Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 30.01.1964, Qupperneq 23

Vikan - 30.01.1964, Qupperneq 23
hélt að hann væri að verða veik- ur. Hann horfði á Clare, og hat- ur, storkun og örvæntandi ást blandaðist saman í eitt er hann sagði: — Þér tókst raunverulega að sannfæra Faith um að ekki væri neitt milli þín og mín? Að ég elskaði þig ekki og þú ekki mig? — Bara að þú vildir skilja! sagði Clare biðjandi. — Bara að þú gætir séð hvernig þessu er varið í raun og veru! — Ég geri það — ég skil það! . . . Þú varst staðráðin í að gift- ast Ralph. Og úr því að þú vild- ir spilla trúlofun minni þó að þú vissir að þú ætlaðir aldrei að giftast mér... þá er þér lítil stoð í þessari fallegu sögu um sjálfsfórnina þína ... Röddin var beiskjuþrungin þegar hann lauk setningunni: — Ég skil vel hvat- irnar til síðustu orða þinna þeg- ar við töluðum um þetta og kvöddumst . . . Þú talaðir svo hjartnæmt um að Faith væri blind og við mættum ekki særa hana.. . Simon barði hnefanum í skrifborðið. — Og ég, heimsk- inginn, ég trúði þér! Ég trúði þér. Þér hefur sannarlega verið skemmt! Clare þoldi ekki meira. Ekk- ert sem hún sagði eða gerði gat komið honum til að skilja ... Hún bældi niðri í sér grátinn, hrinti upp hurðinni og hljóp út úr stofunni. Joan hafði setzt við borðið sitt, en Simon stóð í sömu sporum. Andlitið var eins og á líkneski. - Og ég sem hélt að mér tækist á l?,un að gera þig ham- ingjusaman- sagði hún með titr- andi röddu. Hún hailaði höfðinu á hendur sér á borðinu og grét. Svo leit hún upp, útgrátnum augum, sneri sér að honum og hvíslaði: —• Reyndu að fyrir- gefa mér . . . það hefur ekki ver- ið létt að segja þér þetta allt. .. Hann horfði á hana, og hrærð- ist af þessari vinsemd og sá ekki gegnum hræsnina. — Ég þakka guði fyrir, að þú gerðir það — þó illt væri. Ef þú hefðir ekki gert það mundi ég hafa haldið áfram að vona að kraftaverk gerðist,. og reynt að finna Clare eitthvað til af- sökunar. Joan fann hatrið streyma um sig alla. -— Elskaðir þú hana svona> heitt? — Já, svaraði hann með ástríðuhita. — Og þú varst sannfærður um, að hún elskaði þig? Röddin var iðrandi þegar hún hélt áfram: — Hefði ég bara vit- að, að hún elskaði þig ekki. Hefði ég bara vitað ... Ég gerði þetta í bezta tilgangi, Simon. Ég vissi, að þú mundir aldrei sjálfur biðja Faith um að veita þér frelsi, og ég þoldi ekki að hugsa til þess, að þú yrðir óham- Framhald á bls. 47. VIKAN 5. tW. — 23

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.