Vikan - 30.08.1962, Síða 28
REX — HÁLFMATT
er eina lakkið sinnar tegundar
á markaðinum. Málarar segja: Einmitt
það sem okkur hefur vantað.
Létt í meðferð, — létt að þrífa.
Þornar á 3 — 4 tímum.
u
ij
% ,
4
'HUpnai*
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr,): I þessari viku
gerist það, sem þú áttir ekki von á fyrr en í
í næstu viku, og kemur það sér að mörgu leyti
mjög illa, þó einkum fyrir þína nánustu. Á
fimmtudag áttu von á skemmtilegri sendingu frá
manni eða konu, sem vill þér mjög vel. Þetta sýnir þér,
að þú hefur til Þessa vanmetið þessa persónu.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. mai): Þetta verður
dálítið óvenjuleg vika, einkum hvað allt félagslif
þitt snertir. Þú munt umgangast fölk, sem þú
sérð í rauninni mjög sjaldan ,og yfirleitt verður
þetta hin ánægjulegasta vika fyrir þig. Einn hæfi-
leiki þinn fær að njóta sín mun meira en áður við Þessa
skyndilegu breytingu, og mætti hann fá að njóta sín fram-
vegis. Heillatala 9.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júni): Þú gerir allt
of lítið til þess að ná framförum í lífinu, enda þótt
þér bjóðist einstaklega mörg tækifæri til þess
þessar vikurnar, og er heldur leiðinlegt til þess að
að vita. Þó gæti verið að nú tækir þú á þig rögg
og létir hendur standa fram úr ermum, og verður það til
þess að þú ferð að líta tilveruna mun bjartari augum.
KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Vandaðu mjög
allt það sem þú segir eða lætur frá þér fara í
vikunni, Því að menn eru óeðlilega fúsir til Þess
að gagnrýna þig fyrir eitt og annað. Ef þú slepp-
ur skammlaust frá þessu, mun virðing þin út á
við aukast til muna. Á vinnustað er dálítið hætt við deilum,
líklega eitthvað í sambandi við peningamál eða launamál.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þetta verður
fremur leiðinleg og tilbreytingalítil vika fyrir þá,
sem ekki kunna að gera sér mat úr hversdagsleg-
um smámunum. Þó má ætla að helgin verði dá-
lítið óvenjuleg og eftir því skemmtileg fyrir fólk
yfir þrítugu. Þú kemur illa fram við einn kunningja þinn,
og veiztu bezt sjálfur, að hann á ekki slíka meðferð skillð.
Meyjarmerlciö (24. ág.—23. sept.): Ekki skaltu
búast við því að vikan verði eins og þú og einn
vinur þinn bjuggust við, því að ýmislegt verður
til þess að breyta áformum þínum til muna. Yfir-
leitt má þó búast við að vikan verði jákvæð fyrir
þig og kunningja þína, þótt það kunni á enihvern undarleg-
an hátt að bitna á öðrum aðilum.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þessi vika
býður upp á ýmislegt nýstárlegt. Þó munt þú
yfirleitt eiga svo annrikt við daglega iðju þína,
að þér gefst engan veginn timi til þess að nýta
þér öll þau tækifæri til nýbreytni, sem þér gefast.
Á vinnustað ríkir einhver deyfð, og gætir þú og einn vinnu-
félagi þinn orðið til þess að koma lífi í tuskurnar.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú virðist vera
að berjast við Það hið innra með þér, hvort Þú
eigir að taka veigamikla ákvörðun strax, eða láta
það biða í kannski nokkrar vikur enn. Líklega
væri þér það hollast að biða ögn, þvi að enn virð-
ist þú ekki undir það búinn að taka þessa ákvörðun upp á
eigin spýtur. Heillatala 3.
BogmannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Þetta verð-
ur vika mikilla freistinga, einkum þó á kvöldin.
Þér gefast óvenjumiklar frístundir, en ekki bend-
ir margt til Þess að þú munir kunna að nota þér
þær á skynsaman hátt. Þú færð skemmtilegt
verkefni að glíma við, líklega á sunnudag eða mánudag, en
hætt er við að áhuginn á þvl dofni fljótt. Heillptala 9.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú kemur i
hús í vikunni, sem þú hefur aldrei komið í áður,
og Þar gerist eitthvað, sem gæti orðið til þess að
breyta framtiðaráætlunum Þinum eitthvað til
batnaðar. Þótt umburðarlyndi sé góður eiginleiki,
virðist Þú vera alltof umburðarlyndur gagnvart kvenmanni,
sem hefur komið fantalega fram gagnvart þér.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú munt
reka þig á það í vikunni, að það þýðir ekki að
reiða sig alltof mikið á náungann, þegar um er að
ræða mál, sem í rauninni einungis snerta þig
sjálfan. Þú verður að læra að vinna einn og sjálf-
stæður. Kona, sem lítið hefur komið við sögu undanfarlð,
)ætur nú mikið að sér kveða, og getur þú hagnazt á sam-
skiptum þínum við hana.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þú virðist ekki
vera alltof vel liðinn meðal kunningja þinna fyr-
ir einhvern verknað, sem þú hefur framið fyrir
skömmu, en þú færð bæði tækifæri til þess að
bæta fyrir þetta í vikunni og einnig til þess að
sýna þeim, að þetta var ðviljaverk, sem ekki endurtekur
sig. Heillatala 14.
*
23 VH4»