Vikan - 30.01.1964, Blaðsíða 32
ZANUSSI
Algjörlega sjálfvirk
þvottavél með suðu.
Tekur 5 kíló af
þurrum þvotti.
II
* _
4
'HUpnar
Stjörmispáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Öllrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú færð góoar fréttir sem'munu létta af þér áhyggj-
um sem á þér hafa hvílt í sambandi við fjölskyldu
þína. Þú nýtur þess nú, hve þú ert umgengnisgóður
og vel liðinn. Vinir þínir eru þér þakklátir fyrir
greiða, sem þú hefur gert þeim.
Nr.utsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú færð einhverja sendingu úr fjarlægð sem þú
átíir alls ekki von á á þessum tíma Þú þarft að
leita aðstoðar vinnufélaga þinna, sem munu reynast
þér vel. Þú þarft að finna þér eitthvert nýtt áhuga-
mál, eða nýjar aðferðir til að starfa eftir.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ert fremur þreyttur og slæptur þrátt fyrir góða
hvíld, sem þú hefur haft. Vikan verður fremur til-
breytingal'til en helgin gæti orðið til undirbúnings
á einhverju skemmtilegu. Það koma dagar sem þú
nýtur alveg konunglega. Farðu varlega með fjármunina.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú skalt reyna að endurnýja samband þitt við gamla
vini og kunningja þótt þeir séu fjarri, það getur
oiðið þér til mikils gagns og ánægja. Ástalíf þitt
mun verða hamingjusamt og mótpartur þinn koma
þér mjög á óvart. Heillatala er 3.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú hefur farið herfilega í taugarnar á einhverjum
þér nákomnum og er engin ástæða af þinni hálfu
við svo búið að sitja, svo þú skult reyna að kippa
sarr. kcmulaginu í lag. Skemmtistundir sem þú átt
rr.eð vinum og kunningjum verða ósviknar og ógleymanlegar.
Meyja.vmerklð (24. ágúst — 23. september):
Þú hefur staðið í deilu, sem ef til vill hefur gengið
svo langt, að þú komst til dómstólanna, en hvað
sem því líður er útlitiu mjög tvísýnt, svo þú skalt
fr.ra varlega í hvívetna. Þú færð tækifæri til að
argjalda greiða eins vinar þíns.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú hefur átt viðskipti við vafasama menn, og áöur
cn verra hlýzt af skaltu snúa baki við þeim, þó
þeir reyni að lckka þig. Þiggðu með þökkum boð,
sem þér berst frá fólki, sem þú þekkir vel en um-
gcngst ekki mikið, það mun verða þér skemmtileg upplyfting.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þér mundi vinnast einna bezt með því að hafa hægt
um þig, og þannig að athygli manna beindist ekki
mikið að þér. Þú keppir nú að því að losa þig við
verkefni, sem þú hefur lengi haft með höndum.
Hafðu samband við vini þína og njóttu samvista skyldfólks
þíns.
©Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
Þú þarft að taka að þér verk, sem þú hefur aldrei
sncrt á áður og þekkir aðeins lítillega til af afspurn.
Eigi að slður mun það lukkast ágætlega og allir
verða ánægðir. Þú verður mjög ánægður með til-
veruna og hamingjusamur í sambúð fjölskyldu þinnar.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú heíur verið dálítið fastheldinn á hlut, sem þú átt,
en Þú sérð ekki eftir því ef þú leyfir öðrum að
,'«qggpr njóta hans með þér, það mundi auka vinsældir þín-
ar. Málgefinn félagi þinn fer í taugarnar á þér, en
láttu hann ekki eyðileggja neina ánægju fyrir þér.
Vp.lnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú uppgötvar allt í einu lausn vandamáls, sem þú
hefur haft nokkrar áhyggjur af, og færð um leið
tækifæii til þess að leggja drög að verkefni, sem
mun færa þér smávegis hagnað. Þú upplifir
skemmtilega daga með vinum þínum.
©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Hafðu fremur hægt um þig, því þó að stjörnurnar
séu þér hliðhollar, er það þér fyrir beztu. Maður,
sem þú hefur ekki haft spurnir af lengi kemur
nú fram í dagsins ljós og munuð þið skernmta ykkur
mjög vel saman. Vikan hefur upp á ýmsar nýjungar að bjóða.
Silf
Snorrabraut 44
Sími 16242.