Vikan


Vikan - 21.03.1963, Page 12

Vikan - 21.03.1963, Page 12
OTLAGINN SMÁSAGA EFTIR DUVAN POLK Það er undarlegt land, sem ligg- ur þögult og einmanalegt í löngum dal upp frá Rio Grande. Það er kallað Big Bend land og reyndar mörgum öðrum nöfnum. Mannlegar verur eru sjaldgæfar þar, en yucca, maguey og kaktusar því algengari. Þetta er land lítils vatns og slæms vatns, þegar það finnst — land, þar sem ekki rignir mánuðum og stund- umum árum saman, en þegar regnið kemur fylgja því þrumur og eld- ingar, sem vekja ótta og ógn hjá manninum og ekki síður hjá dýr- unum, sem ráfa um óbyggð svæðin. Þetta er land, þar sem jarðvegurinn er ófrjósamur og hæðirnar liggja ncktar og þurrar í sólskininu. Menn deyja í þessu hræðilega landi. Þeir deyja úr þorsta og sjúk- dómum og af slysum og stundum af byssukúlum, sem ekki var skotið af tilviljun. En venjulega tærast þeir upp og deyja af þreytu og erf- iði. Þeir vinna þar til blæðir úr hnúunum og svitinn bogar af þeim, en það nægir sjaldnast. Menn koma til Big Bend af mörg- um orsökum, sem enginn þekkir nema þeir sjálfir, og þeir fara þaðan ekki aftur og orsök þess vita held- ur engir aðrir en þeir sjálfir. Þeir hafa sjaldan heppnina með sér, því að dýrir málmar liggja þar ekki á lausu strái, en þetta eru gamlir harðjaxlar, sem ekki gefast upp. Sumir — ekki margir •— koma þangað af því að flutningur þeirra yfir ána getur ekki staðizt rannsókn lögreglunnar, og hvar er hægt að finna einangraðri stað fyrir slíka starfsemi? Og ég? Ég fór þangað af því að landið var ódýrt. Það var ódýrt að kaupa það og enn ódýrara að leigja það, en samt var það of dýrt. En fyrir þann, sem átti ckki nema nokkra dollara, en óslökkvandi löngun til að horfa yfir jarðarskika og segja að hann ætti hann — hvort sem það var gott eða slæmt land — til að sjá nokkrar gamlar kýr þar á beit og vita einnig að hann ætti þær — fyrir hann var Big Bend staðurinn. Það var hægt að kaupa stórt land og leigja þúsund ekrur í viðbót, fyrir það sama og ein föt kostuðu þegar ég kom þangað 1920. Ef maður reiknaði með hundrað ekrum fyrir kúna, hafði maður gert ráð fyrir of litlu. En það var það, byssa og sú djúpa virðing sem þeir báru hvor fyrir öðrum sem ég hafði reiknað með þegar ég flutti hingað, en ég var fljótur að komast að því, að það var ófull- nægjandi. En samt leigði ég mér ekki meira land. Það voru sama sem engar girðingar í öllu landinu, og hvers vegna skyldi ég þá vera að því? Fólkið, sem átti landið sá það næstum aldrei, hvað þá að það not- aði það. Ég býzt við að það hafi verið skynsamara en ég. Ég var ungur maður þegar ég fór þangað, 1920, en gamall maður 1925. Þess meira sem ég vann, því minna græddi ég og kofinn, sem ég hafði klambrað saman til bráða- birgða þegar ég kom, var enn þá eina höllin, sem ég átti. Ég keypti mestmegnis gamlar kýr til að byrja með, af því að það var hægt að fá þær ódýrari en ungar, en þar gilda sömu lögmál og annars staðar. Þú færð það sem þú borgar fyrir. Ég átti sjálfsagt fleiri gamlar og geldar kýr en nokkur annar maður í Tex- as — nema að nautin, sem ég fékk hafi verið í fríi. Ég fékk nokkra kálfa, því er ekki að neita. En fjallaljónin voru al- geng í hæðunum í þá daga og flestir kálfanna minna fylltu maga þeirra eða úlfanna, en það virtist sem þess- ar skepnur hefðu vaktaskipti við að sitja um kálfana mína. Ég var í þann veginn að gefast upp, mörg- um sinnum, og það hefði ég átt að gera, cn gerði það ekki. Þennan dag stóð ég í dyrunum og horfði á rykið þyrlast upp löngu áður en ég heyrði hljóðið í bílnum. Þegar hann loks kom í ljós, teygði ég mig eftir rifflinum og setti hann við hlið mér. Það getur verið að ykkur finnist það hafa verið óþarft að rjúka þann- ig upp til handa og fóta á árinu 1925, en þá skuluð þið aðeins hug- leiða hve margir eru drepnir enn í þannig löndum og líkunum svo bara kastað í næsta gil — og það aðeins til þess að ná í ómerkileg- ustu hluti, svo sem skó af líkinu. Það er kannski ekki alveg eins al- gengt nú á dögum eins og það var, það verð ég að játa, því að landið er þéttbýlla núna. En í þá daga gátu þeir, sem kærulausir voru, átt von á slíku. Ég get meira að segja sýnt ykkur stað, sem það kom fyrir og það er ekki lengra en tvö ár síðan. Þeir drápu hann til þess að ná fötunum hans og fimm dollurum, sem hann var með á sér, en þó voru þeir aukaatriði. Ég geri mér far um að vera ekki kærulaus, jafn- vel þó að gestirnir komi í bílum. Vegurinn upp a3 húsinu var varla annað en troðningur og bíllinn velt- ist töluvert á leiðinni og ökumað- urinn blótaði líka. Hann stanzaði opinn bílinn fyrir framan dyrnar hjá mér og sat svo og starði á mig drykklanga stund. Hann var sex- tugur eða meira, stór með rautt andlit og hrokafulla framkomu. „Ég er að leita að Fife Gillespie,“ sagði hann loks. ,,Ég geri ráð fyrir að þú hafir fundið hann,“ sagði ég. „Þú lítur ekki út eins og ég hafði hugsað mér þig,“ sagði hann ó- ánægður. „Ég get ekki lýst því, hve mig tekur það sárt.“ „Mér líkar ekki við kjaftfora menn.“ „Jæja,“ sagði ég, „ekki bið ég þig um að vera hér.“ „Merm eins og þú valda mér ó- gleði,“ sagði hann og spýtti yfir bíl- hurðina. „Þeir eiga gamlan jálk og veika kú og halda svo að þeir séu sjálfstæðir. Fjandinn hafi það,“ sagði hann, „en ég hef meira gras í garðinum heima hjá mér en þú á öllu þessu bölvaða flæmi.“ „Ég veit ekki á hvaða fjalli þú ert konungur," sagði ég, „en það er áreiðanlega ekki hér um slóðir. Það er sami vegurinn, sem liggur burt og sá, sem liggur hingað heim.“ Ég sneri mér við og gekk inn. Ég heyrði marrið í bílhurðinni og í sömu svipan var maðurinn kominn inn á eftir mér. „Ég hafði ekki lokið við að tala við þig,“ sagði hann. Ég tók upp riffilinn. „Jú, höfðum við nokkuð meira að tala um?“ Byssan hræddi hann ekki. „Ég er með tilboð til þín,“ sagði hann. „Það er tilboð um 5000 dollara, og eftir því sem mér sýnist ástandið hjá þér, eru þetta þeir einu pening- ar, sem þú átt kost á í bráð.“ „Búgarðurinn minn er ekki svo mikils virði,“ sagði ég önugur, en dálítið forvitinn. „Ég mundi ekki taka við þessu kaktusbeði þínu, þótt mér væri gef- ið það,“ sagði hann, „hvað þá vera svo vitlaus að kaupa það.“ Framhald á bls. 44

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.