Vikan - 21.01.1965, Side 7
ástarsorg, þegar þú færð svarið,
skalt þú bíða aðgerðarlaus í
nokkra mánuði í viðbót og vita
hvort þetta líður ekki hjá.
Kannski ganga þessi sérstöku lög
úr tízku, og kannski verður hætt
að nota bíla eins og hann á. Og
kannski hittizt þið aftur af til-
viljun og sættizt heilum sáttum.
Kannski eigið þið einhverja sam-
eiginlega kunningja, sem geta á
fínan hátt komið boðum til hans
um að þú sért ekki lengur ósátt
við hann, og kannski er hann
hrifinn af þér og ieitar sátta að
fyrra bragði. En fyrir alla muni,
farðu ekki að ganga eftir hon-
um. Það getur verið stórhættu-
legt. Ef ekkert af þessu hefur
gerzt eftir nokkra mánuði, máttu
reyna að senda honum kæra
kveðju í Lögum unga fólksins —-
gjarnan með einhverju af þess-
um sérstöku lögum — en ef það
hefur ekki áhrif, skaltu reyna að
finna þér einhvern annan — á
öðruvísi bíl.
RAUNSÆI EÐA SKÝJABORGIR.
Kæri Póstur!
Ég las þetta, sem þið kölluðu
„raunsæja framtíðarsýn“ eftir
forstjórann á elliheimilinu. Ég
kalla ykkur frjálslynda að láta
menn fá inni í blaðinu með svona
spádóma. Eins og nokkrum
manni detti nokkurn tíma í hug
að gera bílferju úr gömlum tog-
ara? Ég get búizt við því, að það
verði bráðlega gerð bílferja yfir
Hvalfjörð, en alls ekki úr
Reykjavík og það verður að
byggja slíka ferju sérstaklega til
þeirrar notkunar. Svo er þessi
hugmynd hans um brú yfir Borg-
arfjörð bara þvæla, sem hlýtur
að flokkast undir almennt píp.
Borgarfjörðurinn er enginn krók-
ur eða farartálmi að heitið geti
og það verður ekki byggð brú
yfir hann fyrr en við vitum ekk-
ert hvað við eigum við peningana
að gera.
Með alúðarkveðju,
Raunsær.
Kæri Póstur!
Mig langar til þess að vekja
athygli á því, að líklega hefur
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri,
hitt naglann á hofuðið í ferð
sinni norður í Vikunni um dag-
inn. Sumt kann að orka tvimælis,
en ég er mjög hrifinn af hug-
myndinni um að byggja sumar-
hús á Breiðafjarðareyjum. Sem
Breiðfirðingur þykist ég nú sjá
fyrir mér þá tíð, að efnafólk hér
syðra keppist um þessar eyjar
og þar hefjist nýir uppgangs-
tímar.
Breiðfirðingur.
Til Vikunnar.
. ... og svo get ég ekki stillt
mig um að minnast á hugmynd
hans um einhverskonar sumarbúl
staði í eyjunum, líklega fyrir
efnaða Reykvíkinga eða jafnvel
útlendinga. Ef nýtt landnám á
Breiðafjarðareyjum á að verða
með þeim hætti, þá bið ég þess,
að ég verði kominn undir græna
torfu áður en það verður.
Einn gamall úr Hólminum.
FRÓÐLEIKSÞORSTI EÐA FORVITNI.
Herrar mínir!
Afsakið að ég ónáða ykkur
með þetta vafalaust ómerka
vandamál mitt, en kannske getið
þið gefið mér svar. Vandamálið
hljóðar þannig, að konan mín,
sem annars er mörgum kostum
prýdd, þjáist af forvitni að mín-
um dómi. Þetta kemur helzt í
ljós, þegar við erum boðin eitt-
hvað í hús. Þá ræður hún ekk-
ert við forvitnina og er með nef-
ið niðri í hverjum kopp og kirnu,
skoðar í skápa og hirzlur og því-
um líkt. Ég hef hvað eftir annað
bent henni á að þetta sé mjög
óviðeigandi og líð önn fyrir hana,
en hún segir að þetta sé ekki
forvitni heldur fróðleiksþorsti og
bregzt illa við, þegar ég finn að
þessu. Vitið þið til þess að hægt
sé að lækna svona ástríðu?
Guðmundur.
— — — Þetta á að sjálfsögðu
ekkert skylt við fróðleiksþorsta
eins og þú munt sjálfur hafa séð,
heldur er hér einungis um að
ræða mjög svo ástríðufulla for-
vitni, sem ævinlega er óþolandi.
Slík ástríða verður naumast
læknuð, en geri viðkomandi sér
grein fyrir, hver ljóður þetta er
á háttvísri framkomu, þá ætti sá
hinn sami að geta haft hemil á
forvitnisástríðunni. Þú gætir und-
irstrikað vanþóknun þína á þessu
framferði með þvi að neita því
gersamlega að fara í hús með
henni, nema hún láti af framan-
greindum hætti.
KRISTINN GUÐNASON H.F.
KLAPPARSTlG 25-27 - SÍMI 12314 - 21965.
VIKAN 3. tbl. rj