Vikan


Vikan - 02.01.1964, Síða 21

Vikan - 02.01.1964, Síða 21
í íslenzkum þjóðgarði. Matvæli, aðallega landbúnaðarafurðir, á víð og dreif. Hagfræðin og siðfræðin stangast stundum á. en ef þeir eru seldir í flöskum. Nú springur mikið af hyrnum, sem kunnugt er. Á götum, í skólum og skrifstofum hittir maður þessar sprungnu hyrn- ur, þær minna á sinn hátt á rónana. Allvíöa er beitt sötu- nauðung, svo menn fá alls ekki mjólk í flöskum, og stundum fæst mjólkin aðeins í smáhyrn- uin. Ennþá er þó ekki hin full- komna einokunarnauðung kom- in á, en að því mun stefnt þeg- ar hún er þegar viðurkennd í sumum verzlunum. En hvað munar BÖR BÖRSON ISLAND- ICUS um að gefa öskutunnunum tólf milljónir á ári? Það eru ekki nema svo sem tólf barna- leikvellir eða ein lítil skólabygg- ing. Og aðrar tólf og þriðju tólf milljónirnar í öðrum pappa- fórnum. Allar þessar pappafórn- ir færa menn glaðir og án þess að hugsa. Kaupmaðurinn minn er eini maðurinn, sem bendir mér á hve miklu ódýrari hrís- grjónin séu þegar hann pakkar þeim sjálfur. Þessar pappafórnir eru sama sem leikvallarfórnir og leiða til barnafórna. Hér deyja sjöfalt fleiri börn í umferðarslysum en í jafnstórri borg í Bandaríkjun- um. Hér fyllum vér öskutunnur af dýrum innfluttum pappa fyrir milljónir króna og látum börnin leika sér í moldarflögum og drullupollum, en hyggjum dýr- um dómum yfir lakkið á bilun- um. Meðan þessar stórstígu fram- farir eiga sér stað hjá oss, hafa húsmæður í Osló fengið sér hrúnar flöskur fyrir glærar. Hyrnur fá þær einnig ef þær vijja, aðeins miklu hetri en vor- ar. Þær eru ekki eins elskar að einokun og pappanauðung og vér liér. Og barnaleikvellirnir hjá þeim eru furðulegir. Ég sá einn, þar sem til liafði verið búinn stærðar pollur handa krökkunum til að vaða í. En hann vár stéinsteyptur í botninn, vatnið i honum var alveg hreint og mjög grunnt. Daglega var skipt um vatn, krakkarnir urðu að fara úr skóm og sokkum ef þau vildu vaða — og haga sér eins og siðaðir menn. Málið er miklu einfaldara hjá oss: Hér komast krakkarnir á bóla kaf í sumum pollum, i skóm, sokkum og öllum fotum — og ekki þarf um neitt annað að hugsa en að reyna að ná þeim lifandi inn og færa þau í hrein föt frá hvirfli til ilja. Vér höfum ráð undir rifi hverju og nóg af öllu tagi, ekkert skortir nema ástúð- ina og viljann til að ala upp sið- aða menn. — Að unglingarnir skella sér i Öxará eða einhverja á i Þjórsárdal og Þórsmörk er ekki annað en framhald af drullu-polla uppeldi í barndómi. Það þarf ekki að skipa nefnd sérfróðra manna til að rannsaka það mál -— Bakkabræður mundu alveg eins vel geta fundið lausn- ina. IV. Líkkistusmíð ráð- deildarinnar: Verð- bólgan. í þjóðfélagi voru eru ekki aðeins hálaunamenn, heldur einnig liálauna-unglingar. Ekki er langt siðan einn hálauna- unglingur gat haft jafn háar mánaðartekjur og tveir hálauna- menn, t. d. tveir af kennurum þess sama unglings. Jöfnuður er í þjóðfélaginu, og gætum vér tekið undir með Kínverjum; sá Framhald á bls. 44. VIKAN 1. tbl. — 21

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.