Vikan


Vikan - 02.01.1964, Page 13

Vikan - 02.01.1964, Page 13
. f— M ^smmm ungur maður með hnetubrún leg rödd, sem sagði: Komið þér sælar, miss Lucy Locket. Hann notaði aldrei skírnarnafnið mitt. Kort- in, sem hann sendi mér, voru stíluð á miss Locket. Adam elskaði póstkort. Morguninn, sem ég varð tuttugu og fjögurra ára, og hann hafði verið burtu í eitt ár og þrjár vikur, lagði ég póstkortin fjögur á borðið, meðan ég beið eftir að tevatnið hitnaði. Þessi kort voru allt og sumt, sem ég hafði fengið frá honum, síðan hann kvatti mig með léttum kossi á vang- ann og þessum kæruleysislegu orðum: — Kæra miss Locket, ég læt þig heyra eitthvað frá mér. Hann ferðaðist yfir Belgíu og Holland og til Kaupmannahafnar, en þaðan var fyrsta kort hans sent. Frá strönd Svartahafsins hafði ég fengið hræðilegt kort af Istanbul. A jólunum var hann í Rio de Janerio, og síðan hafði komið kort frá Philadelphia. Þessi júnímorgun var yndislegur, en ég eyddi hon- um við að bíða eftir bréfberanum. Hvort sem Adam væri á heimleið eða ekki, var ég viss um, að hann mundi ekki gleyma afmælinu mínu. Kvöldið áður en hann fór, höfðum við borðað kvöldverð í íbúð- inni minni. Ég hafði búið til sufflé, létt eins og ung ást á vorin, og hann hafði meðferðis flösku af víni, sem glitraði gullið í glösunum. — Það er leitt, að ég verð ekki hér á afmælisdaginn þinn, hafði hann sagt. En ég sendi þér kort. Manstu eftir hádegisverðinum, sem við borðuð- um saman í fyrra? Auðvitað mundi ég eftir honum og man enn. Það eru nú tvö ár síðan. Það hafði verið jafnfagur morgun og núna, þegar hann barði að dyrum hjá mér og rak á eftir mér að klæða mig og koma með honum eftir auðum göt- unum út í græna þögn skógarins. Hann talaði. Hefur nokkur nokkurn tíma talað svo mikið? Þann morgunn sagði hann mér frá efninu í nýju bókinni sinni, að velta því fyrir mér, hvort ég hefði átt að taka með mér blýant og hraðrita þetta allt jafnóðum ... Svo hrópaði hann: — En nú, kæra miss Locket — nú snúum við okkur aftur að veruleikanum. Við borðuðum hádegisverð á litlu veitingahúsi, og á eftir gaf hann mér risastóran rósavönd. — Hjartanlegar hamingjuóskir, miss Locket, sagði hann. Eins og venju- lega kyssti hann mig laust á vangann. Vertu góð stúlka. Þú heyrir frá mér. Svo var hann farinn. Þannig var Adam alltaf. Þú heyrir frá mér. Og ég vissi, að það gat dreg- izt í þrjá daga, þrjár vikur eða þrjá mánuði að ég sæi hann aftur. m og ég fór og pappír Þú ert kjáni, miss Locket. Hve oft hafði ég ekki sagt það við sjálfa mig síðan ég hitti Adam. Þú verður ekki ung til eilífðar, miss Locket. ^litlarðu að eyða þínum beztu árum á mann, sem iíklega hefur aldrei lát- ið sér til hugar koma að verða ástfanginn af þér? En það var bara hagsýni, sem ég hafði erft eftir föður minn, sem fékk mig til að hugsa þannig. Ég hafði erft meira frá móður minni, og það var hún, sem sagði: Sé trúin nógu sterk, verður hún að veruleika. Það voru þessi orð, sem höfðu styrkt mig alla þá dauflegu daga síðan Adam fór fyrir meira en ári síðan. Hann kemur aftur til mín. Til mín. Ó, Adam, það er kominn tími fyrir þig að koma heim, sagði ég lágt. Bréberinn stanzaði fyrir utan J ’ ■■ hliðið okkar og setti hrúgu af bréf- mSÍ um og einn pakka í kassann. Ég hljóp út. Það var allt til mín. Uppi í herberginu mínu lét ég pakk- ann liggja á gólfinu, meðan ég fletti bréfunum ákaft í leit að póstkorti. En það var ekkert kort. Ég settist niður og vonin, sem fyllt hafði huga minn, hvarf og skildi eftir sársauka og tóm í hjartanu. Ég jafnaði mig smám saman aftur. Það hlaut að koma með síðari póst- inum. Það var nú líka til sími. Ég leit löngunaraugum á þögult símatólið og hugsaði um það, að hægt er að hringja hvaðan sem er úr veröldinni — ef mað- ur vill. Tvisvar hafði hann munað eftir afmælis- deginum mínum. Ekki mundi hann gleyma þessum, núna, þegar hann var að öllum líkindum á leið heim. Þegar síminn hringdi, þreif ég hann æst, og rödd mín var hjáróma af eftir- Frainhald á bls. 43. pmi ' .'v: i'í -V',S' llliliiil mmmmm Wilil ■v:-X ;

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.