Vikan - 30.08.1962, Qupperneq 20
SNIÐAÞJÖNUSTA
VIKUNNAR
Hérna kemur ákaflega ein-
faldur og þægilegur heima-
kjóll, sem mjög auðvelt er að
sauma. Hann er hnepptur nið-
ur að framan, ermalaus og
kragalaus með belti, sem er
hnýtt lauslega yfir mjaðmir.
Það er rifsefni i kjólnum og
hann er til i 2 litum. Ljós í
grunninn með brúnum köfl-
um og hvítur í grunn með
svörtum og gráum köflum.
Þú getur auðveldlega saum-
að hann sjálf, því Sniðaþjón-
usta Vikunnar sníður liann
fyrir þig og merkir fyrir öll-
um saumum, einnig fylgir
saumatiísögn.
Kjóilinn er til í no. 42, 44 og
4(5 og kostar kr. 130.—, tvinni,
tölur og flísilin kr. 64.— auka.
Útfylltu pöntunarseðilinn
með upplýsingum um stærð og
lit og sendu til Sniðaþjónustu
Vikunnar ásamt 100.— kr., og
þú færð kjólinn sniðinn og
sendan heim i póstkröfu. Ef
þig langar að fá prufu, þá
sendu frímerkt umslag til
Sniðaþjónustu Vikunnar.
Kjólnum verður stillt út í
Kjörgarði, kjóaldeildinni á 2.
hæð. Ailar nánari upplýsing-
ar eru gefnar i síma 37503 á
föstudögum og þriðjudögum
frá kl. 2—5.
PÖNTUNAR-
SEÐILLINN ER
Á BLAÐSÍÐU
40.
BBEFfgp
AÐ :f§||
SUNNAN
Suðurpól.
Kæri Björn.
Það er nú orðið í lengra lagi síðan ég skrifaði
þér síðast, en eftir því sem mig minnir, skulda
ég þér þréf. Það fer allt úr skorðum um hásum-
arið, sem ekki er að undra. Engum er láandi,
þótt hann vilji nota þessa fáu daga. í raun og
veru er sumarið aðeins tveir mánuðir hér á fs-
landi. Og í ágústlok er raunar orðið æði haust-
legt oftast nær. Ég var að lesa það í einhverju
útlendu blaði, að maður hugsi bezt á vorin. Þá
sé einhver vaxtarsproti í hugsuninni líkt og í
grösunum. Svo hugsar maður sæmilega á haust-
in, sagði blaðið, en yfir sumartímann fæðast
sjaldan hugsanir, sem eru mikils virði. Það var
sökum hitans; heilinn vinnur bezt við meðal-
hita. í kulda á vetrum dregur úr starfseminni
og í miklum hitum verður maður sljór.
Við lestur þessarar greinar datt mér í hug, að
við íslendingar ættum að hugsa álíka skarplega
allan ársins hring. Hér er aldrei heitt og aldrei
kalt. Þvílík aðstaða í lífsbaráttunni. En hvern-
ig hugsar fólk? Kannske betur og fjölskrúðug-
ar en annars staðar, en harla ómerkilega samt
að því er mér virðist. Og æði margir hugsa svo
sem ekki neitt, en líða áfram og láta berast með
straumnum án sjálfstæðra skoðana. Og samt
höfum við þessi einstöku skilyi'ði til að hugsa.
Ég var að blaða í Vikunni um daginn og sá
þar grein um nýtt dagblað, sem átti að fara að
hleypa af stokkunum og líklega hefur það litið
dagsins ljós, þegar þetta bréf kemur á þrykk.
Sjálfsagt er það hið þarfasta verk að gefa út ó-
háð dagblað, en mér dettur í hug, að sú hug-
sjón eigi erfitt uppdráttar af einni ástæðu: Eng-
in samtök og enginn stjórnmálaflokkur munu
kreista út fé handa þessu blaði, þegar illa ár-
ar. Öll dagblöðin utan eitt, eru föst í sama pytt-
inum hvað þetta snertir. Fámennið er svo gíf-
urlegt, að það er útilokað að ná nokkurri veru-
legri sölu. Mér hefur komið til hugar, að margt
gætu þessi blöð gert til þess að bæta afkomu
TOMATSR OQ
QURKUR
Afhýðið ekki gúrkurnar, þvi
börkurinn er bætiefnaauðugur
og bragðsterkur. Þær geymast
lengi í kæliskáp, en mega ekki
vera of nærri kælinum. Bezt er
að láta þær í plastpoka eða málm-
pappír ef þær eru geymdar i ís-
skáp.
ÝMSAR UPPSKRIFTIR AF
RÉTTUM, SEM GÚRKUR ERU
NOTAÐAR í.
GÚRKUPIKLES.
Aj-V 30—40 gúrkur, 2’L I. edik, 250
gr. sykur, 4 rauð piparhulstur, 2
matsk. sinnep, 20 mjög litlir laukar,
4 lárviðarlauf, piparkorn.
Gúrkurnar lagðar í sólarhring i
kalt vatn, teknar upp úr og lagðar í
saitvatn (125 gr. salt i hvern 1.
vatns) og látnar liggja í því i tvo sól-
arhringa. Þá eru þær teknar upp úr
og þurrkaðar og skornar i sneiðar,
2—3 cm. breiðar. Allt efnið, ásamt
gúrkunum sett i edikið og suðan lát-
in koma upp. Gúrkurnar lagðar i
hreinar sultukrukkur og leginum
hellt yfir. Látið standa i nolckra
daga og rétt áður en bundið er yfir
þær, verður að setja rotvarnarefni i.
Ef þær eru of súrar, verður að sjóða
þær aftur með meiri sykri áður en
efnið er sett í og bundið yfir.
VENJULEGT GÚRKUSALAT.
leggið þær á disk og annan disk yfir
þær, en stráið salti á þær áður. Legg-
ið eitthvað þungt ofan á efri diskinn
og pressið þær í 15 mín. Hellið þá
leginum, serm safnazt hefur, af þeim
og leggið í lög gerðan úr ediki, sykri,
salti og pipar. Látið standa nokkra
stund.
GÚRKUR A LA CREME.
2 gúrkur, 2 matsk. rjómi, 1 matsk.
hveiti, 1 tesk. salt.
Gúrkurnar rifnar á rifjárni og sett-
ar í pott. Rjómanum hellt á og suð-
an látin koma upp, hveitinu og salt-
inu stráð yfir og soðið litla stund.
Ekkert annað krydd á að setja í, til
að yfirgnæfa ekki gúrkubragðið. Gott
með kjöt- og fiskréttum.
TYRKNESKUR HRISGRJÓNA-
RÉTTUR MEÐ GÚRKUM.
Sjóðið hrísgrjón í vatni og salti i
Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar,
20 VIKAN