Vikan - 21.11.1963, Síða 14
Kaupsýslumaðurinn sat eftir með
sárt ennið og horfði á eftir þeim
harður undir brún að líta. Ekki
kunni hann þó við að vekja ó-
spektir þarna í salnum, en gekk
að borði þeirra og settist. Taut-
aði hann fyrir munni sér, að nú
skyldi piltpeð þetta fá að kenna
á sleggjunni. „Verstur skollinn
að þetta er gestur minn, en fyrr
eða síðar skal að því koma að
ég jafni um gúlana á honum.“
Elísabet kom nú einnig að
borðinu, og var í engu betra
skapi en Sigtryggur Háfells.
Litu þau hornauga hvort til ann-
ars; hún hristi höfuðið gremju-
lega, en hann mælti stundarhátt:
„Það endar með því að ég slæ
hausinn niður í maga á honum
og upp aftur. Það er kominn tími
til að kenna þessu gerpi manna-
siði.“
Ása var einnig gröm, þótt hún
léti ekki á því bera. Hún ætlaði
sér ekki að dansa lengur við
Herjólf en þar til þau nálguð-
ust borðið þeirra, er stóð úti
í horni, en sálfræðingnum tókst
æfinlega að sneiða þar hjá, og
þau héldu því áfram dansinum
góða stund. Brátt komu einnig
Bergur og Lóa. Reyndu þau að
hefja samræður og taka upp létt
hjal, en varð lítið ágengt. Bíl-
stjórarnir voru báðir orðnir þétt-
kenndir og voru að segja hvor
öðrum mergjaðar sögur í hálf-
um hljóðum.
Dansinn dunaði í salnum enn
um stund. En allt í einu gaus
upp hávaði mikill í þeim enda
hans, sem fjærstur var borði
ferðafélaganna. Heyrðist þaðan
bölv og ragn, digurbarkalegar
hótanir og loks dynkir af högg-
um. Loks yfirgnæfðu þó hræðslu-
óp Ásu ólætin: „Sigtryggur!
Sigtryggur! Þeir drepa hann!
Komdu maður! Æ, flýttu þér!“
Kaupsýslumaðurinn hvessti
augun þangað sem slagurinn
stóð, og reis síðan seinlega á
fætur. „Ekki kann ég við það
— meðan djöfsi er gestur minn
— barinn verður hann fyrr eða
síðar, en það ætla ég að sjá um!“
Þar með steðjaði hann af stað
og hvarf brátt í mannþröngina,
Bergur og bílstjórarnir héldu
þegar á eftir honum.
Herjólfur B. Hansson hafði
farið óvarlega í dansinum, rekizt
á menn og hreytt í þá skammar-
yrðum í stað þess að biðja þá
afsökunar. Létu flestir það gott
heita, en loks varð honum á að
krækja fæti fyrir einn digran
drjóia, er var nokkuð óstyrkur
fyrir og féll á bæði knén. Vildi
sá ekki þola sneypu slíka og tók
að velja sálfræðingnum hin
háðulegustu orð. Herjólfur B.
Hansson snaraðist þá úr jakkan-
um og kvaðst hvergi hræddur
við kjaftfora dóna. „Komdu
bara ef þú andskotans þorir!“
sagði hann og otaði krepptum
hnefa að manninum. Drjólinn
horfði á hann andartak dolfallinn,
en tók síðan til starfa. Fékk sál-
fræðingurinn þegar tvö væn
kjaftshögg og riðaði við, en átt-
aði sig brátt og tók að lemja
utan mótstöðumann sinn. Var
það líkt og að sjá barn berja tröll,
og brá drjólanum svo við, að hann
fór að skellihlæja. Espaðist sál-
fræðingurinn við það, og tókst
honum nú að koma sæmilegu
höggi á nef andstæðings síns.
Reiddist drjólinn þá aftur, tók
steinbítstaki á Herjólfi og beygði
hann niður, eins og hann ætlaði
að hálsbrjóta hann. Blönduðu
fleiri sér nú í slaginn, og börðu
þeir allir sálfræðinginn. Þá var
það að Ása hrópaði á hjálp.
„Ertu kanske búinn að fá nóg,
tuskan þín?“ sagði drjólinn, en
linaði þó ekki á takinu. Herj-
ólfur B. Hansson var farinn að
stynja og blána í framan. f sama
bili kom Sigtryggur Háfells á
vettvang. Rétti hann þegar drjól-
anum harðan upper-cut, svo að
maðurinn tók andköf og andar-
taki síðar ruku þeir saman. Var
sá aðgangur bæði harður og lang-
ur, en loks tókst kaupsýslumann-
inum að koma drjólanum í gólf-
ið. Var þá slegizt allt í kringum
þá og réðust þegar tveir menn
á Sigtrygg Háfells. En nú voru
einnig bílstjórarnir og Bergur
komnir honum til hjálpar, á
móti heimamönnum; voru nú
greidd mörg högg og stór, og
mátti lengi ekki á milli sjá. Þó
fór svo, eftir að barizt hafði ver-
ið í nokkrar mínútur, að báðir
aðilar þóttust hafa fengið nóg,
og sömdu orðalaust vopnahlé.
Voru menn að vísu svipþungir
og töluðu ljótt, en tíndust þó
brátt til borða sinna.
Ása hafði dregið Herjólf út
úr þvögunni, og að borði þeirra
félaga, enda var hann þá óvígur
orðinn, náfölur og óstyrkur á
fótum. Tók Elísabet þar við hon-
um og baðaði enni hans úr köldu
vatni.
Er slagnum linnti, komu karl-
mennirnir fjórir aftur að borð-
inu; höfðu þeir allir skrámur
nokkrar, bólgin augu og rifin
föt, voru þó í bezta skapi. Sig-
tryggur Háfells hló stuttlega og
mælti: „Harðir eru hnefarnir á
Norðlendingum — og þáð fann
ég nú að ég verð að fara að
megra mig þegar heim kemur.“
Hann gaut augunum til Herjólfs
B. Hanssonar og glotti. „Ekki
datt mér það í hug að ég ætti
eftir að berjast fyrir þig, skratt-
inn þinn! Það verð ég þó að við-
urkenna, að þú ert engin skræfa;
samt held ég að þú ættir að fara
varlega í það að skera uppá fyrir
menn, sem geta kramið þig
undir þumalnögl sinni.“
„Æ, vertu ekki að rífa neinn
kjaft!“ stundi Herjólfur B. Hans-
son, og í sama bili tók hann að
æla á diskinn sinn.
„Ættum við nú ekki að fara að
halda í háttinn?" sagði Bergur
garðyrkjumaður með sinni
venjulegu rósemi.
„Viturlega mælt,“ anzaði kaup-
sýslumaðurinn og reis á fætur.
XXVIII.
Þau komu til Reykjavíkur
klukkan níu kvöldið eftir. Var
Bergi Þorsteinssyni fyrst ekið
upp í Mosfellssveit, og kvöddu
þau hann öll með virktum.
Stúlkurnar kysstu hann báðar á
vangann, og blóðroðnaði garð-
yrkjumaðurinn þá út að eyrum
en hinir karlmennirnir hlógu að
honum. Því næst var farið heim
með Herjólf B. Hansson og Elísa-
betu. Var sálfræðingurinn þunn-
ur, og gaukaði Sigtryggur Há-
fells að honum -wiskýflösku að
skilnaði. Elísabet gaf flöskunni
hornauga, en lagði síðan hend-
ur um háls kaupsýslumanninum
og kyssti hann á munninn. „Þú
ert mesti heiðursmaður," sagði
hún rökum augum. „Og það vona
ég að þú fáir hana Ásu, þú átt
það skilið."
Þá var Lóu Dalberg ekið heim,
og voru þau nú ein eftir með
Árna bílstjóra, Ása og Sigtryggur.
Er þau komu að steinbænum,
fylgdi hann henni inn í garðinn,
en staðnæmdist við búðardyrn-
ar. Dóttir spákonunnnar var
dálítið niðurlút og líkt því sem
hún færi hjá sér, en loks leit
hún upp og augu þeirra mætt-
ust.
„Ása — Ása?“ stamaði kaup-
sýslumaðurinn; honum var aldrei
þessu vant stirt um mál.
Þá er nú víst komið að því,
hugsaði hún; þessu verður víst
ekki frestað lengur.
„Þakka þér nú hjartanlega
fyrir alla skemmtunina," sagði
hún lágróma. „Þetta var yndis-
leg ferð — og ekki veit ég
hvernig ég á að launa þér þetta
allt.“
„Ætli þú vitir það ekki þó?“
mælti Sigtryggur Háfells, og
rödd hans var talsvert annarleg.
„Ég veit að það er ljótt að
draga þig á þessu,“ hvíslaði hún.
„Og nú skal ég gefa þér ákveðið
svar — á föstudagskvöldið. Ertu
ánægður með það — bara þrír
dagar þangað til?“
„Þeir verða lengi að líða,“
mælti kaupsýslumaðurinn og enn
var rödd hans talsvert öðruvísi
en hún átti að sér.
,Á föstudagskvöldið", endurtók
hún. „Komdu eftir lokun —
komdu klukkan níu“.
„Fæ ég þá alveg ákveðið svar?
„Já, en gerðu þér ekki allt
of miklar vonir — ég þori ekki
að lofa þér neinu“.
En er hún sá vonbrigðin í svip
hans, vafði hún handleggjunum
um háls honum og kyssti hann
á munninn. Það var snöggur og
barnslegur koss, sem gerði hann
þó eigi að síður mállausan. Hann
gat aðeins kinkað kolli og reynt
að brosa til hennar, en brosið
var bara gretta. Svo sneri hann