Vikan - 30.08.1962, Page 5
að |)ctta verði tekið til sreina —
cf ekki, þá er þó skárra að hafa
enpar hellur os því engar holur.
Endurtekið tónlistarefni...
Elsku Pósturinn minn.
Heyrðu, geíurðu sagt okkur hjrna
þremur skvísum, hvers vegna það
eru aldrei dans- og dægurlög í þess-
um þætti hjá Útvarpinu, sem heitir
„Endurtekið tónlistarefni“? Okkur
finnst, að við, sem höfum gaman
að danslögum, eigum líka að geta
heyrt einhver skemmtileg lög endur-
tekin í þessum þætti, annað er bara
svindl.
Þrjár skvisur í austurbænum.
-------Á hverjum einasta degi
eru leikin einhver dans- og dæg-
urlög í Ríkisútvarpinu og heita
þættirnir ýmsum nöfnum, t.d.
„Lög unga fólksins", „Við vinn-
una“ og þar fram eftir götunum.
Ég sé ekkert því til fyrirstiiðu, að
svo sem einu sinni í viltu heiti
þátturinn „Við vinnuna“ ekki
„Við vinnuna“ heldur „Endurtek-
ið tónlistarefni" og verði í þeim
þætti leikin einungis' dans- og
dægurlög. Það eina, sem myndi
breytast, væri nafnið. Dans- og
dægurlögin, sem eru leikin í út-
varpinu í dag, eru hvort eð er
endurtekið tónlistarefni frá því
í gær.
Grjótkastari . . .
Kæri Póstur.
Geturðu sagt mér, eru ekki for-
eldrar hundrað prósent ábyrgir fyr-
ir þeim óskunda, sem börnin þeirra
valda?
Svoleiðis er mál með vexti, að einn
óþckktaranginn hér í nágrenninu er
tvisvar sinnum búinn að brjóta rúðu
í húsinu hjá okkur. Maðurinn minn
er ákaflega til baka, og hann hefur
bara látið setja rúðurnar í i bæði
skiptin, án þess að refsa stráknum
eða tala við foreldra hans.
En, segðu mér, getum við ekki
fengið fullar bætur hjá foreldrum
stráksins? Maðurinn minn segir, að
svona geri maður ekki, en ég er
samt viss um, að hann myndi strax
borga, ef sonur hans (hann er fimm
ára) gerði eitthvað svona af sér.
Finnst þér ekki, að í svona tilfell-
um eigi foreldrarnir að snúa sér til
foreldra óþekktarangans?
Freyja.
-------Auðvitað á ekki að láta
þessa óþekktaranga komast upp
með slíkt. Reyndar getið þið alls
ekki refsað þessum prakkara —
það er hlutverk foreldra hans —
en það er hreint og beint sið-
ferðileg skylda ykkar að benda
foreldrunum á óknytti stráksa.
Þið eigið engan veginn að gjalda
afbrota einhvers vandræða-
krakka. Og auðvitað fáið þið full-
ar bætur hjá foreldruni hans.
Lítilsvirtur leigubílstjóri...
Kæri Póstur.
Ekki man ég, hvort það var í Vik-
unni eða einhverju öðru blaði, að
leigubílstjóri kvartaði yfir þvi, að
sér væri lítil virðing sýnd. Hann
sagði, að fólk þúaði sig umsvifalaust
og legði litla stund á það að fága
framkomu sína í návist hans. Mig
hefur lengi langað til að svara þess-
um ágæta manni og geri það hér í
Póstinum í Vikunni, j)ví að ég veit,
að hann kemur fyrir augu margra.
I fyrsta lagi vil ég segja leigubíl-
stjóranum þetta: Leigubílstjórar
geta ekki búizt við, að þeim verði
sýnd mikil virðing og þaðan af síður
að þeir verði þéraðir. Leiguakstur er
að vísu nauðsynlogur, en hvergi í
heiminum þekkist það, að ungir og
hraustir menn leggi þessa atvinnu
fyrir sig, enda er þar hvorki um and-
lega né líkamlega áreynslu að ræða.
Alls staðar, þar sem ég þekki til er-
lendis, eru það eldri menn, eða á ein-
hvern hátt fatlaðir menn, sem aka
leigubílum. Mig hryllir. við því að
sjá fileflda karlmenn um tvitugt og
þrítugt sitja og bíða við staurana, Og
svo er það annað: Langflestir þeirra
ganga þannig til fara, að það sker
sig úr öllu öðru. Þið skulið koma
fötunum ykkar í kynni við strau-
járn, þá getum við eitthvað farið að
tala um virðingu. Ég liefði gaman
að því að vita, hvað Pósturinn seg-
ir um þetta.
H. H. H.
---------Mér finnst það engin
forsenda fyrir því að men þver-
skallist við að þéra aðra menn,
þótt þessir menn gangi ekki veru-
lega snyrtilega til fara. Annað
hvort þéra menn ókunnuga,
hvernig sem þeir eru klæddir,
eða ekki.
Þessi umræddi leigubílstjóri
hefur að mínu áliti verið einhver
undantekning, því að alltof sjald-
an þéra leigubílstjórar mann.
Sammála er ég einnig því, sem
þú segir urn þessa fílhraustu karl-
menn, sem aka leigubílum. Maður
skyldi halda, að þeir hefðu getað
fengið sér einhverja ábatasamari
vinnu, sem krefst þó einhvers af
hæfileikum þeirra, andlegum og
líkamlegum. Og ekki sízt vil ég
undirstrika það, sem þú segir um
klæðaburðinn. Ég hafði ekki
hugsað út í þetta, fyrr en bréf
þitt barst, en þegar ég fer að
hugsa um það, eru líklega ámóta
margir leigubílstjórar, sem ganga
snyrtilega til fara og þeir, sem
kunna að þéra og sýna almenna
mannasiði. Ætli það fylgist ekki
nokkurn veginn að.
úrsmíðameistari
Laugavegi 39 — Reykjavík
Kaupvangsstræti 3, Akureyri
Franch Michelsen
GINSBO
GINSBO úrin eru stíl-
hrein og fögur, nýtízku
úr.
Kaupið úrin hjá
úrsmið.
VIKAN 5