Vikan


Vikan - 13.06.1963, Blaðsíða 31

Vikan - 13.06.1963, Blaðsíða 31
ORÐ 5' KVIÐUB. AI+ALD 1NDÍAM AR BEft- A£ SAM- HLS. TL2 0T FRuM- EDÓð/1 KíOR- IR LÆRI ein s EAH- HL1. TOON L 70 UU VÖRU- El Ntkl^ SKST I\UUSIH 'f/ l/ARP TOHJ/U VÉU HEUUI m U 4 > > vzRrn FRÆDSL KOL'U A | HYuUi FELACr «oÍCrl IS.XAE-1 STAND- uC VIÐ KVÆM lÉtt- IR HULDU- VERU P’ÍZKT PLTÖJ TALA TÖT - ÖÐLIiT ■ J ’OHRE/M iUD/ EIUKS7 1 i BÆ3AR- K/AFKJ TIHA- /i/L beabí u- Homnjw TOMT Í EINiS | LEHGI^ S4MHL1 T~ nJ/ > V / &OK KVWJAÐ- F0I?4,E™ MAMS- BÓK FíaÖT FOG- S£7A/- FOAR- V/ST 7AUA HREVF- IR 'Y ct° T ÍCCL’A ÞYVCrP —> TkUHCf, '/ T O U V Wt/S HBIT/ . ■ 1 ’ ÞSF- URlOtJ IANOAM y|Tj| cjc § UJ QC ~r/\LA SAWWCJ SAH • l-U-7). k SAM - HLl. MAÐ- U R l'W \~Y& pT ecfr iV/cV» KJW TÍMAH6T m ’ctVRtf 5 3 uT J i 1-ieEJF- Uv^ú EJPuU, 1 FF6Ð T'L tj'ar MAVKr > P/EZV- puTT FEPtfc-UÍ G-R'iPA SÉR- HLT. HÚÐ VAU- L/&AL uv EL/DIUt • VESAL' FL.1< 7C UU MILLI- 50 NGU* MAÐUR SAH- HL1. &EÞIÐ SAH' tevgip 1 DDVUl' UfS. 1 J HLAUPTl. LOCr/UA FELA M4VUS MAÐUfi H’ATÍÐ > LA’TUES 8ÆU k 'í' V VEPtC- ETJEÐ/ i TALA &EISU SAH- hld. TDU- LIS-T ÖVEDVk MÖCrU- LEIMft ÍVAR- MUA OARÐ EIG M F C/G-t— TCUfj —> HRlV G / E/US s'ktA samst. VONDUÍ ouð 4 0 F u rm^iL m w SAMÍT. SAR—> GL ITRA S7ACF G-E'IPA » > tAla. FEZ.4& TgÉ Tiv i - HLZ. EPLie VIKUNNAR Vikan veitir eins og kunnugt er verðlaun fyrir rétta ráðningu á krossgátunni. Alltaf berast margar lausnir. Sá sem vinninginn hefur hlotið fær verðlaunin, sem eru 100 KRÓNUR. Veittur er þriggja vikna frestur til að skila lausnum. Skulu lausnir sendar í pósthólf 149, merkt „Krossgáta". Margar lausnir bárust á 19. kross- gátu Vikunnar og var dregið úr réttum ráðningum. Aurora Halldórsdóttir Kvisthaga 6, Rvík. hlaut verðlaunin, 100 krónur, og verða þau send til hennar. Nafn Heimilisfang Lausn á 19. krossgátu er hér til hliðar. = = = = s k $■ m-m tialglingo p á 1 m i «■ 6 ,á:-r 'ií B a = ti ö 11 áskllja = teynia*'basel = = = skemm,t. ifer B a s k i f «> = = = 1, mba = nirfill = j é = = = = =erg = arar = kannt = = = = = nagg. = = rœsa=eir asákn==aron=k=nœfri = áfrýnn = œfa = nsst = = = skrár-fiBludiskinne unir = au=látur ka 6 a 1 1 B. = B = afl.eit = g = ag = f=. n •rausn = linu. raf-l-nnra œBri=f = = gnoBar.= ágeB na = flos = uggur = stig = ull=0rt=rugga=tafir m=abikar»rlgna=etna = sláBum=á = niggari»g skatarauBan = lngunnn 2Q — VIKAN 24. tbl. CONSUL CORTINA Cortina er laglegur bíll og hefur marga góða eiginleika, en er í sumum atriðum ekki nógu vcl gerður. DE LUXE SUPER Vél: 64 BHP, 4 strokka, 1498 cc, borvídd 80,96 mm, slaglengd 72,75 mm. Fimm höfuðlegur. Vatnskæld, liggur framan í. Drif á afturhjólum. 4 gírar áfram, allir samstilltir. Lengd 4,28 m, breidd 1,59, hæð 1,45 m. Minnsta hæð undir 16 cm. Beygjuradíus: 5,20 m. Verð: Tveggja dyra kr. 146 þús. Cortina er bráðþokkalegur í útliti. Hann er einnig smekk- legur að innan, og maður sit- ur þægilega undir stýri. Öll stjórntæki eru nærtæk og vinna vel — nema stýrið. Útsýni er gott og bíllinn lipur í snúningum. Farangursrúmið er ekkert tiltakanlega lítið. Mótorinn er kraftmikill og „flexible." Fjöðrunin eins og gerist og gengur, þó fremur þýð, bremsurnar ágætar. Mælaborðið er svart og matt að ofan, hvítt þar fyrir neðan. Látlaust og einfalt. Hraðamælir og benzínmælir, annars bara Ijós. Kveikjulás fyrir vinstri hendi, rúðusprauta, innsog og þurrka fyrir hægri. Ljósrofi, ljósastillir, stefnuljós og flauta á armi á hentugum stað út frá stýrisstöng vinstra megin. Mér finnst alltaf leiðinlegt, þegar annars skemmtilegur bíll er skemmdur með því að ganga ekki nógu vel frá því, sem manni finndist ætti að vera auðvelt. Þannig virðist mér farið með Consul Cortina. Ég trúi þó ekki öðru, en það hafi verið einhver stillingar- galli í stýrinu á þeim bíl, sem ég prófaði. Það getur varla verið normalt, að nýr bíll sé svona rásgjarn; að maður þurfi sífellt að vera að rétta hann á veginum. Ég trúi heldur ekki öðru, en Bretar geti búið til betri sæti en þeir hafa látið aftur í Cortina. Það er fráhrindandi að setjast inn í glænýjan bíl og sunka í gormabraki alla leið niður í gólf. Framsætin eru að vísu ágæt, Framhald á bls. 46. Karlskröggurinn mátti ekki kvenmann sjá. Framhald af bls. 25. stæðari eðlishvötum sínum, þegar hann fór að hugga telpuna. „Róleg, ljúfan litla,“ sagði hann. „Bíddu hérna, á meðan ég finn hana systur þína.“ Honum heppnaðist ekki einungis að finna systurina, heldur bjargaði hann og úr rústunum tveim frænd- systrum þeirra. Hann hamaðist eins og óður væri við að ryðja brakinu og grjótinu ofan af særðu og inni- byrgðu fólkinu og innan stundar bættust fleiri í hópinn, sem sloppið höfðu óskaddaðir úr ósköpunum, og veittu honum lið. Þegar búið var að bjarga þeim, sem bjargað var á þessu býli fór hópurinn yfir á næsta býli, þar sem aðkoman reyndist sízt betri, og þannig vann þessi hóp- ur að björgun fólks úr rústum bændabýlanna í nágrenni kaupstað- arins, undir foryztu Kriscovich, í nærri tvo sólarhringa samfleytt. Hamaðist þó enginn honum líkt, því að það var eins og á hann hefði runnið berserksgangur; hann ruddi til brakinu á við tvo eða þrjá, gerði að sárum hinna slösuðu eftir megni, náði í vatn og mat eftir því sem auðið var, og linnti ekki fyrr en hann þraut svo þrek, að hann mátti sig ekki hræra. Þurfti þá og ekki lengur við foryztu hans, því að þá var hið opinbera farið að skipu- leggja björgunarstarfið, bæði úr rústum borgarinnar og í nágrenn- inu. Nú leið svo vika, að Fortunato lifði sem frjáls maður, en svo beind- ist athygli yfirvaldanna að honum, og þá var ekki að sökum að spyrja. En hart var það fyrir hann, að verða að gefa sig á vald hinna vopnuðu lögregluliða, eftir að hafa fengið þetta einkennilega tækifæri til að njóta lífsins, að svo miklu leyti sem slíkt kom til greina þessa fáu daga, eins og allt var í pottinn búið. En hvað um það; lögregluliðarnir leiddu hann á brott, en sumar af konum þeim, sem hann hafði bjargað úr rústunum, vöfðu hann örmum og kysstu að skilnaði, og menn þeir, sem unnið höfðu með honum að björguninni, kvöddu hann með virð- ingu og aðdáun. Svo fór, að fangelsisyfirvöldin sáu sér ekki annað fært en að sýna hinum unga garpi nokkra viður- kenningu fyrir björgunarafrekin, svo mikil var frægð hans orðin, og þeir svo margir, sem töldu sig eiga honum líf að launa. Mál hans var tekið upp aftur, af þeim hinum sömu dómurum í Lombardy, sem áður höfðu dæmt hann. Eftir mikið skjalavafstur, þref og rekistefnu, var það loks ákveðið, að Fortunato Kriscovich skyldi sýnd sú linkind með tilliti til björgunarafreka hans, að hann fengi að eyða síðustu ævi- árum sínum utan fangelsismúranna. „Nái hinn dæmdi fimmtugsaldri, skal honum þá sleppt úr haldi, að hann megi fara frjáls ferða sinna,“ sögðu dómararnir. „Og þó að hann geti ekki gert sér vonir um, að dauðasynd hans sér þar með afplán- uð, er því að treysta, að hann hafi þá náð þeim siðgæðisþroska, sem réttlæti að honum sé veitt frelsi.“ Og Fortunato Kriscovich lifði það að verða fimmtugur. Þá var stjórn- arbylting á ítalíu og þjóðin í borg- arastyrjöld. Bergmálið af átökunum heyrðist jafnvel gegnum hina þykku múra virkisdyflissunnar á Messina, sem þá hafði fyrir löngu verið end- urreist. En Fortunato gaf því engan gaum. Áratugum saman hafði hann beðið þess eins að sá dagur rynni upp, er hann væri aftur frjáls mað- ur, og annað skipti hann engu máli. Árið 1928 gekk hann sem frjáls maður út fyrir múra virkisdyfliss- unnar. Þær lírur, sem hann hafði innunnið sér í fangavistinni, hafði hann látið sauma inn í fóðrið á frakka sínum. Vopnaður lögreglu- liði fylgdi honum út í ferjuna yfir sundið. Á leiðinni þangað, virtist hinn fyrrverandi fangi ekki taka eftir neinu öðru en kvenfólki því, sem varð á vegi hans — en það gerði hann líka svo að um munaði. „Che bella donna“, mælti hann stundarhátt, sneri upp á yfirvarar- skeggið, sendi þeim fingurkossa og lifnaði allur við, er hann þóttist sjá þess merki, að enn mundu konur ekki með öllu ósnortnar af ástleitni hans. „Hvílík fegurð,“ mælti hann. „Hvílíkur líkami ...“ Og svo breiddi hann út hendurnar eins og hann vildi gefa til kynna takmarka- leysi unaðarins og nautnanna, sem slíkur líkami byggi yfir. Var allt hans hátterni slíkt, að lögregluliðinn var þeirri stund fegnastur þegar hann hafði komið honum um borð í ferjuna og var þar með laus við hann. Þegar ferjan lenti við Raggio Calabria, gekk Fortunato Kriscovich léttum skrefum sem í dansi upp Via Marina Alta. Virtist hann, þrátt fyrir allt látæði sitt, hafa nokkuð lært af reynslunni, því að honum varð það fyrst fyrir að fara inn í eina af hinum mörgu vínverzlunum við það stræti og kaupa þar tvær flöskur —- „til þess að ég hafi báðar hendur við axlir fastar“, sagði hann, „því annars lendi ég óðara í vandræðum og verð sendur um hæl í dyflissuna. Stundarkorni síðar var hann orð- inn hálffullur; gerðist þá áleitinn við afgreiðslustúlku í kökubúð við Via Lungomare og kyssti gamla konu á kinnina, um leið og hann dásamaði af mikilli mælsku „sí- gilda mýktina í vaxtarlínum henn- ar“. Síðan reikaði hann, sætkennd- ur, um göturnar og það var eins og eðlisávísunin stýrði skrefum hans að dyrum vændishúss, þar sem hann dvaldist síðan í fulla þrjá sól- VIKAN 24. tbl. — gj

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.