Vikan - 30.01.1964, Side 6
r
HIN NÝTÍZKU LEGA FRAM LEIÐSLA
Á SNYRTIVÖRUM
og hin árangursríkasta fæst með
því að nota lífræn krem, sem lagfæra
galla húðarinnar.
LA CRÉME
Bio-Gataéyð
OG
Bio-Lacta
Með samhliða notkun þeirra:
verður: styrkara, mýkra, yngra,
hörundið: líflegra og bjartara.
Blettir og bólur hverfa
BIO-LACTA: Nýlega hefur verið hafin framleiðsla á BIO-LACTA
í túhum og á það við allar húðgerðir, hvort heldur er um að
ræða þurra, venjulega, hlandaða eða feita húð.
Lífga upp og yngja
t
Geðprýði...
Til Póstsins í Vikunni!
Jæja, þá eruð þið hættir við
aldarspeglana, þetta eina, sem
var lesandi og líka greinar dr.
Matthíasar Jónassonar. Nú á auð-
vitað bara að vera eintómar
myndir og rusl í staðinn. Verð-
ið þið að stefna niður á við eins
og allt í þessu þjóðfélagi? Allt
á leið til Helvítis. Eða geðvonzk-
an í þessum pistlum ykkar, sem
þið kallið í fullri alvöru. Bless-
aðir hættið. Svo birtið þið ekki
einu sinni bréf, sem maður send-
ir ykkur. Hvað viljið þið eigin-
lega hafa í þeim?
Skrifað í partýi í des. 1963.
Kr. Jónss.
--------Þetta hefur verið gott
partý, eða hvað? Þetta er að
minnsta kosti miklu bjartsýnna
og skemmtiJegra bréf en hin
fyrri. Hvað aldarspeglana áhrær-
ir, þá er von á einum bráðum.
Jólasveinar einn og
atta...
Kæra Vika! !
Kærar þakkir fyrir jólasveina-
greinina. Satt að segja var ég
hálf hissa á því, að enginn skyldi
beinlínis hafa vakið máls á þessu
áður. Og hvar eru nú öll okkar
þjóðlegheit? Kannski verður það
til afsökunar, að fólk hefur í fá-
fræði sinni haldið, að gömlu ís-
lenzku jólasveinarnir hafi
íklæðst rauðum fötum eins og
Santa Claus. Nei, það var satt
sem þið sögðuð, að það er ekki
of margt, sem sérkennilegt er
hægt að finna við íslenzk jól,
og jólasveinarnir gömlu eru
skemmtileg ídea, sem við eigum
að halda tryggð við. Sjálfur dreg
ég alltaf fram kverið hans Jó-
hannesar úr Kötlum, Jólin koma,
og les upphátt úr því fyrir krakk-
ana mína. Það er afbragðs kver
og vísurnar eru svo einfaldar og
skemmtilegar. Um ieið og ég
þakka VIKUNNI fyrir hennar
skerf, vil ég skora á alla að taka
höndum saman um að hefja þá
Ketkrók, Stekkjastaur og Skyr-
gám og félaga þeirra til vegs og
virðingar að nýju.
Halldór Jónsson.
Nýr miðbær ...
Kæra Vika!
Hamingjuóskir með greinina
ykkar um nýja miðbæinn, sama
til þessara ungu manna, sem eru
höfundar verksins og sama til
okkar allra, sem njótum þess,
sem þeir eiga eftir að gera. Það
kann að mega finna eitthvað að
þessu skipulagi þeirra, en það er
í aðalatriðum stórathyglisvert og
fer varJa hjá því, að eitthvað af
því verði tekið til fyrirmyndar,
nema annarleg sjónarmið ráði
þessum málum.
Kristín Sveinsdóttir,
Austurbrún 4.
Kæra Vika!
Sem prófverkefni býst ég við
að lausn Haralds og Ormars hafi
verið nokkuð góð og margt at-
hyglisvert um hana. En blessað-
ir drengirnir hafa gert eina kór-
villu, sem kollvarpar öllu, eða
að minnsta kosti því, að nokkurn-
tíma verði farið eftir þessu. Þeir
gleymdu því sem sagt að ganga
út frá Morgunblaðshöllinni sem
miðpunkti alheimsins og ætlast
í ofanálag til þess, að húsið verði
fjarlægt. Þarna kváðu þeir sjálf-
ir upp dauðadóminn yfir verki
sínu, eða eru þeir svo mikil börn,
að þeir viti ekki, hverjir ráða
í Reykjavík?
Bið að heilsa ykkur,
Ingvar P.
—--------í greinargerð arkitekt-
anna í VIKUNNI stóð meðal
annars þetta: „I tillögu okkar er
tekið tillit til flestra varanlegra
húsa, sem nú standa í miðbæn-
um, nema hvað við gerðum ráð
fyrir Grjótaþorpinu eins og það
var áður en Morgunblaðshöllin
var reist, þótt að sjálfsögðu hafi
okkur aldrei dottið í liug, að
slíkt væri raunhæft. Tih’öguna
ber fyrst og fremst að líta á sem
skipulagshugmynd í stórum
dráttum“.
Kæra Vika!
Tillögur Ormars og Haralds
voru skemmtilegar og athyglis-
verðar, sérstaklega hlakka ég til
að fá verzlunarhverfi þar sem
engir bílar koma nærri, a.m.k.
ekki á yfirborðinu. Og þessi ráð-
húshugmynd er sú bezta, sem
ég hef séð hingað til. Ég þakka
ykkur líka fyrir skemmtilega og
þarfa ádrepu um íslenzka og út-
lenda jólasveina í sama blaði.
Vesturbæingur.