Vikan


Vikan - 30.01.1964, Side 9

Vikan - 30.01.1964, Side 9
Virðulegir herrar á hátíðlegri stundu: Evrópiskir kóngar við útför Edwards VII. Breta- konungs. Það vildi svo til, að þessi samkoma varð um ieið einskonar útfararhátíð fyr- ir konungdóm í Evrópu. Fjór- um árum síðar skall fyrri heimsstyrjöldin á; ný öld gekk í garð. Fremstir á mynd- inni eru (frá vinstri) Wil- helm II. Þýzkalandskeis- ari, Georg V. Bretakóngur og hróðir hins látna Edwards, hertoginn af Connaught. Fyrir fimmtíu árum endaði eitt mesta og bezta friðartíma- bil síðari alda í Evrópu. Það er nú ekki lengra síðan og þó virðast þessi ár óralangt í burtu. Okkur er kunnugt um, að mikil bjartsýni var ríkjandi á Islandi um síðustu aldamót. Skáldin ortu eldbeit ættjarðarkvæði og sáu fyrir sér glæslar framfarir og „menningu i lundum nýrra skóga“. Sá, sem orti eitt bezta og frægasta lirifningarkvæðið í lilefni aldamólanna, var sá maður, sem aðeins fjórum ár- um síðar varð fyrsti ráðherra landsins. Þá gætti bjartsýni, sem mörgum finnst nú að liafi verið dálítið barnaleg, en liún var einlæg eins og flest sem er barnalegt. Það var heldur ekki nein furða, að menn væru bjartsýnir; ísland var á þrösk- uldi nýs tíma, nýir atvinnuveg- ir voru í uppsiglingu og fólkið búið að fá smjörþefinn af tækni- legum framförum svo sem bílnum. Menn voru að visu engan veginn brifnir af fyrstu bilunum og allir muna nú, hverjar viðtökur siminn fékk. I þeirri ágætu bók, sem Al- menna bókafélagið liefur lálið frá sér fara um Ilannes Haf- stein, er ágæt mynd af þjóð- félaginu eins og það var þá. Síminn varð undir eins eitt helzta baráttumál Hannesar Hafstein og hann hélt á þvi máli af slakri einurð, livað sem á móti blés. Og sá mótblástur var enginn hégómi. Mér. virð- ist, að öll pólitísk barátta nú á dögum sé afar væg og góð- mannleg á móti því. Símamál-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.