Vikan - 17.05.1962, Blaðsíða 24
SVAVAR GESTS SKRIFAR UM
Ungfrú
Yndisfríð
Hvflr ev
óvkin hnns
NÓÆ?
Síðast þegar dregifS var hlaut verðlaunin:
ÓLÖF KAKLSDÓTTIR,
Ásbyrgi, Stokkseyri.
Enn er það Örkin hans Nóa, sem ungfrú Yndisfríð
hefur falið í blaðinu. Iíannski i einhverri mynd-
innL Það á ekki að vera mjög erfitt að finna hana
og ungfrú Yndisfríð heitir góðum verðlaunum:
Stórum konfektkassa, sem auðvitað er frá Sælgætis-
gerðinni Nói.
Nafn
Heimilisfang
Örkin er á bls. Sími
— Já, en kæri Gvendur, ertn nú
viss um að þetta sé ekki bara augna-
blikshrifning?
— í þessu fyrirtæki hefur það
aldrei komið fyrir að maður hafi
hætt, eða verið rekinn, Halldór, og
við megum ekki brjóta þessa reglu.
24 VIKAN
Judy Garland með 30 lög.
Judy Garland tók hljómleikaliöilina
Carnegie Hall á leigu einn góðan veð-
urdag fyrir tæpu ári, réði til sín hljóm-
sveit til að ieika undir hjá sér. Siðan
ætlaði hún ein að syngja 30 lög á þess-
um hljómleikum og auðvitað seldust
allir miðar upp á svipstundu, tæp tíu
þúsund, minna má nú gagn gera.
Skipzt hafa á skin og skúrir í lífi
Judy Gariand frá þvi að hún kom fyrst
fram tólf ára gömul í kvikmyndinni
meistaralegu The Wizard of Oz og söng
lagið Over the rainbow af slikri snilld
að tíu ára gamall snáði af Vesturgöt-
unni vissi þá fyrst hvað músik var
þegar hann sat i almennum sætum í
Gamla Biói Qg sá myndina. Siðan hef-
ur hann haldið upp á Judy Garland
og náttúrlega gerði hann lagið að kynn-
ingarlagi hljómsveitar sinnar þegar
hann eignaðist trommur og hljómsveit.
Jæja, hljómleikarnir hennar Judy i
Carnegie Hall voru teknir upp, eins
og það er orðað og hafa nú verið gefnir
út á tveim 33 snúninga plötum, öll 30
lögin og enn uppgötvar maður að það
er ekkert til dásamlegra en góð músik
flutt af sönnum listamönnum. Og það
Judy Garland.
eru ekki nema sex eða átta manns, sem eiga skilið
að heita listamenn í dægurlagaheiminum og Judy
Garland er helmingur þeirra.
Auðvitað heitir hann Jimmy Dean.
Jimmy Dean hefur fyrir nokkrum vikum
sungið lagið „Big bad John“ inn á plötu með
nýjum texta og heitir lagið nú „Cajum queen“
og ætlar að verða jafnvinsælt og Big Bad John,
sem var eitt allra vinsælasta lagið á síðasta ári.
Jimmy Dean er orðinn 32 ára gamall og svo
sannarlega ekki nýtt nafn í hljómplötuheim-
inum. Hann hefur sungið inn á fjöldann allan
af plötum, en nafn hans liklega aldrei heyrzt
hér, því hann hefur fram að þessu aðeins
sungið kúrekalög, og aðdáendur kúrekalaga
eru fáir hér á landi. Það var ekki fyrr en með
plötunni Big Bad John að Jimmy Dean varð
þekktur utan heimalands síns.
Heima í Bandarikjunum var hann oft spurð-
ur að þvi hvort hann væri skyldur kvikmynda-
leikaranum James Dean, sem lézt fyrir nokkr-
Framliald á bls. 28.
Gamla
myndin.
Þessi mynd var tekin á
jam-session i Tjarnarcafé
fyrir átta árum þegar enski
jazzleikarinn Leslie Hutc-
hinson var hér á hljóm-
leikaferðalagi. Á myndinni
eru frá vinstri Leslie
Hutchinson, trompet (hann
lézt fyrir ári síðan),
Andrés Ingólfsson, altó-
saxófónn (hann stjórnar
nú eigin hljómsveit), Guð-
mundur Steingrímsson,
trommur (hann er í hljóm-
sveit Hauks Morthens),
Björn R. Einarsson, trom-
bón (stjórnar eigin hljóm-
sveit) og Gunnar Sveins-
son, vibrafónn (leikur í
hljómsv. A. Ingólfssonar).