Vikan


Vikan - 21.03.1963, Síða 7

Vikan - 21.03.1963, Síða 7
Það hefur löngum verið deilt um flugvallar- málin hjá okkur íslendingum, og þá sérstak- lega um flugvöllinn í Reykjavík, staðsetningu nýs flugvallar, sem gæti annað öllu okkar framtíðarflugi bæði innanlands- og utan o. s. frv. Málið hefur lognazt útaf á milli hviða, því að framkvæmdir hafa aldrei orðið neinar, hvað sem bezt hefur þótt hverju sinni, og hversu margar nefndir og sérfræðinrar hafa verið látnir rannsaka þetta, en þess á milli hafa áhugamenn kveðið sér hljóðs, vakið upp draug- inn og gert sitt bezta til að fá einhverju fram gengt í framfaraátt, — hver svo sem ástæðan hefur verið hverju sinni. Nú fyrir skömmu síðan risu Kópavogsbúar upp og kröfðust þess að stærstu millilandavél- arnar hættu með öllu að nota flugbraut þá á ; Reykjavíkurflugvelli, sem liggur frá norðri til I suðurs, og stefnir jafnframt á Kársnesið, þar sem fjöldi fólks býr við miklar flugvéladrunur og ónæði af völdum þeirra. Héldu íbúar syðsta hluta nessins fund með sér og samþykktu þetta einróma, og var kjörin nefnd á fundinum til að fylgjast með framvindu málsins og til að ýta á eftir getu. Kom það fram á þessum fundi að íbúarnir hafa gífurlegt ónæði af flugvélaferðum rétt yfir húsþökin, og álíta þeir af því bæði hættu fyrir íbúana, margs konar ónæði og vandræði. Þessi fundur og samþykkt hans mun hafa orðið til að vekja upp þetta mál að nýju, og virðist það eigi saka, því satt bezt að segja er íurðulegur sofandaháttur ríkjandi í þessum málum, því ekki verður betur séð en að mein- ingin sé að reyna að notast við núverandi skil- yrði, svo lengi sem kostur er, eftir þeim upp- lýsingum, sem Vikan hefur aflað sér. Þó eru flestir á einu máli um það, að það beri að stefna | að því að byggja nýjan flugvöll, en um lausn þessa máls greinir menn nokkuð á. Sumir bera við fjárskorti til framkvæmda, meðan s aðrir benda á að það sé í raun og veru dýrara að láta núverandi ástand vara lengur, heldur en að hefjast þegar handa um byggingu nýs vallar. Vikan hefur rætt við marga þá menn, sem láta þetta mál til sín taka, — eða eiga að láta það til sín taka — og birtir hér stuttan útdrátt úr því, sem þeir sögðu í þessum viðtölum. ' 1 GEIR HALLGRÍMSSON, borgarstjóri: „Ég álít æskilegra, að Reykjavíkurflugvöllur verði ekki til frambúðar á þessum stað, en á hinn bóginn er ekki hægt að leggja hann niður, fyrr en önnur lausn hefur fengizt í flugvallar- málum. Það er áreiðanlega nauðsynlegt að gera á- kveðnar endurbætur á flugvellinum í Reykja- vík, til að tryggja fullkomnara öryggi, en slíkar endurbætur eiga ekki að vera í því fólgnar að stækka völlinn til að auka umferð stærri flug- véla, er þurfa lengri brautir. Borgaryfirvöldin hafa sérstaklega óskað eftir viðræðum við flug- málastjórnina um þessi atriði og fleiri, sem borginni koma við beinlínis. Það er því mín skoðun, að það beri að stefna Framhald á næstu síðu. v , Brandur Tómasson, yfirflugvirki F. I.: „Það er mitt eindregið álit að sú stefna að halda áfram Reykjavíkurflugvelli f þessari mynd, sem nú er, sé ekki til annars en að bjóða hættunni heim og eyða fjármunum tii einskis." Sigurður Jónsson, forstjóri Loftferðaeftir- lits ríkisins: „Ég mundi fagna nýjum flugvelli. * Jóhann Gíslason, deildarstj. flugrekstrar- deildar F. í.: „Rcykjavíkurflugvöllur uppfyllir í dag engin þeirra sex skilyrða, sem æskileg eru, fyrir flugvöll við innanverðan Faxa- flóa ...“ Jóhannes Snorrason, yfirflugstjóri Flug- félags íslands: „Ástandið er ails ekki viðunandi og hefur niðurdrepandi áhrif á alla þróun flitg- mála hér heima." 'I Sililll! . tllllpl illllll .. ...................................................................................... ■ •■ m

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.