Vikan - 30.01.1964, Blaðsíða 21
Langafi John F. Kennedy sagði skilið við
eymdina í New Ross á írlandi og fluttist
vestur um haf nálægt 1850. Hann vann
sig upp með írskri þrautsegju og sonur
hans varð stórt nafn í Boston. Þegar þriðji
liðurinn, Joseph faðir forsetans, kvænt-
ist inn í aðra írska hæfileika og metorða-
fjölskyldu, Fitzgeraldana, voru engin und-
ur. að börn hans yrðu afburðafólk.
Afi fors3t?.ns, John F. Fitzgerald, kallaður
„Honey Fitz“, var bæði harðsnúinn
stjórnmálamaður og borgarstjóri í
Boston. Hér er hann að sýna hinum
fræga dóttursyni sínum mynd af sér
frá borgarstjórnarárunum. í þá daga
hikuðu menn ekki við að hlaða götu-
vígi til að meina andstæðingum sínum
r.ðgang að fundarstað.
I þessu timburhúsi bjuggu þau um
skeið, Rose og Joseph Kennedy og þar
fæddist John sonur þeirra 29. maí 1917.
Húsið verður varðveitt sem helgidómur
eins og gert hefur verið við fæðingar-
st?.ði r.nnarra Bandaríkjaforseta.
sætum, jarðvegi fátæktar og auð-
legðar.
Um það bil einni öld áður hafði
ríkt hungursneyð á írlandi.
Snemma á fjórða tug nítjándu
aldar lifðu bændur og þeirra fólk
mestmegnis á kartöflum og kart-
öflurækt. Uppskera bóndans dugði
nálega handa fjölskyldunni yfir
árið. Upp úr 1840 fóru eyðandi
skordýr eins og eldur í sinu yfir
kartöfluakrana. Kringum 1845
hafði írland misst nærri helm-
ing allrar kartöfluuppskerunnar
vegna þessarra vágesta. Hungurs-
neyð svarf að landsfólkinu. Sumar
fjölskyldur tóku sig upp með allt
sitt hafurtask í leit að betra landi,
aðrir sátu eftir og biðu dauða síns.
Enn aðra dreymdi að komast burtu
frá írlandi yfir hafið til landsins,
þar sem smjör draup af hverju
strái, til hinnar gullnu Ameríku.
Þegar flóttinn frá plágunni stóð
sem hæst, yfirgaf Patrick Kennedy
kofann með stráþakinu í New
Ross, og slóst í förina með hinum
hungruðu og hjálparvana. Einhvern veg-
inn hafði honum tekizt að afla þeirra
tuttugu dala, auk matarbirgða, sem þurfti
til að geta komizt á skip Cunard-línunn-
ar, og siglt með því til Ameríku. Hann
steig á skipsfjöl annað hvort í Cork eða
Liverpool og Cunard-dallurinn lenti á
Noddleseyju í Austur-Boston,
sennilega árið 1850. Þar fékk Pat-
rick Kennedy fljótlega atvinnu
sem snikkari.
Þá var ófagurt um að litast í
Boston. Sumir létu sér nægja að
Framliald á bls. 30.
í Kennedy-húsinu í New
Ross á írlandi er fátt um
þægindi, enda eru þau James
og Mary Kennedy bláfátæk.
Hér eru þau að taka til mat
handa hænsunum.
í þorpinu New Ross við
Barrow-fljót á írlandi stend-
ur þessi óhrjálegi steinkofi.
Hann var áður með strá-
þaki, en nú hefur verið
lappað upp á hann og sett
járn á þakið. Af þessum
stað er Kennedy-ættin
upprunnin og í þessu húsi
búa núna James Kennedy
og systir hans, Mary Ryan.
John Fitzgerald Kennedy
kom í þetta liús ekki löngu
áður en hann dó og hafði
ineð sér steinbrot úr vegg,
sem hann lét síðan standa
á skrifborðinu í Hvíta
húsinu.
VIKAN 5. tbl.
21