Vikan - 21.11.1963, Side 32
verksmiðjurnar eru
stöðugt í fremstu röð
framleiðenda
lífstykkjavara.
Nú eru komin á mark-
aðinn frá okkur vörur
úr SPANDEX,
nýjasta efni lífstykkja-
framleiðslunnar.
SPANDEX er þynnra
og mýkra en önnur
teygjuefni, en hefur
þó meiri teygjanleika
og gefur betri
stuðning.
Biðjið um
Kaníer’s
- og þér fáið það bezta
VEL KLÆDD KONA ER VANDLÁT í VALI SÍNU
Á LÍFSTYKKJAVÖRUM.
Kaníer 's
*
ii
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudcgi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — £0. apríl):
Þú öðlast ’nylli glæsilegrar og gáfaðrar konu, sem
mun reynast þér holiur vinur og ómetanlegur ráð-
gjafi. Eins þarftu samt að gæta og það er að hún
r.ái ckki of sterkum tökum á þér og farirðu ekki
að ráðum hennar þá rcynáu að halda því leyndu.
Naut mcikið (21. apríl — 21. maí):
VJnátta einhvers, sem þú hefur metið mikils, reyn-
i"3t þér nú verri en ekki. Vertu vitur í vali þeirra,
sem þú gerir að trúnaðarmönnum þínum. Ef þú
lætur á engu bera, þá mun þér berast hjálp úr
óvæntri átt. Kvöldstund með vini þínum hressir upp á þig.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Tilfinningar þínar varna þér að nokkru leyti rétts
mats á aðstæðum þínum og að þú lendir í óþarfa
v'ndræðum vegna fljótfærnislegra og óyfirvegaðra
athafna. Mundu að með augum lítils barns muntu
skynja fullkomnun hlutanna.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Það bíður þín óvænt velgengni, eftir nokkurt tíma-
bil þrotlausrar vinnu og vonbrigða. Vertu vinum
þínum trúr og láttu ekkert skilja þig frá þeim
því þeir eiga sinn þátt í að gera drauma þína að
veruleika. Þú tekur þátt í smá hrekk, sem hressir upp á
tilveruna.
Ljcnsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú átt við nokkra örðugleika að etja. Persóna sem
er þér kær krcfst þess að þú leggir mikið á þig,
og þú verður að framkvæma þetta, það þýða eng-
in undanbrögð. Konur þessa merkis eiga mjög ham-
ingjusamt heimilislíf í vændum.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú færð alvarlega prófraun við að glíma, ef þú
ferð ekki að ráðum þeirra, sem þú treystir. Þú
átt á hættu að tilfinningar þínar hlaupi með þig
í gönur. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú tek-
ur ákvörðun sem hefur mikið að segja fyrir framtíðina.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Maður þér ókunnur mun hafa bein áhrif á happa-
sælan árangur einhvers, sem þú tekst á hendur.
Þessi maður gæti orðið náinn vinur þinn og ómet-
anlegur, svo fremi að þú látir ekki velgengni þá,
sem hann hefur fært þér stíga þér til höfuðs.
Drekamerkið (24. október — 23. nóvember):
Ef þú ert einhleypur þá er ástæða til þess að vara
þig við vali þínu á félögum, sérstaklega af hinu
kyninu. Sértu kvæntur (eða gift) þá gættu þess
vel að vekja ekki gremju eða afbrýðissemi hjá
mc.ka þínum. Þú verður heppinn 1 lukkuspili.
Bogmannsmerkið (24. nóvember — 21. desember):
Samband tveggja persóna, veldur þér áhyggjum, en
WpA 3 vegna umhverfis þíns skaltu hafast sem minnst að.
Þú færð tilboð sem lítur glæsilega út, en ekki er
allt gull sem glóir, og skaltu hugsa þig vel um áður
en þú tekur nokkrar ákvarðanir.
Geitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú mátt teljast fremur lánssamur, vegna tryggra
vina þinna og ánægjulegs heimilislífs. Þú getur orð-
fyrir stundar-freistingu og vegna þess að þú ert
ekki mjög sterkur á svellinu, skaltu vera sem minnst
út á við næstu dagana.
®Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú átt hættulegan keppinaut í starfsgrein þinni.
Maður, sem læzt vera vinur þinn, reynist þér
allt annað á bak, ef þú opnar augun dálítið bet-
ur kemurðu auðveldlega auga á hann og getur
hnekkt fyrirætlunum hans, en umfram allt farðu gætilega.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Framtíð þín er nokkuð óljós. Kona sem þú hefur
haft nokkur kynni af, kemur til með að valda þér
óþægindum. Afbrýðisemi mun einnig vera með í
spilinu og verðuru að vera á varðbergi gegn öllu
sem gæti leitt til slíks.
32
VIKAN 47. tbl.