Vikan - 30.08.1962, Qupperneq 3
VIKAN
90 SMÁL. SKÍÐASKIP
FRÁ GRUMMAN
^yrir nokkrum arum voru Grumm-
an-verksmiSjurnar heimskunnar fyr-
ir flugbáta sína. Nú er þeirra enn
getiS í heimsfréttum — aS þessu
sinni fyrir „flugbáta“, sem að vísu
sleppa ekki vatnsfletinum að fullu,
heldur „fljúga“ eftir honum á eins
konar sjóskíðum, en þeim mun áður
hafa verið lýst nokkuð hérna i þætt-
inum.
Jamkvæmt tilkynningu, sem okk-
ur hefur borizt frá Grumman fyrir-
tækinu, fór nýtt skíðaskip, sem það
hefur fyrir nokkru hleypt af stokk-
unum, fyrstu reynsluför sina þann
5. júní siðastliðinn. Er þetta 90 smá-
lesta skip, 104 feta langt og skrokk-
urinn að öllu leyti gerður úr álúmíni.
og tekur um sextfu farþega. I
reynsluförinni skreið þetta renni-
lega og glæsta skíðaskip 00 hnúta ■—
en með breyttum skíðaútbúnaði
skríður það 80 hnúta!
Nýstárlegást í gerð þessa skiða-
skips er þó vafalaust það, að það er
ekki knúið skrúfu eingöngu, heldur
og vatnsþotuhreyfli með tveim út-
þrýstistútum — einum á hvorri hlið
— og getur hvor þeirra um sig fram-
leitt 1000 kg þrýsting. Vatnsútþrýst-
ingurinn frá þessum stútum hefur
þrenns konar áhrif — hann lyftir
undir skipið, svo kjölur þess slepp-
ir yfirhorðinu þegar er það hefur
náð 26 hnúta skriðhraða; fyrir at-
beina hans, haggast skipið ekki á
sjó, jafnvel þótt í verulegum öldu-
gangi sé, eftir að það er komið á
fullan skrið og kjölur þess er að
minnsta kosti fimm fet uppi yfir
vatnsskorpunni, og loks er skipinu
stýrt með því að draga úr þrýstingi
öðrum megin eða auka hann eftir
því sem með þarf. Vél sk-ipsins er
1050 hcstafla, skrúfan þriggja blaða,
hreyfiorkan á öxul 14.000 hestöfl.
Eftir þessa reynsluför verður
þetta skiðaskip, sem hlotið hefur
nafnið „Denison“, reynt á Atlants-
hafi, en upp úr nýjárinu verður það
í áætlunarferðum milli Port Ever-
glades og Bahamaeyja.
En Grumman verksmiðjurnar ætla
ekki að láta þar við sitja. Um þetta
Framhald á bls. 42.
1. Peueeot 404“ — virðulegur bfll, línurnar hreinar og látlausar. 2. Þa8 fer vel um bilstjórann í
sætinu, mælaborðið er einfalt og
blasir við augum.
PEUGEOT 404 -— HARÐASTI
KEPPINAUTUR VOLVO AMAZONE
í Svíþjóð — sjálfu heimalandi
Volvósins — er franski billinn
Peugeot 404 talinn harðasti keppi-
nautur Volvo Amazónunnar, sem
flestir hér kannast vel við. Þessir
tveir bílar eru af svipaðri stærð, lik-
ir um margt — en líka ólíkir um
margt. Útlit bila, heildarsvipur, er
að visu alltaf smekksatriði, en flest-
ir munu telja Peugeot 404 fallegan og
glæsilegan bil, þrátt fyrir ytra lát-
leysi — línurnar hreinar og allt „yf-
irbragð“ virðulegt. Hið innra ber
Peugot 404 franskri smekkvísi óg
raunhæfni ljóst vitni.
Við prófun, sem framkvæmd var
af sænskum bilasérfræðingum fyrir
skemmstu. hlaut Peugeot 404 hina
beztu dóma. Þeir gátu þess sérstak-
lega, að vart mundu finnast betri og
þægilegri sæti 1 nokkrum bil — og
þótt billinn virðist sveiflast nokkur
á kröppum beygjum, finnist það ekki
inni í bilnum, vegna sætisgæðanna.
En fyrst og fremst telja þeir bilinn
þó óvenju þægilegan i hröðum ak’átri,
3. Hið innra ber allt vitni franskri
smekkvísi og raunhæfni.
það sé þreytulaust að aka honum að
staðaldri á 130—135 km hraða á
klst. — þar mun þó miðað við betri
vegi en hér gerast — og ekki kenni
minnsta titrings frá hreyflinum, sem
er 72 hestöfl. Þá segja þeir og að
hreyfilorkan gernýtist, og megi Peu-
geot 404 þvi teljast einkar sparneyt-
inn. Þó séu ökugæðin, eins og áður
er getið, hans mesti kostur.
Útgefandí: Hilmi'r h.f.
Ritstjóri:
Gísli Sigurðsson (ábm.)
Framkvæmdastjóri: ,
Hilmar A. Kristjánsson.
.. \ ..... i
Kítstjórn og áúglýsiugur: SkiphoiP*
33. Sitper: 3p32Ö. 30821, 35822, 35323.
Pósthólf 119. Afgreifida og dreifíng:
Biaftadreifipg, l.augavegi 133, slný
30720. Dreihugarstjóri Óslsar Kaiis-:
son. Vt rft i lausasölu kr. 15. Áskrjf^,
arverð er 200 kr, ársþriðjungslegaí
greiðist fyrirfram. Prentun: llilmir
h.f. Mýndamót: Kafgraf h.f.
Lf. næsta blaði verður m. a.
• Hitinn var óbæriíegur. — Runólfur Sæmundsson flutti með
fjölskyldu sina til Argentínu og bjó þar um tíma. Hann er
nú fluttur heim aftur og segir frá reynslu sinni af búsetu í
Buenos Aires og Argentínumönnum.
• Sá rétti maður. — Bráðsnjöll smásaga eftir J. C. Thompson.
• Kaldhæðinn húmoristi í blaðamamiastétt. — Gísli J. Ástþórs-
son í aldarspcgli.
■MB|nVWnn Þær þúsundir manna, sem að undanförnu hafa sótt
knattspyrnuleiki i Reykjavík, hafa vafalaust kennt
manninn á forsíðunni við fyrstu sýn, en þeim, sem
ekki hafa haft aðstöðu til þess að komast á völlinn, skalt sagt, að þar er
ÞÓEÓlfur Beck, snjallastur kappi í hópi íslenzkra knattspyrnumanna um þess-
ar mundir. Hann er arftaki afburðamanna í íþróttinni eins og Alberts og
Rikharðs og sönn fyrirmynd öðrum knattspyrnumönnum, sem þyrftu að
leggja á það talsverða áherzlu að auka „breiddina“ í íþróttinni. Halldór
Pétursson teiknaði myndina.
• Ósýnilegi veggurinn. — Smásaga.
• Að njóta líðandi stundar. — Grein eftir Herborgu.
• Gagnkvæm vinátta og góður andi. — Rætt við Vigdísi Elías-
dóttur, kennara í Laugalækjarskóla.
• Konan og dagurinn. — IVIjög athyglisverð smásaga eftir nýjan,
islenzkan höfund.
VIKAN 3