Vikan - 30.08.1962, Side 30
cx'v' - •
V
l 1
María Guðmundsdóttír, fegurðardrottning frá í fyrra, hefur
átt viðburðarika daga síðan henni hlotnaðist sá titill. Vikan
hefur áður birt myndir af henni úr starfi hennar í París, en
þar hefur hún unnið sér nafn sem úrvals fótómódel og komizt
á forsíður þékktustu tízkublaða heimsins.
- Maria kom heim rétt áður en hún fór vestur og Dýrleif
Ármann saumaði á hana kjóla fyrir keppnina á Langasandi.
:I| Þið sjáið, af þessum myndum, að Dýrleif er ekkert blávatn i
þessum sökum, enda hafa kjólar eftir hana hvað eftir annað
fengið verðlaun þar vestra. Dýrleif mundi án efa geta setzt
að hvar sem væri úti í þeim slóra heimi og orðið fræg af
iðn sinni.
Maria, sem er há og grönn í vexti, ber einstaklega vel þessa
tignarlegu kjóla, ekki sízt þann síða, hvíta. En blái þjóðbúning-
urinn fer henni mjög vel líka.
Herdís Guðmundsdóttir, Ijósmyndari í Hafnarfirði, tók með-
fylgjandi myndir af Maríu í kjólum Dýrleifar, en hinar mynd-
irnar tók Ijósmyndari Loftleiða við komu hennar út til New York.
| Fegurðardísirnar ferðast alltaf með Loftleiðum og María var
í þar engin undantekning. Erling Aspelund, yfirmaður Loftleiða
\ í New York, tók á móti Maríu. Hún hafði nokkurra daga við-
dvöl í New York á leið til Langasands og áður en langt um
líður getur Vikan ef til viil birt eitthvað af myndum frá dvöl
hennar þar, svo og keppninni.
:W VIKAN