Vikan

Útgáva

Vikan - 16.09.1965, Síða 6

Vikan - 16.09.1965, Síða 6
AVON VEKUR FEGURÐINA AF DVALA ALLA ÞÁ FEGURÐ, SEM ÞÉR VISSUÐ AÐ ÞÉR ÁTTUÐ. Hulin fegurð, sem þér vissuð að þér áttuð, kemur í Ijós við snertingu Avon. Blómstrar við snertingu Avon makeup. Springur út við hlýju hinna nýju varalita og naglalakka. ... Og svo að lokum gerir Avon augna makeup fegurð yðar fullkomna. Það geta allir séð. Það þarf Avon töfra til að fegurðin líti dagsins ljós. SAvon cosmetics LONDON NEW YORK PARIS ÞOLINMÆÐIN ÞRAUTIR VINNUR ALLAR. Okkur hafa borizt mörg bréf um þolinmæðigreinina. Hér eru glefsur úr nokkrum þeirra. Hún var alveg stórkostlega sniðug, að því er mér fannst. Hefði kannski mátt ganga held- ur lengra í að gera mannskapinn orðlausan. Þið verðið endilega að gera meira af svona löguðu. ... og víst hafði ég gaman af að lesa þetta. En sennilega hefði mín þolinmæði ekki hrokkið langt, hefðuð þið lent á mér. ... og ég er alls ekkert reiður við ykkur út af þessu, nema þá að síður sé. Þetta eru bara nokk- urs konar komplíment fyrir mig og mína þolinmæði. Hafið bara þökk fyrir. Einn, sem var spurður. Mér fannst þetta ákaflega lág- kúrulegt af ykkur að ráðast að fólki úti á götu og gera það að hálfgerðum fíflum. Ég ætla að vona, að Vikan sem er nú ágætis- blað fari ekki út í svona vitleysu aftur. Það var nú aldrei ætlunin að fara að gera grín að fólki, enda finnst okkur þetta ekki flokkast undir það. Líttu bara á bréfið héma á undan. Ekki fannst þeim, sem spurður var, að hann væri gerður að neinu fífli. KERLINGABÆKUR. Kæri Póstur! Löngum höfum við, tvær göf- ugar sálir, geymt hin vökru skrif- færi vor í lognkyrru djúpi efstu skrifborðsskúffunnar á hinu vist- lega heimili voru, og nú fáum við ekki orða bundizt lengur. — En gamanlaust.. Við höfum lesið okkur til ó- bærilegs hryllings nokkrar af hinum svokölluðu kerlingabók- um og komizt að þeirri niður- stöðu að banna ætti útgáfu slíkra bóka, því að þessi viðbjóður er ekki í samræmi við bókmennta- tilfinningu nokkurs manns. Við viljum taka eitt lítið dæmi beint upp úr bók, um orðagjálfur þess- ara hálfbrjáluðu kvenna. „Hin fagra morgundís fer á geislagandi um sveitina og kall- ar allt framúr draumljúfum faðmi næturinnar með herópi lífsins". Að vísu kemur þetta bréf nokk- uð seint, þar sem þið gerðuð þessu máli góð skil í fyrra. — íslendingar! Brennum bækurn- ar, brjótum pennana og bjóðum þeim á hann. E og E. Bjóðum þeim á hvern? ÞEIR SEM SVÍNA. Kæra VIKA! Nú get ég ekki lengur orða bundist yfir þessum helv... strætisvagnabílstjórum. Ég neita því ekki að þeir eru góðir þegar maður ferðast með þeim, en sem hjólreiðamaður finnst mér þeir hreinlega glæpsamlegir í umferð- inni. Oft á dag liggur við að ég fari að grenja af vonsku yfir þeim. Þeir hika ekki við að „svína“ á mann, og það er eins og þeir séu ný búnir að fá flaut- urnar því að þeir flauta eins og brjálaðir menn ef þeir sjá mann á hjóli í 10 km. fjarlægð, en þetta átti ekki að vera skammarbréf svo að það er bezt að snúa blað- inu við og leggja fyrir þig nokkr- ar spurningar: 1. Hvað er Landsbókasafnið? 2. Af hverju má ekki hjóla Bankastrætið? 3. Hvað þýðir KINKS? Og svo þakka ég þér fyrir allt gamalt og gott. SENDILL. P.S. Hvað þýðir P.S.? SAMI. Þið verðið nú að viðurkenna það, strákar mínir, að þið eruð stundum óþolandi frekir á hjól- unum, og kunnið alls ekki að halda ykkur yzt á götunum og þaðan af síður að hjóla beint. Og blessaðir elsku strætisvagna- bílstjórarnir vilja auðvitað ekki aka yfir ykkur, og það ættuð þið að virða. 1. Það er hvíta húsið vestan við Þjóðleikhúsið, og þar eru geymdar allar bækur og rit, skjöl og annað slíkt, sem komið hefur út á íslenzku (eða því sem næst) og sitt- hvað fleira. 2. Vegna þess að umferð um Bankastræti er meiri en nokkurs staðar og hjólreið- ar þar myndu gera umferð- ina ómögulega. 3. Það getur þýtt rennilykkja og einnig krampi. Þakka þér svo fyrir alla snún- ingana. g VIKAN 37. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.