bæði.
— Ég verð aldrei rikur, Jenný,
sagði hann. — Við höfum víst ekki
ráð á að fara á dýr veitingahús eða
i sumarfri til Rivíerastrandar. Það
er alls ekki víst, að við komum til
með að búa i stóru húsi, — kannski
verðum við að láta okkur nægja
tjald ... Og uppgötvir þú einhvern
tíma, að lífið skuldi þér minkapels
og flygil — og þú væntir, að ég
vinni dag og nótt til þess að geta
útvegað þér þetta, þá mun ekki af
þvi verða. Hugsaðu þig um, Jenný,
því að þú getur valið úr,
Hann beið svars hennar á sama
hátt og menn verða stundum að
biða eftir ástínni. En hann þurfti
ekki að bíða lengur en þann tíma,
sem það tók hana að ganga yfir til
hans og leggja handleggina um háls
honum og segja: — Ég veit ekki,
hvernig við förum að þvi að koma
flygli fyrir i tjaldi, ... elsku vinur
minn. ★
Þannig getur þú ... Frh.
Framhald af bls. 19.
hamingju, gleði, blíðu, umhugsun,
glettni.
Settu hendurnar fyrir eyrun og
hlustaðu á röddina. Er hún aölað-
andi?
Fáðu einhvern til að taka myndir
af Þér. Þær leiða i ljós, hvernig aðrir
sjá þig.
Biddu bezta vin þin neða vinkonu
að segja þér hreinskilnislega, hverjir
séu þínir verstu gallar — og lofaðu
að verða ekki móðguð.
Hreyfðu þig ekki. Líttu niður á
fæturnar á þér. Siturðu fallega?
Fylgstu vel með því, sem fram fer
í kringum þig, þannig að þú getir
tekið þátt í samræðum á gáfulegan
og skemmtilegan hátt.
Athugaðu kvikmyndastjörnur vel,
þegar þú ert í bíó og taktu eftir því,
hvernig þær sitja, tala og hreyfa sig.
Af því er hægt að læra mikið.
Tvö ráð frá Hollywood, sem hjálpa
mikið ef þú ert taugaóstyrk. Skjóttu
fram hökunni og brostu með aug-
unum.
Spurðu sjálfa þig þrisvar á dag:
Sýni ég nægan persónuleika einmitt
núna?
Taktu ekki sorgirnar út fyrirfram.
Og svo óskum við ykkur til ham-
ingju með tilraunina. Við erum viss
um að þið náið góðum árangri.
HEFNT FYRm HOOD.
Framhald af bls. 5.
en hægt var með fullri orku að kom-
ast upp i 31 hnút. Að öllu samanlögðu
var Bismarck talið fullkomnara skip
en Hood, þó að Hood væri nokkru
stærra.
H.M.S. Hood has blown up.
Wake Walker, foringi á Norfolk,
sendi svohljóðandi skeyti til flota-
málastjórnarinnar I London:
— H.M.S. Hood has blown up. —
Hood er sprungið i loft upp.
Það féll í hlut Churchill forsætis-
ráðherra að tilkynna þessi ógnartíð-
indi í neðri málstofu brezka þingsins.
Svo sem nærri má geta, sló miklum
ótta og óhug á Breta við tiðindi
þessi, ekki sízt þar sem hildarleik-
urinn stóð enn í algleymingi og ekki
séð fyrir, hvernig færi fyrir öðrum
herskipum Breta áður en lyki.
Prince of Wales hafði laskast svo í
hinni fyrstu viðureign, að hann varð
að draga sig í hlé frá bardögum um
stund.
Hinsvegar ákváðu Bretar að halda
bardaga áfram, þar til yfir lyki, og
skyldi stefnt að þvi að króa Bis-
marck innan arma brezka flotans.
Hitler hafði sjálfur sent Lutjens,
aðmírál á Bismarck skeyti, þegar
fregnirnar um örlög Hood höfðu bor-
izt til Þýzkalands. Þakkaði hann
áhöfninni og Þó sérstaklega foringj-
um skipsins þennan mikla sigur, og
kvaðst samgleðjast Þeim.
En aðstaða Bismarck var sú, að
óumflýjanlegt var annað en að leita
undankomu. Renndi herskipið því
þegar x suður átt, og hugðist reyna
að ná til flotahafnarinnar Brest i
Frakklandi, sem var á valdi Þjóð-
verja.
Herskip Breta drifu að.
En þegar Bismarck var kominn á
flóttann mátti segja, að herskip og
43 VIKAN