Vikan - 30.01.1964, Page 13
var mitt milli andvarps og stunu. „Og
loks var það konan mín. Hún dó líka“.
„Þetta getur allt verið tilviljun",
sagði læknirinn blíðlega.
„Ekki þrisvar í röð“, hrópaði litli
maðurinn. „Ein tilviljun, jafnvel tvisv-
ar en ekki þrisvar. Það getur ekki ver-
ið“.
„Þér hafið án efa nefnt annarra
nöfn þrisvar í röð upphátt án þess
að nokkuð skeði“, sagði læknirinn jafn
rólega og fyrr. „Þér hafið aðeins
gleymt þeim tilfellum".
Litli maðurinn ýtti bekknum aftur
á hans fyrri stað og stálfæturnir nístu
gúmmídúkinn á ný. Hann reis á fæt-
ur. Það gera þeir alltaf, þegar þeir
verða æstir.
„Ég var farinn að gæta mín, þegar
það skeði“, sagði hann. „Ég vissi þá,
að ég hafði þetta vald. Það er mikil
byrði að leggja þetta á herðar eins
manns og það manns eins og ég er.
Ég hef svo sem aldrei verið neitt. Ég
sagði ekkert nafn þrisvar. Ekki einu
sinni tvisvar. Satt að segja forðaðist
ég eftir megni að nefna nokkurs manns
nafn. Hvernig gat ég svarið fyrir, að
ég myndi ekki nefna nafnið tvisvar
eða jafnvel þrisvar, þegar ég hafði
nefnt það einu sinni. Ég hefði getað
myrt allan heiminn. Þetta sótti á mig.
Já, það var sannkölluð árátta. Það
er ekkert jafn freistandi og að sanna
fyrir sjálfum sér, að maður hafi á
réttu að standa. Sanna það aftur og
aftur, hverjar svo sem afleiðingarnar
verða. En í fyrrakvöld ...“
„Já“, sagði læknirinn með spurnar-
hreim í röddinni, þegar litli maður-
inn virtist þagnaður“. Haldið þér
áfram“.
„Ég átti son. Hann var augasteinn-
inn minn og ég átti hann einan eftir
núna þegar ég var búinn að myrða
konuna mína. Ég ótti ekkert nema
hann. Við eignuðumst aldrei önnur
börn konan mín og ég. Ég lifði fyrir
þennan dreng og framtíð hans var
allt mitt líf. Hann var allt, sem ég
átti. Ég kallaði á hann. Ég ætlaði bara
að segja honum . .. segja honum ...“
Litli maðurinn fölnaði og skalf frá
hvirfli til ilja.
„Það er víst sama núna, hvað ég
ætlaði að segja honum. Hann var góð-
ur drengur. Ég kallaði ekki einu sinni
eða tvisvar. Nei, ég nefndi nafn hans,
nafn sonar míns, augasteinsins míns,
þrisvar í röð og upphátt. Og sonur
Framhald á bls. 41.