Vikan


Vikan - 02.01.1964, Síða 51

Vikan - 02.01.1964, Síða 51
FYRIR ÞVÍ URSKURÐAST Svar við: HVERNIG DÆMIR ÞÚ? á bls. 48. Fyrst verður vikið að þeirri vamarástæðu, að Jón eigi engar bætur að fá vegna yfirlýsingarinnar í kaupsamningi og afsali þess efnis, að húsið sé selt í því ástandi, sem það var í, þegar kaup voru gerð, og hann hefði sætt sig við. Ákvæði sama efnis og hið tilvitnaða ákvæði í kaupsamn- ingi þeirra Jóns og Bótólfs mun sennilega undantekningar- laust vera í sérhverjum kaupsamningi og sérhverju afsali. Efnislega má ekki taka slík ákvæði of bókstaflega. Á þetta einkum við hina svonefndu leyndu galla, sem mjög koma við sögu í dómsmálum varðandi byggingar húsa og sölur. Með leyndum göllum er átt við það tilvik, að ekki sé unnt að ætlazt til þese af hálfu kaupenda, að hann hafi veitt göll- unum athygli, þegar hann skoðaði hið keypta. (Sjá nánar um leynda galla í 27. tbl. VIKUNNAR frá 4. júlí). Ljóst er í máli því, sem hér er fjallað um, að vanbygging undirstaðna hins umdeilda húss fellur undir hugtakið leynd- ur galli. Þessa galla gætti alls ekki, þegar kaupin voru gerð, og kom fyrst fram alllöngu síðar. Af þessum ástæðum verður fyrri varnarástæðu í málatilbúnaði Rauðs Svavarssonar hrund- ið, þar sem leyndir gallar eru yfirleitt fallnir til bótaskyldu seljanda. Samkvæmt málavöxtum var Bótólfur Björnsson handhafi byggingarleyfisins, og sjálfur stóð hann fyrir hinni stórgöll- uðu múrsmíði hússins. Fébótaábyrgð hans er því einsýn. Rauður kom sáralítið nálægt múrsmíðinni, en ritaði á upp- dráttinn að húsinu sem múrsmiður. Vegna afskiptaleysis af byggingunni telur Rauður sig sýknan saka og bótaábyrgðina eingöngu hjá Bótólfi, ef hún yfirleitt er fyrir hendi. Telja verður, að með áritun sinni á teikninguna hafi Rauð- ur tekið á sig ábyrgð á því, að öll múrsmíði hússins yrði af hendi leyst í samræmi við teikningar og byggingarreglur borgarinnar. í byggingarsamþykkt fyrir Reykjavík frá 1945 er tekið fram, að ekki megi nota fengið byggingarleyfi, fyrr en byggingarfulltrúa hafi verið tilkynnt, hver múrmeistari sjái um múrsmíði og hver húsasmiðameistari um trésmíði. í sömu byggingarsamþykkt er einnig svo mælt fyrir, að múrarameistari beri ábyrgð á því, að allur járnabindingur sé samkvæmt uppdráttum, plötuþykktir séu réttar og steypu- gæði eftir nánar greindum reglum. Framangreindar skyldur hefur Rauður sýnilega vanrækt. Þær skyldur, sem Rauður lagði sér á herðar með árituninni á uppdráttinn, eru engu að síður fyrir hendi, þótt hann hafi enga þóknun fengið fyrir þessa áritun og störf sín við bygg- inguna. Vanræksla Rauðs á skyldum sínum sem löggilts múr- smiðs leiöir til bótaskyldu hans. Niðurstaðan verður því sú, að þeir Bótólfur og Rauður bera báðir fébótaábyrgð á kröfu Jóns Jónssonar að fjárhæð kr. 160.000,00. Ábyrgð þeirra er sólídarisk, þ.e. báðir fyrir annan og annar fyrir báða. Eins og málum er lýst, er líklegt, að Jón geti eingöngu gengið að Rauði til fullnægingar á dómkröfu sinni, þar sem Bótólfur dvelur erlendis og algerlega eignalaus hér á landi. Má því segja, að greiðvikni Rauðs við vin sinn hafi orðið honum nokkuð dýrkeypt. Ályktunarorð: JÓN FÆR FÉBÆTUR. ÁBYRGÐ BÓTÓLFS OG RAUÐS ER SÓLlDARISK. J. P. E. (■I Nútt útlit Nú tækni NALMGLUGGAF ^7 LÆKJARGÖTU, HAFNARFIRÐI. — SlMI 50022 VIKAN 52. tM. — 51

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.