Vikan

Tölublað

Vikan - 16.09.1965, Blaðsíða 8

Vikan - 16.09.1965, Blaðsíða 8
Nýtt! Nýtt! Lady býður nú nýtt model. Brjóstahaldari tegund 1220 er úr næloni með spöngum undir skálunum. Tegund 1220 er fallegur, sterkur, ódýr og þægilegur. Litir: Hvítt og svart. Cady h4* Laugavegi 26 — Sími 10115. Söluumboð: Davíð S. Jónsson, heildverzlun. Þingholtsstræti 18. — Sími 24333. Philip prins, aðalsöguhetja í skáldsögu. Er hann einhver Casa- nova í Suðurhöfum? Aðallinn i uppnámi Það er allt á öðrum endanum í brezku konungsfjölskyldunni um þessar mundir. Ástæðan fyrir því er nýútkomin bók, „The Con- sort“, sem myndi útleggjast „Drottningarmaðurinn“ á ís- lenzku. Hún er skrifuð af sextug- um Breta, Antfony H. Smith. Þessi bók fjallar um Philip prins, Elísabetu drottningu, drottning- armóðurina og alla konungsfjöl- skylduna. En þetta fólk nálgast það að vera heilagt, og vanalega er það ekki refsingarlaust að hafa þeirra nöfn í flimtingum. Það er svipað því, að ekki skuli leggja nafn Guðs við hégóma. Að vísu eru engin nöfn í bókinni. Eng- land er ekki einu sinni nefnt á nafn, en það er vandalaust að sjá, við hvað er átt. Og rithöfundur- inn segir sjálfur, að hann hafi Philip prins sem fyrirmynd að söguhetjunni. En það er þó bara á yfirborðinu, segir hann, ég get ekki ímyndað mér, að Philip myndi nokkurn tímann fara svona með konu sína. Aðalsöguhetja sögunnar, Drottn- ingarmaðurinn, (þennan tilil gaf Viktoría drottning Albert prinsi) er á sama aldri og Philip, fátæk- ur prins af konunglegum ættum, sem giftist drottningunni í stóru ríki. Drottningarmaðurinn er kaldur karl, þrælvanur sjómað- ur, sem hefur gaman af hestum, kærir sig kollóttan um almenn- ingsálitið og hefur gaman af fall- egum stúlkum og ,,svæsnum“ karlmannaboðum. Drottningunni er lýst sem samvizkusamri, vana- fastri, ákveðinni og þvermóðsku- fullri konu, sem tekur hlutverk sitt á mjög hátíðlegan hátt og hefur veikleika fyrir „svakaleg- um“ höttum, — sú umsögn hefur fengið alla Buckinghamhöll til að roðna af skömm. Þó tekur út yfir allan þjófa- bálk, þegar drottningin sendir Drottningarmanninn út af örk- inni í opinbera heimsókn í lítið ímyndað konungsríki í Kyrrahaf- inu, sem nefnist Blackwoodeyj- arnar. Heimsókn Drottningar- mannsins verður eitt allsherjar ástarævintýri, sem nær hámarki, þegar hann verður ástfanginn af þeldökkri þarlendri stúlku, Tiu, og upplifir með henni í fyrsta sinn „hið Ijúfa Iíf“. En þegar hirðin kemst á snoðir um þetta, er Drottningarmanninum rænt og hann fluttur hið bráðasta heimleiðis. Þar undirbýr hann sinn eigin „dauða“ með margvís- legum brögðum, og þegar jarðar- förin fer fram, situr hann dulbú- inn í flugvél á leið til sinnar heittelskuðu suður í höfum. f þrjú ár hefur brezki útgefand- inn velt handritinu milli hand- anna án þess að þora að gefa það út, enda hafa lögfræðingar hans ráðið honum frá því. En nú er sem sagt von á bókinni. Það er talið nærri því öruggt, að sala hennar verði bönnuð á grundvelli gamallar lagasetningar úr laga- bókinni, þar sem rætt er um lítil- Iækkun konungsfjölskyldunnar. f Bandaríkjunum er bókin þegar komin út með stóru letri þvert yfir kápuna: „Þetta er bókin, sem enginn þorir að gefa út í Englandi". g VIKAN 37. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.