Vikan - 30.08.1962, Page 43
Rgftu
deaUMii^lnM
Draumspakur maður ræður drauma
fvrir Icscndur Vikunnar.
Kæri draumaráðandi.
Fyrir stuttu síðan dreymdi mig
einkennilegan draum. Mér fannst ég
vera í bil, sem strákur, sem ég var
einu sinni meS, á. Allt í einu er
mér litiS á gólfiS og þar liggur for-
láta festi úr glerperlum. Mér fannst
þetta vera festi beztu vinkonu minn-
ar og tek ég hana upp og ætla aS
fara meS hana til vinkonu minnar
en um leið og ég tek hana upp renna
perlurnar af og út um allt gólfið.
Ég hugsaði ekkert um að tína perl-
urnar upp, en hélt áfram ferðinni.
Fyrir hverju er draumurinn?
MeS fyrirfram þökk fyrir svarið.
Stina.
Svar til Stínu:
Draumurinn bendir ekki til
þess að ástarævintýri þitt hið
gamla eigi eftir að endurnýja sig.
Hins vegar virðist draumurinn
aðallega vera bending um að
„bezta vinkona þín“ muni lenda
í svipuðu ástarævintýri eins og
þú lentir í þá og jafnvel með
gamla „stráknum“ þínum.
Kæri draumaráSningamaður.
Mig langar til að fá ráðningu á
eftirfarandi draum. Ég stóð úti á
túni hjá sívölum staur er stóð upp
á endann og var ég að virða fyrir
mér hvað slétt hann væri gaSur.
í því kemur eitthvað fijúgandi, lík-
ast litlu aflöngu kartöflufati að lög-
un. Það rekst í staurinn og brotnar.
Þá kemur annað fat alveg eins og
hiS fyrra nema litlu stærra og fer
á sömu leið, það rekst á staurinn
og brotnar. En þá kemur þriðja fat-
ið og er það stærst, það rekst á
staurinn en brotnar ekki, heldur
svífur þrjá hringi umhverfis hann
en fellur þá til jarðar og á hvolf
en snýst jafnskjótt við og sé ég þá
að það er gulllitað innan og glóir
á ])að. Lengri var draumurinn ekki
og vonast ég lil þess að fá ráSningu
birta sem fyrst.
Draumey.
Svar til Draumeyjar:
Staurinn, sem þú stóðst hjá er
að mínu áliti tákn deiluefnis
rnilli þín og einhvers. Svo virðist
sem þessi deiluefni séu í höfuð-
atriðum þrennskonar, og virðast
tvö hin fyrstu verða áfram á-
steitingsefni, en hið síðasta snýst
ykkur báðum til gæfu og gengis.
Kæri draumaráðningamaður.
Mig langar til að biðja þig að ráða
draum fyrir mig, sem mig dreymdi
um mig og skólasystur mína, sem ég
þekkti fyrst núna í vetur. Hún er
17 ára en ég er 19. Mig dreymdi, að
við vorum að ganga eftir götu í lilt-
um þéttbyggðum bæ, sem mér fannst
vera Garðurinn, en var þó ekkert
likt honum. í þessum bæ voru 2
kirkjur, önnur gul timburkirkja, en
hin stór og grá steinkirkja. Ég spyr
skólasystur mína í livorri kirkjunni
hún hafi verið fermd, og bendir hún
á steinkirkjuna. Svo fanst mér að
það ætti að fara að ferma okkur
saman. Ég gekk inn kirkjugólfið í
hvítum kyrtli og þegar ég kem í kór-
tröppurnar mæti ég gamalli skóla-
systur minni (við vorum saman í
unglingaskóla) og spyr hún mig,
hvort ég sé fyrst núna að láta ferma
mig. Ég sagði henni að ég hefði vilj-
að bíða eftir bróður mínum (en hann
er ári yngri en ég) og væri því fyrst
núna að láta ferma mig. Svo þegar
ég kem upp i kórinn sé ég hvar
standa tveir strákar um 20 ára og
man ég bara eftir öðrum. Hann var
hár og grannur, dökkhærður og var
í mislitum fötum, gráum jakka og
dökkum buxum. Mér fannst þeir
ættu að fermast með okkur. Þegar ég
geng inn i herbergi inn af kórnum,
sé ég hvar ákaflega hugguleg kona
á íslenzkum búning er að klæða
skólasystur mína í hvítan kyrtil.
Þegar við stóðum í kórnum vorum
við öll með íslenzka fána. Stöng
skólasystur minnar var svo stór og
falleg en mín svo lítil og vesældar-
leg og svignaði öll undan fánanum
og var oddhvöss í endann. Ég stóð
alveg við kórtröppurnar og fyrir
neðan sat maður, sem horfði svo
mikið á mig, og fannst mér þá svo
leiðinlegt hvernig mín stöng var og
rétti hana þá við og varð hún þá al-
veg eins falleg og stöng skólasyst-
ur minnar og við það vaknaði ég.
Fyrirfram þökk fyrir ráðninguna.
Á. G.
Svar til Á. G.:
AS dreyma sig fara til kirkju er
venjulega fyrir breytingu til hins
betra í lífinu. Samkvæmt draumnum
voru tveir piltar til staðar upp við
kórinn, sem bendir til að lcirkju-
ganga ykkar hafi verið á einhvern
hátt tengd þedm. AS halda á fána
bendir til hækkunar á hinu verald-
lega sviði hjá ykkur, bæði hvað
mannorð ykkar áhrærir og efnalega.
Hinn hvíti kyrtill skólasystur þinn-
ar bendir til að draumurinn sé
tengdur giftingum. Flaggstöng þín
bendir til að fyrst í stað hafir þú
verið eitthvað vansæl með fram-
vindu málanna, en það lagast allt í
samræmi við stöngina. Maðurinn,
sem horfði svona mikið á þig, er
tákn þess að einhver er farinn að
lita þig hýru auga með hjónaband
eða eittlivað slikt fyrir augum.
MANADAR
RÍTIÐ
í hverjum mánuði.
ViKAN 43