Vikan


Vikan - 02.01.1964, Blaðsíða 44

Vikan - 02.01.1964, Blaðsíða 44
Þegar ég gekk upp tröppurn- ar, vissi ég nákvæmlega, hvemig allt mundi verða, það var eins og ég horfði á leiksýningu. Þar stóð borð í horninu, sem hann hafði látið taka frá fyrir okkur, hlaðið gómsætum mat, sem hann hafði valið með alúð, og yfirþjónninn stóð álengdar. Samtal okkar mundi verða eðli- legt og allt upp á það þægileg- asta. A eftir gengum við meðfram ánni í heitri síðdegissólinni. AUt í einu tók ég eftir því, að ég varð að hlusta betur eftir því, sem Raymond var að segja. . .. níu ára aldursmunur, sagði hann, og þá gerði ég mér til mikillar skelfingar Ijóst, að hann var að biðja mín í þriðja sinn, og að nú gat ég ekki leng- ur frestað því að taka ákvörðun. — Lucy, þetta er í þriðja skipti að ég bið þig að giftast mér, sagði hann eins og bergmál af hugsunum mínum. Ó, Raymond, hugsaði ég, ef ég aðeins elskaði þig, mundi mér standa á sama um níu eða nítján ára aldursmun eða jafnvel tutt- ugu og níu ára mun. - - Við erum búin að þekkjast lengi, hélt hann áfram, við höf- um sömu áhugamál og fellur vel við sömu hlutina. Já, hugsaði ég, hluti af mér kann vel við sig í þínum heimi, meira að segja stór hluti af mér. En það er til önnur hlið á lífinu, og það mundir þú ekki geta skil- ið. Sú hlið lífsins, þar sem fólk gengur um í skóginum klukkan sex að morgni án þess að hafa ákveðið það fyrirfram ... — Okkur mundi líða vel sam- an, sagði Raymond lágt. Ég mundi kaupa okkur hús úti 1 sveit — eða úti við sjó, ef þú vildir það heldur. Já, hugsaði ég, ég veit að við mundum hafa það gott. Ég væri stúlka, sem hefði heppnina með mér. Nóga peninga, þægindi og skemmtanir. — Og ég elska þig, sagði hann. Ég sá í augum hans, að hann sagði satt. Það kom mér til að finnast ég vera lítil og ómerki- leg, því að hingað til hafði ég aðeins hugsað um fjárhagshlið- ina. Ég þagði og smám saman færð- ist yfir mig heit ánægjukennd. Hann hafði sagzt elska mig. All- ar konur vilja vera elskaðar. Adam hafði aldrei sagt mér, að hann elskaði mig. Að öllum lík- indum mundi hann aldrei segja það. Kannski mundi ég aldrei sjá hann framar. — Ég held, að þú elskir mig svolítið líka, sagði Raymond blíðlega og lagði handlegginn um herðar mér. Ég varð að svara honum. Hann beið. Hvers vegna hikaði ég? Var það ef til vill til þess að minnast órða móður minnar, þegar hún sagði: Sé trú manns nógu sterk, verð- ur hún að veruleika. Trú mín er ekki sérlega sterk, hugsaði ég bitur, hún getur ekki lifað af einn gleymdan afmælis- dag. Nú vissi ég að vonleysisstund- in var liðin hjá. Meðan ég hugsaði um, hverju ég skyldi svara Raymond, sagði hann: — Einu sinni hélt ég að það væri Adam, sem þú værir að hugsa um. Ég verð líka að viður- kenna, að ég er að reyna að fá jáyrði þitt, áður en hann kemur aftur. Stutta stund varð allt í þoku fyrir augum mínum. — Hvað áttu við? sagði ég andstutt. Hann reyndi að taka mig í faðm sér. Nýir íslenzkir danslagatextar við öll nýjustu danslögin. — Sendið kr. 25.00 og þið fáið heftið sent um hæl burðar- gjaldsfrítt. Nýir danslagatextar Box 1208 — Reykjavík -----------------------------1 — Astin mín, við skulum ekki tala um Adam. — Raymond, ég verð að vita það. Er Adam á leið heim? —- Ég geri ráð fyrir því. Hann talaði eins og honum væri það þvert um geð, og ég sá, að hann var sjálfum sér ergilegur yfir að hafa minnzt á Adam. Óþolinmæðin náði tökum á mér og ég þreif í handlegg hans og hrópaði: — Hefurðu heyrt eitthvað frá Adam? Hann hrukkaði ennið. — Já, sagði hann loks. Adam sendi mér handritið að síðustu bók sinni. Ég vakti í alla nótt við að lesa það. — Var ... var það gott? — Það var gott, sagði hann. Það var það, sem ég hef verið að vona og búast við, að hann gerði. Skyndilega þoldi ég ekki leng- ur rannsakandi augnaráð hans. Ég sneri mér undan og gekk í átt að gamalli trébrú. Þar hall- aði ég mér út á grindverkið og reyndi að ná valdi á hugsunum mínum. Svo sneri ég mér aftur að Ray- mond og talaði hratt og hrein- skilningslega, eins og ég hefði átt að gera löngu fyrr. — Raymond, sagði ég döpur. Ég get ekki gifzt þér. Þú skilur, það er Adam. Hann þagði litla stund, síðan yppti hann öxlum og fór með höndina í vasann. Hann rétti mér kort. — Það er víst bezt, að ég af- hendi þér þetta, sagði hann. Það er hvort sem er til þín. Ég fann það milli blaðanna í bókinni hans. —- Til mín? En .. . — Ég tók kortið. Öðru megin var litsterk mynd, en á hinni hliðinni stóð: Hamingjuóskir á afmælisdag- inn. Við sjáumst brátt. Ekkert ljóð, engin sinfónía gat hljómað betur en þessi orð . .. Við sjáumst brátt. Ég leit á kortið. Það var frí- merkt, en óstimplað. Adam hafði gleymt að póstleggja það. Mig langaði til að hlæja og gráta í senn. Raymond sagði kuldalega: — Þar sem litlar likur eru til þess, að Adam sé þegar kom- inn, gætirðu kannski hugsað þér að eyða deginum með mér? Ég hafði hugsað mér, að leigja bát.. — Það væri skemmtilegt. Ég sneri mér snöggt að honum, leið og sneypt yfir að hafa sært hann. Bros hans var bæði glettnis- legt og dapurt, þegar hann sagði: — Enn ertu ekki gift Adam. Þegar sá dagur rennur upp, gef ég upp alla von, en ekki fyrr. Ég man enn eftir svölum skuggum trjánna og skvampi báranna við hliðar litla bátsins. Ég man, að ég var mjög ham- ingjusöm. Raymond ók með mér heim, þegar byrjaði að kólna. í forstofunni stanzaði ég og starði eins og dáleidd á tvær slitnar ferðatöskur, regnkápu og hanzka. En auðvitað var það óhugs- andi. Það gat svo sem verið, að gestir væru hjá húsmóður minni. — Ungi maðurinn er kominn, sasði hún um leið og hún kom út úr eldhúsinu. Ég gat enn ekki trúað því. — Hvaða ungi maður? spurði ég í hálfum hljóðum. —- Þér vitið, sá sem var van- ur að koma hingað —- reyndar held ég, að ég hafi ekki séð hann lengi. Ég hleypti honum inn. Var það rétt af mér? Hann er búinn að vera hér í marga klukku- tíma. Ég gaf honum te, og nú hevrist ekkert úr íbúðinni yðar. Ég gat rétt stamað fram nokkr- um þakklætisorðum, áður en ég hljóp upp stigann og opnaði hurðina hljóðlega. Hann sat í hægindastólnum mínum og svaf. Ég kraup á kné við hlið hans í hljóðu sumarhúminu. Ég sá, að hann var grennri og sólbrennd- ari en áður, en að hann var sá Adam, sem ég þekkti — en þó að einhverju leyti breyttur. Ég var glöð yfir að geta skoðað hann óséð nokkur augnablik, en samt langaði mig til að hann vaknaði, því að þá gæti ég séð, hvernig hann væri breyttur. Meðan ég lá þarna á hnjám, iðraðist ég sárt þeirrar stundar, sem ég hafði misst vonina. En það var þó ekki nema mannlegt. Allt í einu opnaði hann augun, teygði úr sér og brosti um leið og hann settist upp. Þú ert búin að vera lengi í burtu, miss Locket, sagði Adam. Ég fór að hlæja. Ég hafði ver- ið lengi í burtu! Hann leiddi mig út að glugg- anum. Við horfðum lengi hvort á annað, og ég sá að andlit hans hafði þrozkast og fengið nýjan frið. Ég gerði mér Ijóst, að hann hafði þarfnazt þessa einmana- lega árs, og að hann hafði not- að það vel. — Miss Locket, ég man ekki hvort ég setti afmæliskortið þitt í póst, sagði hann. — Þú skTdir það eftir í hand- ritinu að bókinni þinni, sagði ég. Raymond fékk mér það. Adam brosti. — Nú, svo að þú varst með honum. Hann þrýsti hönd mína fast og sagði: — Veiztu hvað ég hef nefnt bókina mína, miss Locket. Ég hristi höfuðið. Tími til að koma heim, sagði hann. Og Lucy .. . þegar ég setti bókina í póstinn, sagði ég við sjálfan mig, að það væri ein- mitt tími til kominn að fara heim .En hvernig geturðu vitað, að Lucy sé þar enn? spurði ég sjálfa mig. Því ætti hún að vera þar? Þú átt það ekki skilið. Og... Ég horfði í augu hans og sá þar eitthvað, sem aldrei hafði verið þar áður — meðvitund um að eitthvað annað væri til í heiminum en Adam Ley. - Svo varstu ekki hér, sagði hann. Þetta hefur verið hræði- lega langur dagur, kæra miss Locket. Ég ætlaði að segja, að þetta hefði verið hræðilega langt ár, en þá lá ég í faðmi hans og þá var það ekki lengur mikilvægt. Þegar sólin kemur upp, hugsar maður ekki lengur um myrkrið á undan. HÁLAUNAUNGL- INGAR... FRAMHALD AF BLS. 21. málsháttur myndaðist eftir síð- ustu byltingu: ,,Vér erum allir jafnir — en sumir eru jafnari en aðrir“. í fyrri hlutanum lýs- 44 — VIKAN 1. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.