Vikan


Vikan - 21.11.1963, Síða 32

Vikan - 21.11.1963, Síða 32
verksmiðjurnar eru stöðugt í fremstu röð framleiðenda lífstykkjavara. Nú eru komin á mark- aðinn frá okkur vörur úr SPANDEX, nýjasta efni lífstykkja- framleiðslunnar. SPANDEX er þynnra og mýkra en önnur teygjuefni, en hefur þó meiri teygjanleika og gefur betri stuðning. Biðjið um Kaníer’s - og þér fáið það bezta VEL KLÆDD KONA ER VANDLÁT í VALI SÍNU Á LÍFSTYKKJAVÖRUM. Kaníer 's * ii Stjörnuspáin gildir frá fimmtudcgi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz — £0. apríl): Þú öðlast ’nylli glæsilegrar og gáfaðrar konu, sem mun reynast þér holiur vinur og ómetanlegur ráð- gjafi. Eins þarftu samt að gæta og það er að hún r.ái ckki of sterkum tökum á þér og farirðu ekki að ráðum hennar þá rcynáu að halda því leyndu. Naut mcikið (21. apríl — 21. maí): VJnátta einhvers, sem þú hefur metið mikils, reyn- i"3t þér nú verri en ekki. Vertu vitur í vali þeirra, sem þú gerir að trúnaðarmönnum þínum. Ef þú lætur á engu bera, þá mun þér berast hjálp úr óvæntri átt. Kvöldstund með vini þínum hressir upp á þig. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Tilfinningar þínar varna þér að nokkru leyti rétts mats á aðstæðum þínum og að þú lendir í óþarfa v'ndræðum vegna fljótfærnislegra og óyfirvegaðra athafna. Mundu að með augum lítils barns muntu skynja fullkomnun hlutanna. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það bíður þín óvænt velgengni, eftir nokkurt tíma- bil þrotlausrar vinnu og vonbrigða. Vertu vinum þínum trúr og láttu ekkert skilja þig frá þeim því þeir eiga sinn þátt í að gera drauma þína að veruleika. Þú tekur þátt í smá hrekk, sem hressir upp á tilveruna. Ljcnsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú átt við nokkra örðugleika að etja. Persóna sem er þér kær krcfst þess að þú leggir mikið á þig, og þú verður að framkvæma þetta, það þýða eng- in undanbrögð. Konur þessa merkis eiga mjög ham- ingjusamt heimilislíf í vændum. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú færð alvarlega prófraun við að glíma, ef þú ferð ekki að ráðum þeirra, sem þú treystir. Þú átt á hættu að tilfinningar þínar hlaupi með þig í gönur. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú tek- ur ákvörðun sem hefur mikið að segja fyrir framtíðina. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Maður þér ókunnur mun hafa bein áhrif á happa- sælan árangur einhvers, sem þú tekst á hendur. Þessi maður gæti orðið náinn vinur þinn og ómet- anlegur, svo fremi að þú látir ekki velgengni þá, sem hann hefur fært þér stíga þér til höfuðs. Drekamerkið (24. október — 23. nóvember): Ef þú ert einhleypur þá er ástæða til þess að vara þig við vali þínu á félögum, sérstaklega af hinu kyninu. Sértu kvæntur (eða gift) þá gættu þess vel að vekja ekki gremju eða afbrýðissemi hjá mc.ka þínum. Þú verður heppinn 1 lukkuspili. Bogmannsmerkið (24. nóvember — 21. desember): Samband tveggja persóna, veldur þér áhyggjum, en WpA 3 vegna umhverfis þíns skaltu hafast sem minnst að. Þú færð tilboð sem lítur glæsilega út, en ekki er allt gull sem glóir, og skaltu hugsa þig vel um áður en þú tekur nokkrar ákvarðanir. Geitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú mátt teljast fremur lánssamur, vegna tryggra vina þinna og ánægjulegs heimilislífs. Þú getur orð- fyrir stundar-freistingu og vegna þess að þú ert ekki mjög sterkur á svellinu, skaltu vera sem minnst út á við næstu dagana. ®Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú átt hættulegan keppinaut í starfsgrein þinni. Maður, sem læzt vera vinur þinn, reynist þér allt annað á bak, ef þú opnar augun dálítið bet- ur kemurðu auðveldlega auga á hann og getur hnekkt fyrirætlunum hans, en umfram allt farðu gætilega. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Framtíð þín er nokkuð óljós. Kona sem þú hefur haft nokkur kynni af, kemur til með að valda þér óþægindum. Afbrýðisemi mun einnig vera með í spilinu og verðuru að vera á varðbergi gegn öllu sem gæti leitt til slíks. 32 VIKAN 47. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.