Vikan - 21.11.1963, Síða 6
Alltaf fjölgar Volkswagen
Volkswagen g-etur farið áfram
Hann getur farið hratt
og aftur á bak
og hægt
og niður
hann ekki afbragð.
Hann getur farið upp bratta
Hann getur farið í hring.
Volkswagen
HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
Spádómur ...
Vikan:
Að þið skulið alltaf reyna að
vera svona „menningarlegir!“
Það verður tómt píp úr þessu
hjá ykkur. Til dæmis þessi
kjaftavaðall um hvernig lífið
verður á íslandi eftir 25 ár! Að
þið skylduð ekki slátra kind
og lesa það úr görnunum á henni.
Komið heldur með meira af sög-
um og spennandi frásögnum,
eins og Demantar í Paradís, það
er miklu betra en þessar menn-
ingarspár.
Anton.
Á að bjóða honum ...
Kæra Vika.
Mig langar til að senda þér
nokkrar línur og byðja þig að
hjálpa mér. Ég er agalega skot-
inn í einum strák sem ég þekki
pínu lítið mig langar svo að
kynnast honum betur hvað á ég
að gera.
Ein ung.
— — — Ef þú ert ekki orðin
10 ára, skaltu bara bjóða hon-
um í afmælið, en sértu eldri en
10 ára, er ég illa svikinn.
Gott viðtal . . .
Vikan, Reykjavík.
Ég óska ykkur til hamingju,
með viðtal Sigurðar Einarssonar
frá Holti við Gideon, Hausner,
sem birtist í afmælisblaðinu. Með
því lyftuð þið ykkur upp á hærri
menningarstandard en önnur
vikublöð eða tímarit íslenzk
standa á. í heild var þetta afmæl-
isblað mjög gott, og sýnir, að þið
getið, ef þið viljið. Ég óska ykk-
ur þess, að þig megið bera gæfu
til þess að halda stíft í stjórnar-
taumana og halda blaðinu í því
áliti, sem það er nú smám sam-
an að vinna sér.
Geir V. Jónasson-
Hver var fyrst? ...
Kæri Póstur.
Viltu gjöra svo vel að leysa
úr deilumáli fyrir okkur. Sum
okkar halda því fram, að „South
Pacific“ hafi verið fyrsta kvik-
myndin, sem Laugarásbíó sýndi,
en við getum ekki öll orðið sam-
mála um það. Getur þú frætt okk-
ur um þetta, og ef þetta er ekki
rétt, þá hvaða mynd hafi verið
sýnd þar fyrst, og hvenær.
Ósammála-
--------Niður með hnefana —
South Pacific var fyrsta mynd-
in í Laugarásbíói.
Svar til Antons...
—-------Mér er alveg sama þótt
þú standir í húsbyggingu og
sért í örgustu f járkröggum þessa
dagana, það réttlætir ekki svona
hnupl. Þótt skrifstofuna muni
e. t. v. ekki um þessi hnífapör...
Hamstur...
Kjæri póstur.
Nú er ég illa stödd ég er ný
byrjuð að búa ég bí ovar lega
á laugarveginum ég er ekki
nerpa 19 ára og á 1 strák hann
er kolvittillaus að fá hamstur
pabbi hans kepti 1 hamst en
hann nagar allt og gerir mig
svo hrædda hvað á ég ag gera:.
Birna’.
--------Slæmt ef þú ert hrædd,,
Birna, en er það pabbinn, sem
nagar hamsturinn, eða nagar
hann strákinn? Nagar kannski
strákurinn hamsturinn eða nagar
hann pabba sinn eða getur ver-
ið, að það sé hamsturinn, sem
nagar strákinn eða ef til vill
pabbann? Það sem gleymst hef-
ur að taka fram í bréfinu, skýrt
og skilmerkilega, er hver nagar
hvern.
Okur ...
Kæri Póstur.
Er það þáttur í takmörkun ■
barneigna að hafa allar „barna“
vörur svona óheyrilega dýrar?
Ég veit ekki, hvort þessar vörur-
eru svo dýrar í innkaupi, en þó
veit ég um nokkur dæmi, þar sem
smurt er allhressilega á þessar
vörur, og vel það.
Ég segi fyrir mig, að ég veigra
mér við að eignast fleiri böm —
það setur manninn minn gersam-
lega á sausinn, og hefur hann þó
dágóðar tekjur. Það er nú einu
sinni svo, að nútímabörn gera
sér ekki móðurmjólkina og sáran
bossann að góðu fram eftir öllum
aldri. Með kærri kveðju og ósk
um einhverja úrlausn.
Ung móðir.