Vikan - 30.08.1962, Síða 24
Ungírú
Yndisfríð
Hvflr er
örkín har>s
NÓft?
Síðast þegar dregið var hlaut verðlaunin:
GUNNAR M. HANSSON,
Grenimel 21, Rvík.
Enn er það Örkin hans Nóa, sem unfrú Yndisfríð
hefur falið í blaðinu. Kannski í einhverri mynd-
inni. Það á ekki að vera mjög erfitt að finna hana,
og ungfrú Yndisfríð heitir góðum verðlaunum:
Stórum konfektkassa, sem auðvitað er frá Sælgætis-
gerðinni Nói.
Nafn
Heimilisfang
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR
Gene McDaniels: Chip Chip og Anoth-
er tear falls. Fyrra lagið er fjörugt, og þó
nokkuð sérkennilegt vegna stoppanna í
því, það er mjög vel sungið, enda McDan-
iels í hópi langbeztu söngvaranna, sem
komið hafa fram undanfarið. Siðara lagið
er mjög rólegt og sérstaklega fallegt, jafn-
vel enn betur sungið en fyrra lagið. Minn-
ir McDaniels lítið eitt á söngvarann A1
Hibbler (sem gerði lagið Unchained Melo-
dy frægt fyrir 6—7 árum). Plata þessi er
ekki líkleg til að verða vinsæl, þvi á þess-
um síðustu og verstu twisttímum er hún
of góð til þess. Liberty hljómplata, sem
fæst í Fálkanum, Laugav. 24. ★
GAMLA MYNDIN
Þetta er hin kunna hljómsveit „Gautar“
frá Siglufirði. Myndin var tekin árið 1960
en gæti allt eins vyið tekin árinu áður
eða nokkrum árum þar áður þvi hljóm-
sveitin hefur haldið saman i allmörg ár.
Gautlandsbræður léku upphaflega saman
tveir og voru kunnir um allt Norðurland.
Síðan var hljómsveitin stækkuð og nafnið
stytt í Gautar, sem er stutt nafn og
skemmtilegt. Á myndinni eru f.v.: Guð-
mundur Þorláksson, altósaxófón, Þórður
Kristinsson, trommur, Ragnar Páll Einars-
son, gitar (en hann hefur verið hljóm-
sveitarstjóri Gauta undanfarin ár) og Þór-
hallur Þorláksson, píanó. En það eru þeir
Guðmundur og Þórhallur, sem eru Gaut-
landsbræður og léku þeir upphaflega á
harmoniku. ★
ARETHA FRANKLIN X
NÝ JAZZSÖNGKONA T
Hún er aðeins átján ára
gömul, en komin i hóp
fremstu jazzsöngkvenna
Bandaríkjanna, og það á
hún allt að þakka fyrstu
plötunni sinni, tólf laga
plötu, sem kom út hjá Col-
umbia fyrir nokkru.
Aretlia söng leiigi fram-
an af eingöngu sáltnalög,
eða „gospel-lög“, eins og
visst afbrigði af negra-
sálmum er nefnt, (ekki ó-
svipað og lög þau, sem
Mahilia Jackson syngur —
og hér er reiknað með að
allir kannist við Mahilia
Jackson))
En svo komu tilboðin og
áður en Aretha eiginlega
vissi af, var hún farin að
syngja í næturklúbbum í
New York. Chicago og San
Fransisco, þar sem aðeins
er boðið upp á jazzmúsik.
Framhald á bls. 39.
24 VIKAN