Vikan - 02.01.1964, Síða 48
Hvernig
dæmir jiú?
Leyndir gallar
bótaskyldir.
Enn er málum þann veg komið, að Jón Jónsson ræðst í húsa-
kaup. í þetta skipti festi hann kaup á einbýlishúsi. Seljandinn
var Bótó'Jfur Bjömsson, hnefaleikakennari. Kaupverðið var kr.
400.000,00.
Umrætt hús var einlyft, múrhúðað timburhús á steingrunni.
Hafði Bótólfur verið byggjandi hússins og búið í því rúmlega tvö
ár. Jón granndskoðaði húsið, áður en kaup voru gerð. í kaupsamn-
ingi og afsali var svolátandi ákvæði: „Kaupandi hefur kynnt sér
ástand hinnar seldu fasteignar og sættir sig við það að öllu leyti“.
Þegar Jón hafði búið í húsinu í hálft annað ár, varð hann þess
var, að hurðir urðu fastar í körmum. Svo mikil brögð urðu að
þessu ,að Jón þurfti að hefla af öllum hurðum hússins.
Nú leið enn eitt ár. Fóru hurðir þá aftur að festast. Jón heflaði
á ný, en án árangurs. Þá sá hann, að hér var eitthvað alvarlegt á
ferðinni. Nú varð Jóni Jónssyni nóg boðið. Hann tók hatt sinn
og staf, gekk á fund borgardómara og óskaði eftir dómkvaðningu
sérfróðra manna, hæfra og óvilhallra, til að skoða og gefa lýsingu
á ástandi hússins. Þá ættu matsmenn og að meta til fjár þessa
galla.
Niðurstaða matsmanna varð sú, að byggingu á undirstöðu húss-
ins væri mjög ábótavant og gagnstætt öllum byggingarreglum. Þess-
ar ótraustu undirstöður yllu sigi á húsinu. Nú væri svo komið, að
gólfplatan hallaðist um 10 cm. inn að miðiu húsinu, sveigja væri
greinileg á loftbitum og þakið áberandi söðulbakað. Ekki töldu
matsmenn, að bætt yrði úr göllum þessum fyrir minna en kr. 160
þúsund.
Matsmenn töldu eðlilegt, að sigsins hefði ekki gætt, fyrr en
nokkrum tíma eftir byggingu hússins. Ástæðan væri sú, að fyrst
hefði jarðvegurinn undir húsinu sigið, bæði vegna þunga frá því
og vegna þess, að jarðvegurinn væri þurrari en hann var fyrir bygg-
inguna. Þessi þróun gæti tekið nokkur ár.
Þegar hugað var að byggingarsögu umrædds húss, kom eftirfar-
andi í ljós:
Múrsmiður á uppdrætti að húsinu var greindur Rauður Svavars'
son. Upplýst er, að Bótólfur sjálfur og fjölskylda hans unnu við
sökkulinn og plötuna undir húsinu. Á meðan að þessu var unnið,
kom Rauður tvívegis á vinnustað, dvaldi þar örskamma stund og
gaf nokkrar ráðleggingar. Fyrir þessi afskipti sín af húsbygging-
unni, þar með talin áritun á teikningu, tók Rauður enga þóknun,
enda voru þeir Bótólfur nánir kunningjar.
Jón Jónsson taldi, að þeir Bótólfur og Rauður ættu að bæta sér
tjónið, sameiginlega eða annar hvor. Nú kom í ljós, að Bótólfur
var kominn af landi brott. Höfðu atvinnumöguleikar hans nánast
að engu orðið, eftir að hnefaleikar voru hér bannaðir með lögum.
Síðast hafði spurzt til hans í fjölleikahúsi í Kaupmannahöfn, en
íslenzka sendiráðið þar gat engar uplýsingar um Bótólf gefið. Ekki
var vitað um neinar eignir, er hann ætti hérlendis, enda félaus
talinn, er hann fór utan. Varð Jón því að stefna Bótólfi Björns-
syni opinberri stefnu, birtri í Lögbirtingablaðinu.
Þegar mál þetta kom fyrir dóm, mætti þar Rauður ásamt mál-
flytjanda, en hvorki mætti Bótlófur né nokkur af hans hálfu.
Rauður krafðist sýknu. Byggði hann þá kröfu í fyrsta lagi á
þeirri málsástæðu, að Jón hefði firrt sig öllum fébótarrétti með yfir-
lýsingu þeirri, að hann hefði sætt sig við ástand hússins, þegar
kaupin voru gerð. f öðru lagi krafðist Rauður sýknu af þeirri
ástæðu, að væri um einhvern bótarétt að ræða til handa Jóni, þá
hvíldi samsvarandi bótaskylda eingöngu á Bótólfi Björnssyni. Hann
hefði staðið fyrir byggingunni og vansmíði hússins ætti að meta
honum til fébótaskyldu. Rauður sagði afskipti sín af byggingunni
hafi aðeins verið þau, að hann hefði af greiðvikni við Bótólf,
kunningja sinn, áritað teikningu sem múrsmiður og tvívegis rennt
við hjá Bótólfi, meðan hann var að vinna að undirstöðum hússins.
Rauður Svavarsson lagði í málflutningi sínum áherzlu á, að ekk-
ert hefði hann haft upp úr afskiptum þess nema ómakið eitt, því
að enga þóknun hefði hann fengið, enda ekki til hennar ætlazt.
Spurning VIKUNNAR: FÆR JÓN BÆTUR? EF SVO ER, ÚR
HENDI HVERS EÐA HVERRA? Svar er á bls. 51.
Þetta kom allt í einu eftir að
hún hafði laugað sig. Hún segir
sjálf, að ekkert sé að sér....
Þú skilur, við vitum svo lítið
um sjúkdóma, Meg og ég. . . .
Clare svaraði strax: — Ég skal
fara upp til hennar undir eins,
þetta er kannski ekki eins slæmt
og þú heldur. . . .
Meg sat við rúm Faith þegar
Clare kom inn, og hvíslaði: —
Þetta kom allt í einu . . .
Clare sá að kinnarnar á Faith
voru kafrjóðar. Hún tók
varlega á úlnlið hennar og þreif-
aði á æðinni. Hún sló hart. Faith
opnaði augun og reyndi að brosa,
en hún hríðskalf.
— Ég . . . ég geri svoddan
ske'fingar ónæði, muldraði hún.
Clare og Meg færðu sig spöl-
korn frá rúminu og Clare sagði
rólega:
— Ég held það sé réttast að ná
í lækni.
— Er . . . er þetta alvarlegt?
spurði Meg hrædd.
— Það þarf ekki að vera. Lík-
lega er það inflúensa, og ef svo
er, þarf liún að fá hjúkrun strax.
Hún leit á klukkuna. — Það
er bezt að biðja hann um að
koma strax.
— Hún hefur aldrei verið veik
áður — nema þetta með augun.
— Inflúensa er ekkert hættu-
leg, ef rétt er með hana farið.
Hefurðu hitabrúsa?
— En hún er svo heit fyrir.
— Og köld um leið, sagði
Clare.
— Ég síma til Grey læknis,
sagði Meg rólega. — Og mér
þykir vænt um að þú skulir
vera hérna.
— Mér líka, sagði Clare.
Grey læknir kom innan stund-
ar. Meg Hamden fylgdi honum
inn til dóttur sinnar, kynnti
Clare fyrir honum og fór svo út,
svo að læknirinn gæti rannsak-
að Faith í næði. Grey hafði ver-
ið húslæknir fjölskyldunnar ár-
um saman, og hafði oft komið
til Faith þegar hún var með
barnasjúkdómana.
— Heppilegt að hjúkrunar-
kona skyldi vera á heimilinu,
sagði læknirinn við Clare. Hann
var gráhærður, andlitið opinskátt
og framkoman aðlaðandi. Faith
hafði onpað augun þegar hann
kom inn í herbergið, og var svo
lasin að hún umlaði aðeins: —■
Leitt að — ónáða yður — svona
seint . . .
Þegar læknirinn hafði skoðað
Faith ítarlega fór hann með
Clare út úr herberginu.
— Þetta mun vera inflúensa
og því miður snertur af lungna-
bólgu líka. Ég hafði með mér
súlfalyf, það er bezt að reyna
að kæfa sjúkdóminn í fæðing-
unni. Hún er auðvitað veik fyrir
eftir augnauppskurðinn.
Hann tók meðalið upp úr tösk-
unni sinni og sagði Clare fyrir
verkum. — Og munið, að hún
verður að fá mikla vökvun.
Honum þótti gott, að Clare
skyldi vera þarna, því að hann
var fljótur að sjá, að hún var
dugleg hjúkrunarkona. Hann
spurði, hvort hún ætti heima
hjá Hamdenshjónunum og hún
svaraði, að hún væri gestkom-
andi hjá þeim.
— Þá vona ég að þér hinkrið
við hérna um sinn, sagði lækn-
irinn. — Og hugsið þér vel um
Faith. Hún er yndisleg stúlka ...
sérstök manneskja. Og nú er bezt
ég fari niður og tali við foreldra
hennar.
—• Já, þau eru eflaust meira
en áhyggjufull. Og svo vona ég,
að þér hafið tíma til að líta inn
á morgun?
— Alveg áreiðanlega.
Clare gat ekki annað en bros-
að að því hvernig læknirinn tal-
aði — stutt og slitrótt. En ósjálf-
rátt fann hún, að honum var
treystandi . . . Clare vakti alla
nóttina, mókti við og við en
fylgdist vel með hverri smá-
breytingu á sjúklingnum. Um
klukkan fjögur kom Meg hljóð-
lega inn; hún hafði samvizku-
bit af að hafa sofið sjálf en lát-
ið Clare vaka.
—- Þú lofaðir að þú skyldir
halla þér, sagði Meg. — Bara að
ég hefði vitað þetta, þá hefði
ég . . .
— Ég er svo vön næturvök-
um, sagði Clare, — en þú þarft
að fara snemma á fætur.
— Hvernig líður henni? spurði
Meg kvíðandi.
— Mér sýnist hitinn hafa
lækkað talsvert mikið. Þú skalt
ekki vera óróleg.
— Maður er alltaf órólegur,
þegar börnin eiga hlut að máli,
sagði Meg. — En mér sýndist
læknirinn vera öruggur og ró-
legur, sem betur fer. Geturðu
gizkað á hvernig hún hafi smit-
ast?
— Það er ómögulegt að gizka
á það, svaraði Clare. — Þetta
kemur eins og þjófur á nóttu.
En nú verðurðu að reyna að
sofna dálitla stund aftur.
Meg klappaði henni þakklát
á kinnina.
— Þú ert svo dæmalaust
hjálpsöm við okkur, sagði hún
þakklát.
Clare kenndi til undan þess-
um orðum. Hvernig átti hún að
losna úr þessari fals-tilveru, sem
hún var í? Og hvað mundi móð-
ir Faith segja, ef hún vissi sann-
leikann?
Því fór fjarri, að Faith skánaði
næstu dagana, þvert á móti
versnaði henni. Og loks varð það
bert, að hún var með illkynjaða
lungnabólgu.
Grey læknir, Clare, Meg, Jock
og Simon sátu saman í dagstof-
unni. Clare vissi fyrir, hvernig
ástatt var, en hinir voru að
frétta það núna.
— Hve —• alvarlegt er þetta?
Grey læknir svaraði rólega:
— Með góðri hjúkrun skal okk-
48
— VIKAN 1. tbl.